Einn Tesla eigandi seldi 188 Teslur Finnur Thorlacius skrifar 4. janúar 2016 10:13 Einn eigandi Tesla bíls seldi 188 svona Tesla Model S bíla.
Hver þarf bílaumboð eða bílasölur þegar eigendur Tesla bíla selja þá í staðinn? Einn eigandi Tesla bíls náði að selja alls 188 Tesla bíla frá ágúst til október á síðasta ári. Tesla hafði boðið þáverandi eigendum Tesla bíla 1.000 dollara inneign fyrir hvern þann bíl sem þeim tækist að sannfæra aðra kaupendur að festa sér bíl frá fyrirtækinu. Með þessum árangri þessa óvenjulega bílasala hefur hann tryggt sér nýjan Tesla Model S Ludricious P90D bíl að andvirði 130.000 dollara auk þess sem honum hefur verið boðið við opnun Tesla Gigafactory rafhlöðuverksmiðju Tesla í Nevada, sem opnuð verður á þessu ári. Honum verður reyndar einnig verið boðið við vígslu hins nýja Tesla Model 3 bíls sem Tesla vinnur nú hörðum höndum að og kemur á markað á þessu ári. Tesla hefur barist gegn reglum sem eru í mörgum af ríkjum Bandaríkjanna sem kveða á um að enginn bílaframleiðandi megi selja bíla sín beint framhjá bílasölum. Tesla telur sig ekki hafa þörf fyrir slíkar bílasölur og vill selja bíla sína beint til kaupenda. Í mörgum ríkjum Bandaríkjanna er það enn ólöglegt en ofangreind staðreynd ætti að sannfæra löggjafann um að slíkt er algjörlega óþarft í tilviki Tesla bíla.
Mest lesið Geirdís geti leitað á tjaldsvæði og greitt markaðsverð Innlent Húðlæknir bregst við brúnkutískunni Innlent „Þú getur ekkert forðað þér, það verður bara að takast á við þetta“ Innlent „Afleiðingarnar muni vara í einhver ár jafnvel“ Erlent Bandaríkjastjórn lokar á aðgang erlendra ríkisborgara Innlent Kominn með nóg af tímasetningu lögreglu Innlent Þremur skemmtistöðum lokað í sameiginlegum aðgerðum Innlent „Okkur er gert að vera áfram í drullusvaðinu á Sævarhöfða“ Innlent Áfall fyrir bæjarfélagið Innlent Fleiri hlynntir en andvígir samkvæmt nýrri könnun Innlent