Viðskipti innlent

Hlaut dóm í Stím-málinu: „Ég gerði ekkert rangt og myndi breyta eins aftur“

Atli Ísleifsson skrifar
Þorvaldur Lúðvík Sigurjónsson, fyrrverandi forstjóri Saga Capital, fullyrðir að niðurstaða Héraðsdóms Reykjavíkur í Stím-málinu sé röng.
Þorvaldur Lúðvík Sigurjónsson, fyrrverandi forstjóri Saga Capital, fullyrðir að niðurstaða Héraðsdóms Reykjavíkur í Stím-málinu sé röng. Vísir/Anton Brink
Þorvaldur Lúðvík Sigurjónsson, fyrrverandi forstjóri Saga Capital, segir að einhver muni á endanum þurfa að svara fyrir „grímulausa misbeitingu“ ákæruvaldsins í dómsmálum gegn fyrrverandi bankamönnum. Þorvaldur hlaut átján mánaða fangelsisdóm í Stím-málinu svokallaða en hann fullyrðir að niðurstaða dómsins sé röng og að hann myndi breyta eins í sömu aðstæðum aftur.

Þetta segir Þorvaldur í skoðagrein sem birtist í Fréttablaðinu og á Vísi í morgun og ber heitið „Vont er þeirra ranglæti, verra er þeirra réttlæti.“ Þorvaldur segir þar brot sín í Stím-málinu ósönnuð með öllu og að hann hafi ekkert gert rangt.

„Ég get harmað að hafa borist á öldum bjartsýni fyrir 2008, en mögulega voru fleiri sekir um það,“ skrifar Þorvaldur. „Gjaldið hefi ég greitt og það ríflega. Að ég hafi gerst sekur um afbrot er fráleitt.“

Þorvaldur var í málinu ákærður fyrir hlutdeild í umboðssvikum Jóhannesar Baldurssonar, fyrrverandi framkvæmdastjóra Glitnis, vegna kaupa fjárfestasjóðs innan Glitnis sjóða á skuldabréfi sem útgefið var af Stím. Hann segir að ákæra og dómur í málinu hafi byggt á fyrirfram gefinni niðurstöðu rannsakenda og að engu hafi skipt hvað kom fram við yfirheyrslur eða réttarhöld.

„Í málinu var ákært fyrir umboðssvik,“ skrifar hann. „Saksóknari hafnaði framlagningu hins eiginlega og formlega umboðs, sem við höfðum gætt að afla. Það gerði saksóknari með fulltingi dómsúrskurðar sama dómara og dæmdi í málinu, reyndi þannig að halda frá dómi þeim gögnum sem ekki studdu hans tilgátu. Engar sönnur voru færðar á ákæruefnin. Upptökum símtala er sönnuðu sakleysi sakborninga var eytt án þess að verjendur fengju sannreynt innihald þeirra. Til að bíta höfuðið af skömminni byggir saksóknari síðan fyrst og fremst á keyptum framburði uppljóstrara sem sannanlega fór ekki rétt með staðreyndir frammi fyrir dómi.“

Þar vísar Þorvaldur til lykilvitnis sérstaks saksóknara í málinu, Magnúsar Pálma Örnólfssonar, sem samdi sig frá saksókn í málinu þegar hann breytti framburði sínum og bar vitni gegn Jóhannesi, sem var yfirmaður hans hjá Glitni.

„Ég fullyrði að niðurstaðan í Stím-málinu er röng. Ég gerði ekkert rangt og myndi breyta eins í sömu aðstæðum aftur.“

Þorvaldur hefur áfrýjað dómnum til Hæstaréttar.


Tengdar fréttir

Stjórn AFE ber enn traust til Þorvalds

Þorvaldur Lúðvík Sigurjónsson, núverandi framkvæmdastjóri Atvinnuþróunarfélasgs Eyjafjarðar, var dæmdur til átján mánaða fangelsisvistar í Héraðsdómi Reykjvíkur í dag.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×