Nýtt og spennandi starf Gunnþóra Gunnarsdóttir skrifar 5. mars 2016 11:15 “Það er dásamlegt að vera hér á Hólum en nú verð ég að færa mig um set,” segir Guðrún Þóra. Mynd/Úr einkasafni „
Ég held að það blasi við öllum að þörf er á aukinni þekkingu í ferðamálum á Íslandi, atvinnugrein sem hefur ört vaxandi efnahagsleg áhrif, áhrif á umhverfið og samfélagið í heild. Við höfum ekki búið svo lengi í sambýli við ferðaþjónustu að við erum á hverjum degi að takast á við eitthvað nýtt,“ segir Guðrún Þóra Gunnarsdóttir lektor sem tekur við forstöðu Rannsóknarmiðstöðvar ferðamála innan skamms af Kristínu Sóleyju Björnsdóttur. Þrír háskólar reka Rannsóknarmiðstöð ferðamála, Háskólinn á Akureyri þar sem miðstöðin er vistuð, Háskóli Íslands og Háskólinn á Hólum. Einnig eiga fulltrúar frá Samtökum ferðaþjónustunnar og Ferðamálastofu fulltrúa í stjórn að sögn Guðrúnar Þóru. „Þetta er vettvangur akademíunnar og greinarinnar til að sinna rannsóknum á sviði ferðamála og forstöðumaður á að leiða það starf og efla.“ Rannsóknarmiðstöðin rekur upphaf sitt til 1999. Guðrún Þóra telur hana hafa haft ótvírætt gildi, meðal annars fyrir stefnumótun bæði á lands-og svæðavísu. Hún segir mörg og ólík úrlausnarefni blasa við í rannsóknum, í samstarfi akademíunnar, atvinnulífsins og opinberra stofnana. „Við erum ört að þroskast í umræðu um ferðamál, enda um tiltölulega unga atvinnugrein að ræða og áttum okkur orðið á að það er ekki keppikefli að ferðamannafjöldinn sé sem mestur. Það er mikið um ferðaþjónustu fjallað í fjölmiðlum miðað við fyrir fimm árum og nú eru bankarnir farnir að gefa út veglegar skýrslur um hana og halda fundi. Hún er allt í einu orðin lykilatvinnugrein.“ Guðrún hefur búið og starfað á Hólum í tvo áratugi. „Ég var deildarstjóri ferðamáladeildar, setti hana á flot og hef verið hér sem lektor síðan 2009. Ég lít á þann feril sem góðan undirbúning undir þetta nýja starf. Hér á Hólum er dásamlegt að vera en nú verð ég að færa mig um set.“
Mest lesið Hryllingur og hiti á klúbbnum Lífið „Götustelpan“ glöð Lífið „Ég fæddist nefnilega á endalausu breytingarskeiði“ Lífið samstarf Hættur með fimmtíu árum yngri kærustunni Lífið Stjörnurnar fögnuðu flúruðum Maroni Tónlist Ekki gálgadans heldur hæ dúddelí dæ Gagnrýni Fær nafn átta árum eftir opinberun Leikjavísir Stefna á gullið með tíu tonn í farteskinu Matur Hinsegin ást í loftinu Lífið „Ég er enn að venjast andlitinu á mér“ Bíó og sjónvarp Fleiri fréttir „Götustelpan“ glöð Hryllingur og hiti á klúbbnum Hvernig fílarðu böndin á Airwaves? Fundu ástina á Domino's Klöppuðu fyrir ofan höfuð á Frikka Dór Ellý er röddin sem þúsundir manna heyra á hverjum degi Hinsegin ást í loftinu Hættur með fimmtíu árum yngri kærustunni Tæplega þriggja áratuga löng gönguferð á enda Hvað veistu um… eyjar við Ísland? Íslensk listakona sló í gegn í Miami Safna í minningu Johns Snorra fyrir munaðarlaus börn Ólafía Þórunn orðin þriggja barna móðir „Erum bara vinir“ Áhrifavaldur lést í mótorhjólaslysi Útúrkókaður lögreglumaður stökk á mann sem var að slá garðinn um nótt Arnór Sig kominn á fast Stjörnulífið: Fáklædd og frjáls Mistök að hafa klætt sig upp sem heimilislausa Robert Irwin nýtti fríið og ferðaðist um Ísland Vonlaust að gagnrýna vini sína Luku þrjátíu ára hjónabandi með skilnaðarferð Krakkatía vikunnar: Hrekkjavaka, þjóðtrú og goðafræði Hnýta í Trump í nýrri herferð: „Velkomin til skítalands“ Níutíu og einn meistari útskrifaðist Andri Snær keppir við Elizabeth Holmes Barn kom í heiminn á Vesturlandsvegi: „Þá er hún bara komin á fjóra fætur í Nissan Leaf-inum okkar“ Hrekkjavökukort sem sé drifið áfram af samfélaginu Nýjar upplýsingar um morðið á Hrafnhildi Lilju átján árum síðar Fréttatía vikunnar: Brasilía, Ofurskálin og Pútín Sjá meira
Barn kom í heiminn á Vesturlandsvegi: „Þá er hún bara komin á fjóra fætur í Nissan Leaf-inum okkar“