Tólfunni skúbbað úr skaupinu Jakob Bjarnar skrifar 4. janúar 2016 15:00 Tólfan beið án árangurs eftir að sjá sig í Skaupinu; en ... ekki er öll nótt úti enn; hugsanlega mun atriðið bera fyrir augu landsmanna þó með öðrum hætti sé.
Liðsmenn Tólfunnar urðu margir hverjir svekktir eftir að sýningu Áramótaskaupsins lauk. Þeir höfðu búist við því að vera áberandi í Skaupinu en þegar til kom glitti ekki svo mikið sem í þennan káta félagsskap sem var svo áberandi á árinu sem skeleggur stuðningshópur íslenska landsliðsins.Svekktir Tólfumenn Jóhann D Bianco aka Joe Drummer, einn helsti liðsmaður Tólfunnar, er verulega svekktur með þessa niðurstöðu. Joe Drummer segir að mikið hafi verið í þetta lagt, Laugaveginum hafi verið lokað, útisvið við Ingólfstorg, hann bara skilur ekki að þetta hafi verið klippt út, í ljósi þess hversu mikið var í þetta lagt. Formaður Tólfunnar, Benjamín Hallbjörnsson eða Benni bongó, tekur í sama streng. Hann sjálfur eyddi þvílíkum tíma í að smala mannskap í þetta og atriðið hafi tekið talsvert langan tíma í tökum. Hann segir það hundfúlt að bíða þess að birtast á skjánum og svo ekki neitt. Benni bongó taldi ekki ástæðu til að gera of mikið úr málinu en hann hafi ekki fengið neinar skýringar á því hvers vegna atriðið var klipp út og því lítið fyrir Vísi að gera annað en hringja beint í foringjann, Kristófer Dignus leikstjóra. Kristófer er að vonum með böggum hildar vegna þessa; segir Tólfuna hóp sem enginn vilji svekkja. Þetta var eitt stærsta atriðið sem tekið var upp í Skaupinu en því miður þá reyndist það of langt þegar til kom, og féll þannig ekki að heildarmyndinni. „Við urðum að skera niður,“ segir Kristófer og greinilegt er að hann dauðsér eftir atriðinu.Sigmundur Davíð í essinu sínu Fjölmargir léku í þessu en í atriðinu segir af fögnuði sem greip um sig eftir jafntefli við Kasaka en þá lá fyrir að Ísland væri komið á EM. Sigmundur Davíð Gunnlaugsson var manna kátastur og gaf út yfirlýsingu þess efnis að allir barir væru opnir í tilefni dagsins, en þegar til kastanna kom var gestum vínveitingastaða vísað út. Í atriðinu fer Sigmundur Davíð vígreifur fyrir Tólfunni, lýsir því yfir að þessi staður verði opinn og hinn. „Og Pravda ...“ þá er honum bent á að Pravda sé ekki lengur til, þá lýsir Sigmundur Davíð því yfir að það verði bara byggt nýtt Pravda. Svo týnist Sigmundur Davíð en áhorfendur sjá skot af forsætisráðherra þar sem hann er í felum í 10/11 að borða köku. „Kolbeinn Sigþórsson kom og lék, Gói, Steindi, Atli Fannar, öll Tólfan og að sjálfsögðu Hannes Óli í hlutverki Sigmundar Davíðs,“ segir Kristófer Dignus og ljóst að hann dauðsér eftir atriðinu. Og hann gengur svo langt, í samtali við blaðamann Vísis, að gefa til kynna að hugsanlega muni þetta atriði koma fram þó með öðrum hætti sé en upphaflega var ætlað.
Mest lesið Er Skúli Mog að selja túristum niðurgreitt kornsíróp? Lífið Anne Carson hlýtur bókmenntaverðlaun Nóbels Menning „Það er smá töffari í mér“ Tíska og hönnun Óþekkti sonurinn leitaði Herbert uppi Lífið Ung og upprennandi: „Pabbi segir mér alveg að hætta þessu“ Lífið Douglas gengst við enn einu framhjáhaldinu Bíó og sjónvarp Fangelsi undir Vatnajökli Leikjavísir Simmi og Auddi mættust aftur á skjánum Lífið Minntist pabba síns Johns Snorra: „Að sjálfsögðu hringdi ég í pabba!“ Lífið Lækna-Tómas og Ármann skemmtu sér á safninu Menning Fleiri fréttir Óþekkti sonurinn leitaði Herbert uppi Er Skúli Mog að selja túristum niðurgreitt kornsíróp? Vinsældirnar skipti miklu máli fyrir arfleifð Johns Snorra Simmi og Auddi mættust aftur á skjánum Eva Marie Saint er látin Ung og upprennandi: „Pabbi segir mér alveg að hætta þessu“ „Það væri ekki hægt að skrifa þetta handrit“ Minntist pabba síns Johns Snorra: „Að sjálfsögðu hringdi ég í pabba!“ Dagbók lögreglu: Próflaus eineygður ökumaður flúði af vettvangi Grétu af gleði þegar þær hittust loksins Stjörnurnar þefuðu á Kjarval Ice Spice og Millie skelltu sér í pottinn Hvað veistu um... íslenska hönnun? Funheit í fimm ára afmæli Engum brögðum beitt í útgáfuhófi Bragðs Tendra friðarsúluna í tuttugasta sinn Elegant herrar selja perlu í 101 Tískudrottningar fögnuðu kærkominni opnun Dorrit um skilnaðinn: „Líf mitt er algjörlega á hvolfi“ Barnsfaðir Gypsy Rose fannst látinn Stjörnulífið: „Lukka lífs míns að vera gift þessum“ Fæddist á Íslandi en þurfti áratugi til að fá það staðfest Fyndnustu dýralífsmyndir ársins Ekki átakalaust að breyta rótgrónu félagi Ástæða fyrir því að þau fóru ekki hátt með sambandið Hágrét í rúminu þegar allur peningurinn var búinn Krakkatía vikunnar: Eurovision, Harry Potter og Mr. Beast Líður betur eftir að hún þurfti að þjóta upp á spítala í miðri útsendingu Haustbingó Blökastsins í beinni Hemmi Gunn hjálpaði Hilmari og Birni Braga að svindla Sjá meira