Segir upp samningnum um gistingu og hótelþjónustu Sjúkrahótelsins Atli Ísleifsson skrifar 22. janúar 2016 19:30 Sjúkrahótelið í Ármúla. Vísir/Stefán
Heilsumiðstöðin, sem rekur Sjúkrahótelið í Ármúla í Reykjavík, hefur sagt upp samningi sínum við Sjúkratryggingar um gistingu og hótelþjónustu Sjúkrahótelsins. Í uppsagnarbréfinu sem sent var Sjúkratryggingum segir að það hryggi starfsmenn Heilsumiðstöðvarinnar að þurfa að segja upp þjónustunni, en „því miður [hafi]starfsemi Sjúkrahótelsins orðið að bitbeini á milli opinberra aðila sem takast á um hvar fjárveitingin skuli liggja. Þessir aðilar hafa skiptar skoðanir á eðli og hlutverki Sjúkrahótelsins og hefur erfiðlega gengið að miðla málum með þeim hætti að friður sé um starfsemina.“ Í bréfinu segir að annars vegar sé um að ræða skilgreiningu Sjúkratrygginga á starfsemi Sjúkrahótels sem var lagt til grundvallar útboði sem Heilsumiðstöðin tók þátt í. Þar hafi átt á að semja um hótelgistingu og fullt fæði fyrir einstaklinga sem séu færir um athafnir daglegs lífs en hafi hag af því að dvelja þar sem veitt er hjúkrunarþjónusta og tenging við það öryggi sem felst í að gista í nálægð við heilbrigðisþjónustu á höfuðborgarsvæðinu. Hins vegar sé það afstaða Landspítalans sem „virðist vilja skilgreina starfsemina sem deild innan spítalans og þar með á forræði hans auk þess sem spítalinn vill sjálfur reka umrædda gistingu og hótelþjónustu.“ Uppsagnarfrestur er þrír mánuðir og verður starfsemin því óbreytt til 30. apríl næstkomandi. „Það eru okkur mikil vonbrigði að ekki hafi tekist að finna betri samstarfsflöt með Landspítalanum, sem er sú stofnun sem einna mikilvægast er að við stígum í takti við. Það er von okkar að Sjúkratryggingar og Landspítali í samvinnu við Velferðarráðuneyti finni lausnir til lengri tíma sem skapi sátt og gagnist sem best þeim þúsundum einstaklinga sem á þessari þjónustu þurfa á að halda, bæði þeirra sem geta nýtt sér gistingu á Sjúkrahótels og einnig hinna veikari sem betur hentar að dvelja á sjúklingahóteli,“ segir í bréfinu.
Mest lesið Myndir: Allt á floti í Kringlunni Innlent Flúðu vettvang eftir harðan árekstur Innlent Umfangsmikið mengunarslys vegna rútuslyssins Innlent Náði ekki að loka búðinni áður en henni var sagt að koma sér út Innlent Búðareigendur aðstoðuðu slökkviliðsmenn Innlent „Sumar búðir hafa sloppið vel, aðrar ekki“ Innlent Isavia stefnir að því að hefja gjaldtöku í vikunni Innlent Konungsskip Dana í Reykjavík Innlent Björgunarsveitir sinntu reiðslysi og gönguslysi í gær Innlent Leiðinlegt fyrir útskriftarnema sem er hent út áður en þeir taka sopa Innlent Fleiri fréttir Parísarhjól sprettur upp við höfnina Virðast ætla að opna Kringluna á þriðjudaginn Fá ekki fjármagn til að laga Flóttamannaleiðina fyrr en 2028 Isavia stefnir að því að hefja gjaldtöku í vikunni Það verði „drulluerfitt“ að rífa VG úr lægðinni Jarðaberjarækt í grænum iðngarði í Helguvík Búðareigendur aðstoðuðu slökkviliðsmenn Flúðu vettvang eftir harðan árekstur Slökkvistarf í Kringlunni og staða Vinstri grænna Laxateljari greinir eldislaxa frá villtum löxum Ferðaþjónustan, þingmálin og Running Tide í Sprengisandi Björgunarsveitir sinntu reiðslysi og gönguslysi í gær Myndir: Allt á floti í Kringlunni Umfangsmikið mengunarslys vegna rútuslyssins Konungsskip Dana í Reykjavík „Sumar búðir hafa sloppið vel, aðrar ekki“ Safnað fyrir gróðurskála á Kirkjubæjarklaustri „Við munum ekkert hreyfa okkur í sumar“ Flókið verkefni og mikið tjón í Kringlunni Leiðinlegt fyrir útskriftarnema sem er hent út áður en þeir taka sopa Eldur í Kringlunni og Kristján Loftsson um hvalveiðileyfið Náði ekki að loka búðinni áður en henni var sagt að koma sér út Héldu fyrst að þetta væri brunaæfing Sigurður Ingi ekki búinn að undirrita Isavia-samning Eldur logar í þaki Kringlunnar Björgunarsveit kölluð út í Þórsmörk Áhyggjur af vanda drengja í menntakerfinu óþarfar Þyrlan kölluð út vegna reiðslyss Kjósendur Jóns Gnarr líklegastir til að vera ósáttir með Höllu Vilja banna hvalveiðar með lögum Sjá meira