Halló, má ég vera memm? Áslaug Ýr Hjartardóttir skrifar 27. febrúar 2016 16:30 Það er húsfundur hjá íbúum blokkar einnar í Vesturbænum. Allir eru boðaðir og umræðan á m.a. að snúast um það hvaða lit eigi að mála húsið, þar sem gamla málningin er orðin vel flögnuð og ljót. Á fundinum er mikið rætt og rifist, en eftir að hafa loks komist að þeirri niðurstöðu að mála húsið hvítt er ákveðið að panta pizzu. Það er þó einn íbúi sem situr í horninu og lætur lítið til sín taka. Hann hefur lítið sagt, oft ekki svarað þegar orðum er beint til hans og skilaði kjörseðlinum auðum. Hann fær sér ekki heldur pizzu, heldur situr áfram hljóður í horninu og lætur lítið fyrir sér fara. Eftir að allir hafa snætt víkur einn íbúanna sér að íbúanum í horninu og segir: „Þetta var góð pizza, af hverju fékkstu þér ekki sneið?“ Hinn íbúinn hváir, og eftir að hafa endurtekið spurninguna rennur upp fyrir honum ljós og hann spyr: „Er pizza hérna?“ Of seint, pizzan er búin. Sagan hér að ofan hljómar ótrúlega, en er í raun ekkert svo ótrúleg. Íbúinn sem um ræðir er nefnilega bæði sjónskertur og heyrnarskertur. Hann veit vel að það er eitthvað að, en málið er að hann veit ekki hvernig hann á að bregðast við. Aðrir sem þekkja hann vel, telja hann vera mikinn hugsuð og alltaf utan við sig, enda orðinn sjötugur maðurinn. Stöldrum nú aðeins við og snúum okkur að skerðingunum tveimur. Sjón- og heyrnarskerðing er mjög lúmsk fötlun, það eru til mörg dæmi um að fólk hafi fengið greiningu á annaðhvort sjón- eða heyrnarskerðingu, eða einfaldlega ekki fengið neina greiningu. Rannsóknir hafa m.a. sýnt fram á að það eru margir eldri borgarar á hjúkrunarheimilum með samþætta sjón- og heyrnarskerðingu, en stór hluti þess hóps hefur engan viðeigandi hjálpartækjabúnað. Þetta kemur öðru daufblindu fólki í raun ekkert á óvart, þar sem algengt er að eldri borgarar missi sjón og heyrn sökum aldurshnignunar, en slíkt kallast samþætta aldurstengd sjón- og heyrnarskerðing (SASH). Snúum okkur aftur að íbúanum í blokkinni í Vesturbænum. Hvað er hægt að gera til þess að hann gæti orðið virkari og sjálfstæðari í félagslífinu og lífinu almennt? • Hann þarf að fara til eyrnalæknis og fá greiningu. • Hann þarf að fara til augnlæknis og fá greiningu. • Hann þarf ráðgjöf um það hvaða möguleika hann á. Möguleikarnir gætu verið: a. Fá heyrnartæki og annan heyrnarhjálparbúnað með viðeigandi kennslu á tækin. b. Fá túlkaþjónustu og greiningu á hvernig samskiptaleiðir henta honum best. c. Fá hvítan staf/leiðsöguhund og viðeigandi umferliskennslu. d. Læra á punktaletur og fá hjálpartækjabúnað eins og stækkunartæki. e. Fá viðeigandi félagsþjónustu, s.s. liðveislu eða aðstoðarmann. Allt þetta er á víð og dreif út um allt, í raun mætti tala um kerfið sem eitt stórt völundarhús. Þetta er m.a. þess vegna sem til er hagsmunafélag fólks með samþætta sjón- og heyrnarskerðingu sem heitir Fjóla. Félagið berst fyrir réttindum daufblindra einstaklinga, gætir hagsmuna þeirra og veitir þeim ráðgjöf og aðstoð við að fóta sig í kerfinu. Það er nefnilega það að daufblindir einstaklingar fá oft ekki að sitja við sama borð og annað fólk, með eða án greiningar. Því kerfið er ekki aðeins eitt stórt völundarhús, heldur eru þar margir dauðir endar. Þess vegna stendur félagið nú fyrir söfnun til að geta gert heimildarmynd um fólk með samþætta sjón- og heyrnarskerðingu á Íslandi. Myndin ber heitið ,,Manneskja eins og þú“ og eru miklar vonir bundnar við þetta verkefni. Markmiðið er að vekja fólk til vitundar um þessa tvöföldu en lúmsku skerðingu auk þess að varpa ljósi á stöðu daufblindra einstaklinga á Íslandi. Söfnunin er enn í gangi og hægt er að kynna sér málið nánar hér og jafnvel leggja einhverja aura í hana ef kostur er á því. Það er húsfundur hjá íbúum blokkar einnar í Vesturbænum. Allir íbúarnir eru boðaðir og umræðan á m.a. að vera um það í hvaða lít eigi að mála húsið þar sem gamla málningin er orðin vel flögnuð og ljót. Allir eru í góðu skapi, það er rætt og rifist og eftir að hafa ákveðið að mála blokkina appelsínugula, stingur einhver upp á því að panta pizzu. Það er tekið vel í það og enda allir kátir. Pizzan kemur og er étin til agna. Það er einn daufblindur íbúi á fundinum með túlka, aðstoðarmann og hvítan staf. Sá hefur verið mjög virkur í umræðunni, og staðið fast við það að best væri að mála blokkina appelsínugula til að auka fjölbreytileikann og litagleðina í hverfinu. Einhver spyr daufblinda íbúann hvað honum fyndist um nýja litinn, hvort hann væri ekki sáttur með niðurstöðuna? Íbúinn hlær og þurrkar sér um munninn áður en hann svarar: „Þetta er einmitt það sem ég barðist fyrir, svo ég get ekki kvartað!“ Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun Mest lesið Strætisvagni ekið á 150 km hraða í gegnum íbúðarhverfi við grunnskóla - „Stórkostlegt sjónarspil“ Haukur Magnússon,Kristján Vigfússon,Margrét Manda Jónsdóttir Skoðun Verðgæzlustjóri ríkisins gengur aftur Björn Brynjúlfur Björnsson Skoðun Eldri maður fer í framboð Ragnar Sverrisson Skoðun Meira sund í Kópavogi Jónas Már Torfason Skoðun Verðbólgukeppni Benedikt S. Benediktsson Skoðun Látum ekki tækifærin renna okkur úr greipum Hulda Hallgrímsdóttir,Erla Tinna Stefánsdóttir Skoðun Sólveig Anna um stöðu verkafólks innan eða utan ESB Þorvaldur Ingi Jónsson Skoðun Sátt í september verður að ná til allra Sveinn Ólafsson Skoðun Chardonnay á Sólvallagötu Elías Blöndal Guðjónsson Skoðun Við ræktum arfa og vonumst eftir rósum Sóldís Birta Reynisdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Hvers vegna og hvernig háskólanám? Hallur Þór Sigurðarson skrifar Skoðun Frá þekkingu til verðmæta – hvar slitna tengslin? Kolbrún Halldórsdóttir skrifar Skoðun Ilmurinn er svo lokkandi Einar Helgason skrifar Skoðun Við ræktum arfa og vonumst eftir rósum Sóldís Birta Reynisdóttir skrifar Skoðun Áframhaldandi og markviss vinna í þágu barna í Hveragerði Eva Harðardóttir,Sandra Sigurðardóttir skrifar Skoðun Lækkum leikskólagjöld og tökum upp 100% syskinaafslátt Tinna Berg Rúnarsdóttir skrifar Skoðun Í þágu heimilanna… utan ESB Hnikarr Bjarmi Franklínsson skrifar Skoðun Chardonnay á Sólvallagötu Elías Blöndal Guðjónsson skrifar Skoðun Strætisvagni ekið á 150 km hraða í gegnum íbúðarhverfi við grunnskóla - „Stórkostlegt sjónarspil“ Haukur Magnússon,Kristján Vigfússon,Margrét Manda Jónsdóttir skrifar Skoðun Ósýnileg en ómissandi Eva Hauksdóttir skrifar Skoðun Áfram menning og listir, ekki bara á tyllidögum! María Pálsdóttir skrifar Skoðun Látum ekki tækifærin renna okkur úr greipum Hulda Hallgrímsdóttir,Erla Tinna Stefánsdóttir skrifar Skoðun Meira sund í Kópavogi Jónas Már Torfason skrifar Skoðun Stefna í fíkniefnamálum á villigötum? Helgi Gunnlaugsson skrifar Skoðun Sátt í september verður að ná til allra Sveinn Ólafsson skrifar Skoðun Heilbrigðiskerfið tekur á móti börnunum Ástþóra Kristinsdóttir,María Rut Beck,Ingibjörg Thomsen Hreiðarsdóttir skrifar Skoðun Eldri maður fer í framboð Ragnar Sverrisson skrifar Skoðun Kærleikur og umburðarlyndi vinstrimanna Diljá Mist Einarsdóttir skrifar Skoðun Verðgæzlustjóri ríkisins gengur aftur Björn Brynjúlfur Björnsson skrifar Skoðun Vöndum okkur Ingibjörg Ólöf Isaksen skrifar Skoðun Verðbólgukeppni Benedikt S. Benediktsson skrifar Skoðun Hvers vegna eru listir lýðheilsumál? Árný Fjóla Ásmundsdóttir,Kristín Lilja Thorlacius,María Arnardóttir skrifar Skoðun Frístundaheimili eru grunnþjónusta Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Vill meirihlutinn í Reykjavíkurborg ekki hlusta á íbúa? Fanný Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Íbúasamráð í sveitarfélögum Sigurborg Kr. Hannesdóttir skrifar Skoðun Raunverulegt val fyrir foreldra í Hafnarfirði Signý Jóna Tryggvadóttir skrifar Skoðun Þröngt mega sáttir? Kristín Kolbrún Waage Kolbeinsdóttir skrifar Skoðun Ungt fólk, sjávarútvegur og framtíð íslensks efnahagslífs Júlíus Valsson skrifar Skoðun Kominn tími á samfélagssáttmála um leikskóla eins og á hinum Norðurlöndunum Jóhann Páll Jóhannsson skrifar Skoðun Ælt við dæluna Þorsteinn Sæmundsson skrifar Sjá meira
Strætisvagni ekið á 150 km hraða í gegnum íbúðarhverfi við grunnskóla - „Stórkostlegt sjónarspil“ Haukur Magnússon,Kristján Vigfússon,Margrét Manda Jónsdóttir Skoðun
Skoðun Áframhaldandi og markviss vinna í þágu barna í Hveragerði Eva Harðardóttir,Sandra Sigurðardóttir skrifar
Skoðun Strætisvagni ekið á 150 km hraða í gegnum íbúðarhverfi við grunnskóla - „Stórkostlegt sjónarspil“ Haukur Magnússon,Kristján Vigfússon,Margrét Manda Jónsdóttir skrifar
Skoðun Látum ekki tækifærin renna okkur úr greipum Hulda Hallgrímsdóttir,Erla Tinna Stefánsdóttir skrifar
Skoðun Heilbrigðiskerfið tekur á móti börnunum Ástþóra Kristinsdóttir,María Rut Beck,Ingibjörg Thomsen Hreiðarsdóttir skrifar
Skoðun Hvers vegna eru listir lýðheilsumál? Árný Fjóla Ásmundsdóttir,Kristín Lilja Thorlacius,María Arnardóttir skrifar
Skoðun Kominn tími á samfélagssáttmála um leikskóla eins og á hinum Norðurlöndunum Jóhann Páll Jóhannsson skrifar
Strætisvagni ekið á 150 km hraða í gegnum íbúðarhverfi við grunnskóla - „Stórkostlegt sjónarspil“ Haukur Magnússon,Kristján Vigfússon,Margrét Manda Jónsdóttir Skoðun