Fjármálalæsi Íslendinga fer batnandi Sæunn Gísladóttir skrifar 19. janúar 2016 06:00 Breki Karlsson, forstöðumaður Stofnunar um fjármálalæsi, telur þörf á að leggja meiri áherslu á viðhorf í fjármálum í framtíðinni.
Íslendingar hafa tekið framförum í fjármálalæsi og koma vel út ef miðað er við niðurstöður kannana í fjórtán OECD-ríkjum árið 2012. Þetta er niðurstaða nýrrar rannsóknar sem greint er frá í skýrslu um fjármálalæsi Íslendinga á vegum Stofnunar um fjármálalæsi og sálfræðisviðs viðskiptadeildar Háskólans í Reykjavík. Þetta er í þriðja sinn sem fjármálalæsi Íslendinga er rannsakað á þennan hátt, en spurningalistar voru lagðir fram í desember árin 2008, 2011 og 2014. Árið 2014 skoruðu þátttakendur hærra að meðaltali í öllum þáttum fjármálalæsis, þekkingu, viðhorfum og hegðun. Meðaltal réttra svara í þekkingarhlutanum er 67 prósent nú, en var 47 prósent árið 2011. Þrjátíu prósent halda heimilisbókhald nú samanborið við 16 prósent árið 2011. Meðalhlutfall annarra OECD-ríkja er þó hærra, eða 44 prósent.Fjármálalæsi er nú á námskrá grunnskóla. Fréttablaðið/VilhelmBreki Karlsson, forstöðumaður Stofnunar um fjármálalæsi, telur að ákveðin vitundarvakning í þjóðfélaginu hafi valdið þessari þróun. „Fólk er miklu meira að fjalla um fjármál einstaklinga en áður. Þegar stofnunin um fjármálalæsi var stofnuð árið 2005 var orðið fjármálalæsi ekki til í íslenskri tungu,“ segir Breki. Margt hefur breyst síðan, árið 2011 var fjármálalæsi til að mynda komið inn í námskrá grunnskóla. „Þetta er ekki séríslenskt fyrirbæri. Ég er að vinna mikið með OECD og þar er mikil aukning í áhuga þjóðríkja á að efla fjármálalæsi fólks. En samkvæmt rannsóknum OECD ríkir meiri hagsæld og fólk veitir stjórnvöldum meira aðhald í þeim ríkjum þar sem fjármálalæsi er mikið,“ segir Breki. Í rannsókninni skoruðu karlar, miðjualdurshóparnir, þátttakendur sem voru giftir eða í sambúð og þeir sem bjuggu á höfuðborgarsvæðinu að meðaltali marktækt hærra en aðrir í þekkingarhluta rannsóknarinnar. Ekki er þó samband milli þekkingar og hegðunar í fjármálum. Nokkuð jákvætt samband er milli viðhorfa og hegðunar í fjármálum. Því jákvæðari viðhorf þátttakenda, þeim mun jákvæðari hegðun sýndu þeir. Breki telur því að í stað þess að leggja áherslu á þekkingaryfirfærslu, þurfum við að leggja áherslu á viðhorf. „Við þurfum í eigin fjármálum að hafa meiri fyrirhyggju og hugsa lengra fram í tímann en kannski til næstu mánaðamóta sem vill oft verða.“
Mest lesið Langþráður draumur að verða að veruleika í Kísildal Viðskipti innlent Breytingar á vetraropnun miðstöðvarinnar í Kerlingarfjöllum kynntar Viðskipti innlent Fær 9,5 fyrir IKEA og JYSK samsetningar Atvinnulíf Þegar svona sprengja springur vill allur vinnustaðurinn „fá allt á hreint“ Atvinnulíf Enn eitt gjaldþrot Helga: Ekkert í boði í Veislunni Viðskipti innlent Klíníkin sótti 300 milljónir króna Viðskipti innlent Paramount og Warner Bros. heyra brátt sögunni til Viðskipti erlent Kaupir Malbiksstöðina á fimm milljarða Viðskipti innlent G7 setja hundrað milljón tunnur á markaðinn Viðskipti erlent „Hlutir sem við vorum ekki sammála um“ Viðskipti innlent Fleiri fréttir Langþráður draumur að verða að veruleika í Kísildal Breytingar á vetraropnun miðstöðvarinnar í Kerlingarfjöllum kynntar Klíníkin sótti 300 milljónir króna 181 starfsmanni sagt upp í sex hópuppsögnum Enn eitt gjaldþrot Helga: Ekkert í boði í Veislunni Kaupir Malbiksstöðina á fimm milljarða Tuttugu sagt upp í fiskvinnslu í Reykjanesbæ Borga hálfan milljarð í viðbót fyrir indverskt félag „Hlutir sem við vorum ekki sammála um“ Hörður hættir sem forstjóri Landsvirkjunar Bein útsending: Ársfundur Samtaka atvinnulífsins Enn lækkar Ísland í nýsköpunarvísitölunni Boðaði til starfsmannafundar og mætti í stjórnarráðið Helgi í Góu greiðir sér 130 milljónir Opna fljótlega fyrir umsóknir vegna ráðstöfunar séreignar Magnús er nýr sviðsstjóri ráðgjafarsviðs KPMG Spá óbreyttum vöxtum Minnsta hlutabréfavelta frá faraldursárinu 2020 Magnús leiðir Stofnun atvinnuveganna Samherji selur Margréti til Færeyja Afgreiðsla launakrafna Play fyrirhuguð 16 mánuðum eftir fallið Vaxtahækkunarferli lokið en langt í lækkun Ekki sjái fyrir endann á uppsögnum Þrotabú Play krefur Einar um skaðabætur Verðbólga í tveggja ára hámarki eftir að skattalækkun rann út Telja gagnaver skila litlum ávinningi í Noregi Á áttunda tug starfsmanna Netapp sagt upp Verðbólga ekki meiri í tvö ár Högnuðust um milljarð Rúmlega tuttugu sagt upp hjá ÍAV Sjá meira