Bílaleigubílum fjölgar í takt við fjölgun ferðamanna sunna karen sigurþórsdóttir skrifar 29. febrúar 2016 13:08 Bílaleigubílum fjölgaði um 26 prósent og ferðamönnum um þrjátíu prósent á milli 2014 og 2015. vísir/daníel
Bílaleigubílum hér á landi fjölgaði um 26 prósent á milli áranna 2014 og 2015, sem er talsvert umfram það sem spáð hafði verið. Flotinn stækkar þó í takt við fjölgun ferðamanna, sem var um 30 prósent á sama tímabili.Þetta kemur fram í nýrri skýrslu Íslandsbanka um íslenska ferðaþjónustu. Þar segir meðal ananrs að fjölgun bílaleigubíla hafi verið tiltölulega lítil á milli áranna 2013 og 2014 en hafi tekið stökk árin 2014 til 2015. Stækkunar- og endurnýjunarþörfin hafi á þeim tímapunkti verið orðin það mikil að nauðsynlegt hafi verið að ráðast í miklar fjárfestingar. Þá segir jafnframt að markaður fyrir leigu til innlendra aðila fari stækkandi, þá einna helst í langtímaleigu. Þá hefur sú jákvæða þróun átt sér stað síðustu ár að ferðamannastraumurinn er orðinn jafnari yfir allt árið, og þar með útleiga á bílum yfir vetrarmánuðina orðin meiri miðað við það sem áður var. Því sé tekjustreymi í bílaleigugeiranum heilt yfir orðið jafnara og eðlilegra á ársgrundvelli. Fjölgri virkra rekstraraðila hefur aukist talsvert á milli ára, en útgefin starfsleyfi til bílareksturs voru 51 árið 2013, en á árinu 2014 voru þau orðin 151 og því hafði orðið nálægt þreföldun í fjölda á þessu tímabili. Það er nánast fullkomlega samsvarandi fjölgun ferðamanna á sama tímabili, því fjöldi þeirra hafði einnig um það bil þrefaldast. Hins vegar stóð fjöldi starfsleyfa í stað á milli 2014 og 2015 og fjölgaði aðeins um einn, úr 151 í 152. Þannig hafði fjöldi leyfishafa verið nánast sá sami frá árinu 2013 þegar þeir voru 149 talsins. Spár Íslandsbanka benda til þess að virkum rekstraraðilum muni fjölga eitthvað á árinu.Skýrsluna í heild má lesa hér.
Mest lesið Forsetavaktin: Halla Tómasdóttir kjörin forseti Innlent Fólk hafi kosið taktískt gegn Katrínu Innlent Var nálægt því að draga framboð sitt til baka Innlent Veit ekki hvað tekur við en byrjar á kaffibolla Innlent Eiríkur Ingi nýr handhafi mets sem enginn vill eiga Innlent Batt á sig klút til heiðurs Höllu Innlent Hópur ungmenna réðst á starfsmann veitingastaðar Innlent Björn lagði línuna og kjósendur svöruðu kallinu Innlent „Sigur MBA-gráðunnar, leiðtogafræða og mannauðsstjórnunar“ Innlent Ávarpar stuðningsmenn af svölunum Innlent Fleiri fréttir Þrjár efstu með 75 prósent atkvæða Niðurstöður talningar: Kjörsókn með besta móti Fyrsti karlmakinn á Bessastöðum: „Draumaútkoman varð að veruleika” Neðstu sex fengu samanlagt rúm þrjú þúsund atkvæði Dauðþreyttur Jón eyddi átta milljónum króna Ávarpar stuðningsmenn af svölunum Könnun Maskínu daginn fyrir kjördag staðfesti flugið á Höllu Tómasdóttur Halla Hrund með hjartað fullt af þakklæti Aukafréttatími Stöðvar 2 Var nálægt því að draga framboð sitt til baka Fólk streymir í Bláa lónið á ný og sér eldgosið vel „Sigur MBA-gráðunnar, leiðtogafræða og mannauðsstjórnunar“ Björn lagði línuna og kjósendur svöruðu kallinu Veit ekki hvað tekur við en byrjar á kaffibolla Stöðugt hraunflæði til tveggja átta Eiríkur Ingi nýr handhafi mets sem enginn vill eiga Kosningarnar gerðar upp Hópur ungmenna réðst á starfsmann veitingastaðar Batt á sig klút til heiðurs Höllu Fólk hafi kosið taktískt gegn Katrínu Augljóst að kjósendur vilja konu sem næsta forseta Segir allt stefna í að Halla Tómasdóttir verði forseti Fyrstu tölur úr Suðvesturkjördæmi: Minnsti munurinn á Höllu og Katrínu hingað til Katrín ávarpaði stuðningsmenn: „Ég sé ekki eftir þessu“ Telur fylgið hafa farið á dreifingu vegna fjölda frambjóðenda Fyrstu tölur úr Norðvesturkjördæmi: Halla Tómasdóttir efst Fyrstu tölur úr Reykjavík norður: Halla Tómasdóttir er efst Katrín sér ekki eftir framboði sínu Fyrstu tölur úr Reykjavík suður: Halla Tómasdóttir með flest atkvæði Telur taktíska kosningu hafa unnið gegn sér Sjá meira