Efnahagur Kína styrkist en varla til frambúðar Guðsteinn Bjarnason skrifar 14. september 2016 12:00 Bifreiðaframleiðsla er í miklum uppgangi í Kína og hefur bílasala þar ekki mælst meiri í þrjú og hálft ár. Vísir/EPA
Efnahagslífið í Kína hefur verið að taka við sér að undanförnu. Talið er að auknum ríkisútgjöldum til framkvæmda sé þar helst að þakka ásamt mikilli sölu á húsnæði. Iðnframleiðslan jókst um 6,3 prósent í ágúst frá sama mánuði árinu áður og hefur ekki verið meiri í tvö ár. Þetta kom sérfræðingum á óvart enda hafði verið reiknað með nokkru minni aukningu. Smásala jókst síðan um 10,6 prósent í ágúst og munaði þar mest um sölu bifreiða, sem hefur ekki mælst jafn mikil í meira en þrjú ár. Sala íbúðarhúsnæðis jókst um 40,1 prósent. „Nýjustu efnahagstölur benda til þess að hagvöxtur sé að styrkjast en um leið vekja þær ugg um að fjárfestingabólan haldi áfram,“ er haft eftir Eswar Prasad í Wall Street Journal, en Prasad er prófessor við Cornell-háskóla og fyrrverandi fulltrúi Alþjóðagjaldeyrissjóðsins í Kína. Efnahagslífið í Kína hefur verið í nokkurri lægð undanfarin misseri eftir að hafa lengi notið mikils hagvaxtar. Efasemdir eru um að þessi velgengni nú muni endast lengi. „Við teljum að hagvaxtarskriðurinn muni minnka árið 2017 þegar eignamarkaðurinn verður á niðurleið og bílageirinn stendur líklega frammi fyrir offramleiðslu,“ er haft eftir hagfræðingnum Tom Rafferty á fréttavef tímaritsins Fortune.
Mest lesið Benedikt langlaunahæsti bankastjórinn Viðskipti innlent Ástandið minni á 2007 Neytendur Forstjórarnir sem möluðu gull í fyrra Viðskipti innlent Árni skattakóngur annað árið í röð Viðskipti innlent Íslendingar aldrei eytt eins miklu erlendis Neytendur Fleiri en markaðurinn leggja við hlustir Viðskipti innlent Upptaka evru gæti dregið úr efnahagssveiflum á Íslandi Viðskipti innlent Sigurður Arnar nýr framkvæmdastjóri hjá Íslandsbanka Viðskipti innlent María Klara til Athygli Viðskipti innlent Tryggðu þér betri sýnileika í gervigreindarleit og hefðbundinni leit Samstarf Fleiri fréttir Benedikt langlaunahæsti bankastjórinn Fleiri en markaðurinn leggja við hlustir Forstjórarnir sem möluðu gull í fyrra Árni skattakóngur annað árið í röð Sigurður Arnar nýr framkvæmdastjóri hjá Íslandsbanka Upptaka evru gæti dregið úr efnahagssveiflum á Íslandi Bryndís Ósk nýr framkvæmdastjóri Landssambands smábátaeigenda María Klara til Athygli Guðmundur Fertram í nýtt hlutverk hjá Coloplast Flestum líst illa á boðaða hækkun bankaskatts Þorvaldur ráðinn framkvæmdastjóri Matreiðslumeistarar frá Hilton Nordica til Matarstundar Hildur og Jóhann Valur ný í framkvæmdastjórn Bláa lónsins Reynslan sýnt að neytendur séu ekki tilbúnir Auglýsingar FM95BLÖ kostuðu Sýn tvær milljónir Seðlabankinn ætti að halda stýrivöxtum óbreyttum „Hversu langt eiga þau að keyra til að sækja póstinn sinn?“ „Biðin er dýrust“ Fjórðungi minni hagnaður hjá Kviku Spá mestu verðbólgu síðustu tveggja ára Blæs á fullyrðingar um forsendubrest og segir kaupmátt hafa aukist Auglýsa grimmt en vörurnar berast ekki: Myndir þekktra Íslendinga notaðar Skúli Hrafn tekur við Íslandssjóðum Ísfélagið eykur verulega við sig í fiskeldinu Íslandsbanki spáir 0,25 prósent hækkun stýrivaxta Gæti gjörbreytt því hvernig fólk kaupir inn Skordýr í dillinu Ekki mótfallin aðildarviðræðum væru samningsmarkmið skýrari Ráðin framkvæmdastjóri viðskiptasviðs Ísland Duty Free Hvenær á ég að greiða inn á lánið? Sjá meira