StopWaitGo semja lag fyrir The Color Run Stefán Árni Pálsson skrifar 9. maí 2016 13:30 Lagið kemur út á morgun. vísir
Strákarnir í StopWaitGo hafa á síðustu vikum samið lag fyrir The Color Run by Alvogen litahlaupið sem fer fram í annað sinn á Íslandi í miðbæ Reykjavíkur þann 11. júní í sumar. Hugmyndin að því að gera lag kom eftir að StopWaitGo og Áttan ákváðu að gera lag saman og þar sem Nökkvi Fjalar í Áttunni hafði verið einn af kynnum The Color Run á síðasta ári fannst þeim tilvalið að semja lag fyrir hlaupið í ár. „Þeir hjá The Color Run á Íslandi tóku þessari hugmynd bara fagnandi og því fannst okkur alveg tilvalið að setja saman sannkallaðan sumarsmell,” segir Ásgeir Orri Ásgeirsson sem ásamt Pálma Ragnari bróður sínum og Sæþóri Kristjánssyni skipa upptökuteymið StopWaitGo. Saman hefur þríeykið samið fjöldann allan af lögum fyrir íslenska og erlenda flytjendur og skemmst er að minnast þess að þeir sömdu Eurovision lagið sem María Ólafsdóttir flutti fyrir Íslands hönd á síðasta ári, auk þess sem þeir sömdu einnig lag Friðriks Dórs sem endaði í öðru sæti í undankeppninni hér heima. „Það var þaulhugsað að vera ekki með í Euro í ár en í staðinn hefur maður tíma fyrir önnur skemmtileg verkefni eins og t.d. The Color Run,” segir Sæþór en viðurkennir að enginn liðsmaður StopWaitGo hafi tekið þátt í hlaupinu í fyrra. „Nei, við tókum ekki þátt, hvorki bak við tjöldin né í hlaupinu sjálfu en allt á bakvið þetta er í sjálfu sér mjög góður innblástur í litríkt og skemmtilegt lag. Nökkvi er búinn að lýsa því fyrir okkur hvað þetta var magnaður viðburður í fyrra og getur ekki beðið eftir að vera með aftur í sumar, rétt eins og við. Við mætum klárlega." Þemað í The Color Run by Alvogen í sumar er Tropicolor og eins og nafnið gefur til kynna bætist við suðræn hitabeltisstemning við hina miklu litagleði sem hlaupið felur í sér. Lag strákanna inniheldur sömu suðrænu stemningu og er lagið sungið af Melkorku Sjöfn Magnúsdóttur og Agli Ploder Ottóssyni úr Áttunni. „Melkorka er nýlega byrjuð að vinna með okkur og hún er hörku söngkona þannig að það var ekki úr vegi að henda henni í djúpu laugina til að leiða lagið. Þetta er frumraun hennar á tónlistarsviðinu og það er ekki að heyra á henni að hún sé að syngja í fyrsta sinn,” segir Egill Ploder. „Svo syngur hún líka bara svo mikið betur en ég." Lagið fer í spilun á útvarpsstöðvum landsins í vikunni en við fengum að kíkja inn og fylgjast með upptökum á dögunum.
Mest lesið Ung og upprennandi: „Pabbi segir mér alveg að hætta þessu“ Lífið „Það er smá töffari í mér“ Tíska og hönnun Douglas gengst við enn einu framhjáhaldinu Bíó og sjónvarp Fangelsi undir Vatnajökli Leikjavísir Simmi og Auddi mættust aftur á skjánum Lífið Vinsældirnar skipti miklu máli fyrir arfleifð Johns Snorra Lífið Lækna-Tómas og Ármann skemmtu sér á safninu Menning Eva Marie Saint er látin Lífið Húsgagnadagar hafnir í JYSK með allt að 40% afslætti Lífið samstarf Minntist pabba síns Johns Snorra: „Að sjálfsögðu hringdi ég í pabba!“ Lífið Fleiri fréttir Vinsældirnar skipti miklu máli fyrir arfleifð Johns Snorra Simmi og Auddi mættust aftur á skjánum Eva Marie Saint er látin Ung og upprennandi: „Pabbi segir mér alveg að hætta þessu“ „Það væri ekki hægt að skrifa þetta handrit“ Minntist pabba síns Johns Snorra: „Að sjálfsögðu hringdi ég í pabba!“ Dagbók lögreglu: Próflaus eineygður ökumaður flúði af vettvangi Grétu af gleði þegar þær hittust loksins Stjörnurnar þefuðu á Kjarval Ice Spice og Millie skelltu sér í pottinn Hvað veistu um... íslenska hönnun? Funheit í fimm ára afmæli Engum brögðum beitt í útgáfuhófi Bragðs Tendra friðarsúluna í tuttugasta sinn Elegant herrar selja perlu í 101 Tískudrottningar fögnuðu kærkominni opnun Dorrit um skilnaðinn: „Líf mitt er algjörlega á hvolfi“ Barnsfaðir Gypsy Rose fannst látinn Stjörnulífið: „Lukka lífs míns að vera gift þessum“ Fæddist á Íslandi en þurfti áratugi til að fá það staðfest Fyndnustu dýralífsmyndir ársins Ekki átakalaust að breyta rótgrónu félagi Ástæða fyrir því að þau fóru ekki hátt með sambandið Hágrét í rúminu þegar allur peningurinn var búinn Krakkatía vikunnar: Eurovision, Harry Potter og Mr. Beast Líður betur eftir að hún þurfti að þjóta upp á spítala í miðri útsendingu Haustbingó Blökastsins í beinni Hemmi Gunn hjálpaði Hilmari og Birni Braga að svindla Segir Ríkissjónvarpið bregða fyrir sig fæti Unglingavinnan var tískupallurinn í París Sjá meira