Ásgeir Jónsson nýr forseti Hagfræðideildar Sæunn Gísladóttir skrifar 22. janúar 2016 12:38 Ásgeir Jónsson dósent við Háskóla Íslands hefur verið kjörinn deildarforseti Hagfræðideildar fram til sumars 2018. Vísir/ÞÞ
Ásgeir Jónsson dósent við Háskóla Íslands hefur verið kjörinn deildarforseti Hagfræðideildar fram til sumars 2018 og hefur þegar tekið við af Tór Einarssyni. Tinna Laufey Ásgeirsdóttir mun gegna stöðu varaforseta deildarinnar fram til 1.júlí 2016 segir í tilkynningu. Auk stöðu deildarforseta er Ásgeir umsjónarmaður meistaranáms í fjármálahagfræði við sömu deild. Þau verkefni sem Ásgeir hefur unnið að eru meðal annars tengd alþjóðafjármálum, peningahagfræði, hagsögu, orkuhagfræði, fasteignamarkaðinum, byggðahagfræði og almennri þjóðhagfræði. Ásgeir lauk stúdentsprófi frá Menntaskólanum á Akureyri árið 1990, BS prófi í hagfræði frá Hagfræðideild Háskóla Íslands árið 1994 og síðan doktorsprófi í hagfræði með áherslu á peningahagfræði, alþjóðaviðskipti og hagsögu frá Indiana University árið 2001. Ásgeir hóf starfsferilinn sem hagfræðingur hjá Verkamannafélaginu Dagsbrún árið 1994 og ritstjóri Vísbendingar árið1995 þar til hann hélt utan til náms. Árið 2000 hóf hann störf hjá Hagfræðistofnun Háskóla Íslands og varð lektor hjá Hagfræðideild HÍ árið 2004. Hann tók við starfi sem aðalhagfræðingur Kaupþings í ársbyrjun 2004, var forstöðumaður greiningardeildar Kaupþings á árunum 2006-2008 og gegmdi síðan sömu stöðu hjá Arion banka á árunum 2008-2011.
Mest lesið Fær 9,5 fyrir IKEA og JYSK samsetningar Atvinnulíf Þegar svona sprengja springur vill allur vinnustaðurinn „fá allt á hreint“ Atvinnulíf Enn eitt gjaldþrot Helga: Ekkert í boði í Veislunni Viðskipti innlent Kaupir Malbiksstöðina á fimm milljarða Viðskipti innlent Paramount og Warner Bros. heyra brátt sögunni til Viðskipti erlent Klíníkin sótti 300 milljónir króna Viðskipti innlent Fréttamaður missti af strætónum til baka Neytendur Tuttugu sagt upp í fiskvinnslu í Reykjanesbæ Viðskipti innlent 181 starfsmanni sagt upp í sex hópuppsögnum Viðskipti innlent G7 setja hundrað milljón tunnur á markaðinn Viðskipti erlent Fleiri fréttir Klíníkin sótti 300 milljónir króna 181 starfsmanni sagt upp í sex hópuppsögnum Enn eitt gjaldþrot Helga: Ekkert í boði í Veislunni Kaupir Malbiksstöðina á fimm milljarða Tuttugu sagt upp í fiskvinnslu í Reykjanesbæ Borga hálfan milljarð í viðbót fyrir indverskt félag „Hlutir sem við vorum ekki sammála um“ Hörður hættir sem forstjóri Landsvirkjunar Bein útsending: Ársfundur Samtaka atvinnulífsins Enn lækkar Ísland í nýsköpunarvísitölunni Boðaði til starfsmannafundar og mætti í stjórnarráðið Helgi í Góu greiðir sér 130 milljónir Opna fljótlega fyrir umsóknir vegna ráðstöfunar séreignar Magnús er nýr sviðsstjóri ráðgjafarsviðs KPMG Spá óbreyttum vöxtum Minnsta hlutabréfavelta frá faraldursárinu 2020 Magnús leiðir Stofnun atvinnuveganna Samherji selur Margréti til Færeyja Afgreiðsla launakrafna Play fyrirhuguð 16 mánuðum eftir fallið Vaxtahækkunarferli lokið en langt í lækkun Ekki sjái fyrir endann á uppsögnum Þrotabú Play krefur Einar um skaðabætur Verðbólga í tveggja ára hámarki eftir að skattalækkun rann út Telja gagnaver skila litlum ávinningi í Noregi Á áttunda tug starfsmanna Netapp sagt upp Verðbólga ekki meiri í tvö ár Högnuðust um milljarð Rúmlega tuttugu sagt upp hjá ÍAV Hannes Þór, Hannes Þór og Allan greiða sér 100 milljónir í arð Uppsagnir í Arion banka Sjá meira