Strætó biður móður með barnavagn afsökunar Birgir Olgeirsson skrifar 5. janúar 2016 10:00 Strætó bauð móðurinni áfallahjálp. Vísir/Egill Aðalsteinsson
Framkvæmdastjóri Strætós Bs. hefur beðið móður afsökunar á því að dyrum á strætisvagni var lokað á barnavagn sem geymdi son hennar í gær. Klara Arnalds hafði lýst því á Facebook í gær þegar hún var á leið í strætisvagn við Lækjartorg í Reykjavík með son sinn í barnavagninum. Þegar hún var komin með tvö dekk upp í strætisvagninn klemmdist barnavagninn þegar dyrunum var lokað og var strætisvagninum ekið af stað. „Þeir farþegar sem sáu þetta voru sem betur fer fljótir að öskra á vagnstjórann að stoppa og drengurinn fór því ekki langt, en þó nógu langt til að fylla mig einni þeirri mestu skelfingu sem ég hef nokkurn tíma fundið fyrir,“ skrifar Klara. Hún greinir frá því í dag að Jóhannes Rúnarsson, framkvæmdastjóri Strætó Bs., hefði haft samband við hana og beðið hana innilegrar afsökunar á atvikinu. Sagði Jóhannes við Klöru að í strætisvagninum eigi að vera búnaður sem á að koma í veg fyrir að svona lagað gerist. Svo virðist vera sem sá búnaður hafi ekki virkað og verður málið kannað nánar að sögn Jóhannesar. Klara sagðist hafa beðið Jóhannes um að skila því til vagnstjórans að hann hefði mátt sýna betri viðbrögð í gær, biðjast afsökunar og athuga með mæðginin. Jóhannes bauð Klöru áfallahjálp sem hún afþakkaði. Hún hrósaði menntaskólastúlku sem settist hjá henni í strætisvagninum í gær og huggaði hana. „Og fór út einni stoppistöð síðar en hún ætlaði til þess eins að geta hjálpa mér út með vagninn. Þessi fröken er greinilega með hjarta úr gulli og mér þótt verulega vænt um það.“Update af strætómálinu mikla: Ég fékk rétt í þessu símtal frá Jóhannesi Rúnarssyni, framkvæmdastjóra Strætó, þar sem...Posted by Klara Arnalds on Tuesday, January 5, 2016
Mest lesið Myndir: Allt á floti í Kringlunni Innlent Flúðu vettvang eftir harðan árekstur Innlent Umfangsmikið mengunarslys vegna rútuslyssins Innlent Náði ekki að loka búðinni áður en henni var sagt að koma sér út Innlent „Sumar búðir hafa sloppið vel, aðrar ekki“ Innlent Búðareigendur aðstoðuðu slökkviliðsmenn Innlent Konungsskip Dana í Reykjavík Innlent Björgunarsveitir sinntu reiðslysi og gönguslysi í gær Innlent Leiðinlegt fyrir útskriftarnema sem er hent út áður en þeir taka sopa Innlent Laxateljari greinir eldislaxa frá villtum löxum Innlent Fleiri fréttir Virðast ætla að opna Kringluna á þriðjudaginn Fá ekki fjármagn til að laga Flóttamannaleiðina fyrr en 2028 Isavia stefnir að því að hefja gjaldtöku í vikunni Það verði „drulluerfitt“ að rífa VG úr lægðinni Jarðaberjarækt í grænum iðngarði í Helguvík Búðareigendur aðstoðuðu slökkviliðsmenn Flúðu vettvang eftir harðan árekstur Slökkvistarf í Kringlunni og staða Vinstri grænna Laxateljari greinir eldislaxa frá villtum löxum Ferðaþjónustan, þingmálin og Running Tide í Sprengisandi Björgunarsveitir sinntu reiðslysi og gönguslysi í gær Myndir: Allt á floti í Kringlunni Umfangsmikið mengunarslys vegna rútuslyssins Konungsskip Dana í Reykjavík „Sumar búðir hafa sloppið vel, aðrar ekki“ Safnað fyrir gróðurskála á Kirkjubæjarklaustri „Við munum ekkert hreyfa okkur í sumar“ Flókið verkefni og mikið tjón í Kringlunni Leiðinlegt fyrir útskriftarnema sem er hent út áður en þeir taka sopa Eldur í Kringlunni og Kristján Loftsson um hvalveiðileyfið Náði ekki að loka búðinni áður en henni var sagt að koma sér út Héldu fyrst að þetta væri brunaæfing Sigurður Ingi ekki búinn að undirrita Isavia-samning Eldur logar í þaki Kringlunnar Björgunarsveit kölluð út í Þórsmörk Áhyggjur af vanda drengja í menntakerfinu óþarfar Þyrlan kölluð út vegna reiðslyss Kjósendur Jóns Gnarr líklegastir til að vera ósáttir með Höllu Vilja banna hvalveiðar með lögum Áttatíu prósent af plasti í fjörum landsins kemur frá útlöndum Sjá meira