Rokkað í kirkjunni Viktoría Hermannsdóttir skrifar 3. apríl 2016 09:00 Messan verður með rokkuðu ívafi þar sem verða spiluð þekkt rokklög með trúarlegum textum. Hér má sjá hópinn sem kemur að messunni. Fréttablaðið/Pjetur
Tónlist er menningarleg umgjörð en boðskapur kirkjunnar er bara einn. Það er gaman að blanda þessu saman,“ segir Séra Kjartan Jónsson sóknarprestur í Ástjarnarkirkju, Hann ásamt Matthíasi V. Baldurssyni tónlistarstjóra standa fyrir rokkmessu í Víðistaðakirkju á sunnudag. Þar verða flutt klassísk rokklög með íslenskum kristilegum textum sem hljómsveitir eins og Guns´n´roses, U2, Janis Joplin, Whitesnake, Bon Jovi og Nazareth hafa gert fræg. Einnig verða fluttir sálmar úr sálmabókinni í rokkuðum útgáfum. Kjartan hefur áður staðið fyrir óhefðbundnum messum þar sem tónlistin fær að njóta sín. „Þetta byrjaði meðU2 messu fyrir fimm árum og við héldum hana tvö ár í röð. Síðan höfum við mánaðarlega verið með tilraunamessur þar sem eru mismunandi þemu.“ Kjartan segir þetta hafa mælst vel fyrir. „Við erum að reyna prófa eitthvað nýtt til þess að höfða til fleiri. Fólk er rosalega ánægt með þessar tilraunir og það hefur verið vel mætt.“ Hann segist hafa verið spurður hvort ekki komi til greina að halda diskó og rappmessur. „Það kemur vel til greina. Ég er alveg til í að prófa mismunandi tónlistarform. Tónlist er alltaf menningarlega skilin og engin tónlist er guði meira þóknanleg en önnur. Ég er opinn fyrir því að prófa þetta en slæ ekkert af boðskapnum. Við höfum verið með texta sem eru svo góðir að þeir eru ekkert síðri en í sálmabókinni. Textar með trúarlegan boðskap og tengjast við lifað líf nútímans.“ Í messunni kemur fram kór Ástjarnarkirkju og hljómsveit skipuð þeim Friðriki Karlssyni, Sigurgeiri Sigmundssyni, Matthías V. Baldurssyni, Þorbergi Ólafssyni og Þóri Rúnari Geirssyni. Agnes M. Sigurðardóttir biskup prédikar í messunni sem hefst klukkan 20 á sunnudagskvöld.
Mest lesið Tíu hlutir sem þú vissir ekki um Hildi Björnsdóttur Lífið Myndaveisla: Tárin streymdu þegar Áslaug kvaddi Lífið Matthildur Margrét og Sigurður Hrannar eiga von á barni Lífið Áslaug kvaddi í hvítu útskriftardragtinni Tíska og hönnun Ágústa Eva setur 170 milljónir á einbýlishúsið í Hveragerði Lífið 50+: Erfiða tengdamamman og sonurinn á milli Áskorun Valin versti ljósmyndari heims Lífið Manst þú eftir þessum sígildu sumarleikjum? Lífið „Við notum þetta orð yfir sundið, kaffið, og ástina okkar“ Lífið Uppgötvuð á götum Barcelona Lífið Fleiri fréttir Uppgötvuð á götum Barcelona Hvað veistu um... Snæfellsnes? Leikritið eigi sérstaklega erindi nú Manst þú eftir þessum sígildu sumarleikjum? Matthildur Margrét og Sigurður Hrannar eiga von á barni „Við notum þetta orð yfir sundið, kaffið, og ástina okkar“ Getur hermt fullkomlega eftir tugum fugla Myndaveisla: Tárin streymdu þegar Áslaug kvaddi Valin versti ljósmyndari heims Tíu hlutir sem þú vissir ekki um Hildi Björnsdóttur Vegglistaverkið í Vesturbæ stækkað Stjörnufans í eins árs afmæli „Rosaleg skömm fyrir mig á sínum tíma“ Ágústa Eva setur 170 milljónir á einbýlishúsið í Hveragerði Mætti á 95 ára Chevrolet og tók sæti á þingi Léttist um átján kíló á ógnarhraða með hjálp gervigreindar Bar upp bónorðið á Bæjarins beztu Krefst þess að Applegate haldi sig fjarri henni Allir héldu Michelin-stjörnunni Stjörnukokkar landsins gætu fengið fleiri Michelin-stjörnur Halla T og Björk í stuði á Listahátíð Efnir til styrktarlottós: Hefur glímt við krabbamein nánast alla ævi „Heima beið hvolpur sem ég gæti alveg vanist“ Stóð uppi sem ófrísk ekkja 29 ára gömul Stjörnulífið: Þakklátur „LadyBoy ársins“ Dua Lipa gekk að eiga sinn heittelskaða Áslaug býður í partý Matt Brown er látinn „Sögulegt augnablik“ fyrir þýska klúbbamenningu Krakkatía vikunnar: Kóngur, kýr og mávagarg Sjá meira