Vilja opna Laundromat í efnalaug á Laugarásvegi Bjarki Ármannsson skrifar 26. apríl 2016 16:05 Eigandi kaffihússins Laundromat við Austurstræti hefur fest kaup á húsnæði á Laugarásvegi í Reykjavík þar sem til stendur að opna nýjan stað. Vísir/Pjetur
Eigandi kaffihússins Laundromat við Austurstræti hefur fest kaup á húsnæði á Laugarásvegi í Reykjavík þar sem til stendur að opna nýjan stað. Athygli vekur að húsnæðið hýsti áður efnalaugina Kötlu til margra ára en Laundromat-keðjan, sem telur þrjá staði í Kaupmannahöfn og einn í Reykjavík, er þekkt fyrir að bjóða upp á aðstöðu fyrir viðskiptavini til að þvo af sér föt. „Það er svosem skemmtilegt að halda áfram með þannig starfsemi í húsinu, það er svona ákveðin tenging,“ segir Jóhann Friðrik Haraldsson, eigandi staðarins á Íslandi. „En við erum samt sem áður að koma með nýjar vélar. Það var gömul strauvél sem við vorum að hugsa um að nota í „decor“ en svo fór að hún var látin víkja.“Líkt og mbl.is greindi frá fyrr í dag, er búið að sækja um framkvæmdaleyfi og vonast Jóhann til þess að hægt sé að opna í júní. Hann segir staðsetningar í Hafnarfirði, Grafarvogi og Breiðholti meðal annars hafa komið til greina og að það verði ábyggilega tekið til skoðunar að opna fleiri staði ef reksturinn í Laugardalnum gengur vel. „Frekar en að vera með aðra miðbæjarstaðsetningu, þá ákváðum við að opna í úthverfi og byrja í smærra húsnæði en við erum með núna,“ segir Jóhann. „Þetta er samt svipað húsnæði, á tveimur hæðum. Það verður þvottahús og barnahorn í kjallara og eldhús, bar og sæti á jarðhæð.“ Jóhann tók við rekstrinum í desember í 2013 en félagið sem áður hafði séð um reksturinn, Laundromat Reykjavík ehf., var stuttu síðar tekið til gjaldþrotaskipta. „Reksturinn sem slíkur hefur alltaf svosem staðið undir sér,“ segir Jóhann. „Þeir sem áttu þetta voru í öðrum rekstri líka og það var kannski það sem sligaði reksturinn.“
Mest lesið Verði að hætta að benda hver á annan Viðskipti Áhrifavaldur losar sig við steinefni Viðskipti innlent Ekki króna í þrotabúi Lucky records Viðskipti innlent Ímyndaðu þér ef yfirmaðurinn væri eins og Trump Atvinnulíf Innkalla tengiltvinnbíla vegna eldhættu Neytendur ESB framlengir sérlausn Íslands vegna losunarheimilda Viðskipti innlent „Þessi framlenging var ekki sjálfgefin“ Viðskipti innlent Greiðsluáskorun Samstarf Úrvalsdekk hönnuð fyrir Tesla og hátækni rafbíla nú fáanleg á Íslandi Samstarf Allt að 35% ódýrari leigubílaferðir með Hopp Samstarf Fleiri fréttir Laun hækka umfram verðbólgu Starbucks kemur í stað Kaffitárs „Nú verða allir að líta í eigin barm“ Verðbólga eykst enn Aðeins 50 hafa nýtt sér meðeignarúrræðið: „Þetta eru fimmtíu sem hafa komist í eigið húsnæði“ Kaupverð undir 80 milljónum í 60 prósent kaupsamninga Selur eftir þrjátíu og fimm ára rekstur Vill tvöfalda umsvif Samkeppniseftirlitsins Atvinnuleysi fimm prósent í júní Sviptingar í stjórn Amaroq Félag Höllu fær fimmtíu milljónir í arð Icelandair tapaði fjórum milljörðum en samt með mettekjur Crowberry fjárfestir í Jónsbók Fengið 375 milljónir endurgreiddar vegna Trump-tolla Áfram lækkar íbúðaverð að raunvirði Fleiri færðu lögheimili í ár Fjögurra milljarða hagnaður hjá Emblu Medical Fannar stofnar ráðgjafafyrirtæki Greenfish og samtök evrópskra útgerða kortleggja hrossamakríl Áhrifavaldur losar sig við steinefni „Nauðsynlegt að fá varanlega lausn“ Ekki króna í þrotabúi Lucky records „Þessi framlenging var ekki sjálfgefin“ ESB framlengir sérlausn Íslands vegna losunarheimilda Daníel Þór frá Kviku til Reita Húsnæðislán séu síðasta vígið en það muni falla Valgeir Örn af skjánum til Landsnets Þrjú ný í eigendahópinn á BBA//Fjeldco Ætla að opna verslunarkjarna á Korputúni Eru greiðsludreifingar virkilega jafn hentugar og allir segja? Sjá meira