Bjargaði mömmu sinni frá drukknun Höskuldur Kári Schram skrifar 11. febrúar 2016 19:07
Sjö ára stúlka úr Grafarvogi, Karen Sæberg Guðmundsdóttir, var í dag útnefnd skyndihjálparmaður ársins. Karen bjargaði lífi móður sinnar sem fékk flogakast í heitum potti. 112-dagurinn var haldinn hátíðlegur í dag en neyðarnúmerið fagnar tuttugu ára afmæli í ár. Að venju voru margir heiðraðir í tilefni dagsins þar á meðal skólabörn sem stóðu sig best í hinni svokallaðri Eldvarnargetraun. Þá var Karen Sæberg Guðmundsdóttir sjö ára stúlka úr Grafarvogi útnefnd skyndihjálparmaður ársins. Karen var ásamt móður sinni og Júlíusi vini sínum að leika sér í heita pottinum í garðinum þegar móðir hennar fékk flogakast. „Ég er með flogaveiki og fékk kast. Karen tekur eftir því og heldur höfðinu á mér uppi og rekur Júlíus með harðri hendi að fara að ná í hjálp. Hann hleypur inn og nær í pabba hennar, manninn minn,“ segir Margrét Sæberg Þórðardóttir móðir Karenar. Karen segist strax hafa séð að eitthvað var að. „Ég sá að hún var ekki að gera neitt og það var vatn komið upp að vörum. Þá tók ég eftir því og hélt hausnum uppi,“ segir Karen. Gunnhildur Sveinsdóttir verkefnastjóri hjá Rauða krossinum segir að Karen hafi sýnt mikið snarræði. „Að hún skuli taka eftir þessu og átta sig á því að það er mikilvægt að taka hana upp úr vatninu og halda höfðinu uppi og svo biðja um aðstoð, það er ekki hvaða barn sem er sem getur þetta,“ segir Gunnhildur
Mest lesið Myndir: Allt á floti í Kringlunni Innlent Umfangsmikið mengunarslys vegna rútuslyssins Innlent „Sumar búðir hafa sloppið vel, aðrar ekki“ Innlent Náði ekki að loka búðinni áður en henni var sagt að koma sér út Innlent Leiðinlegt fyrir útskriftarnema sem er hent út áður en þeir taka sopa Innlent „Við munum ekkert hreyfa okkur í sumar“ Innlent Konungsskip Dana í Reykjavík Innlent Sigurður Ingi ekki búinn að undirrita Isavia-samning Innlent Harma banaslysið og hafa uppfært verkferla Innlent Eldur logar í þaki Kringlunnar Innlent Fleiri fréttir Myndir: Allt á floti í Kringlunni Umfangsmikið mengunarslys vegna rútuslyssins Konungsskip Dana í Reykjavík „Sumar búðir hafa sloppið vel, aðrar ekki“ Safnað fyrir gróðurskála á Kirkjubæjarklaustri „Við munum ekkert hreyfa okkur í sumar“ Flókið verkefni og mikið tjón í Kringlunni Leiðinlegt fyrir útskriftarnema sem er hent út áður en þeir taka sopa Eldur í Kringlunni og Kristján Loftsson um hvalveiðileyfið Náði ekki að loka búðinni áður en henni var sagt að koma sér út Héldu fyrst að þetta væri brunaæfing Sigurður Ingi ekki búinn að undirrita Isavia-samning Eldur logar í þaki Kringlunnar Björgunarsveit kölluð út í Þórsmörk Áhyggjur af vanda drengja í menntakerfinu óþarfar Þyrlan kölluð út vegna reiðslyss Kjósendur Jóns Gnarr líklegastir til að vera ósáttir með Höllu Vilja banna hvalveiðar með lögum Áttatíu prósent af plasti í fjörum landsins kemur frá útlöndum Efast um að ráðherrar nái fram markmiði sínu Tveimur haldið sofandi vegna slyssins Rútuslys í Öxnadal og meintar rangfærslur ráðherra Guðni snýr aftur í sagnfræðina Leita að nýju húsnæði fyrir kaffistofu Samhjálpar Öxnadalsheiði opin á ný Harma banaslysið og hafa uppfært verkferla Bein útsending: Brautskráningar Háskóla Íslands Svandís og Sigurður Ingi sögð bakka upp bílastæðagjöldin Of snemmt að kenna bikblæðingum um Átök á lokametrunum: Saka ríkisstjórn um að „slátra“ samgönguáætlun Sjá meira