Sólveig Eva á Comic Con Sólveig Gísladóttir skrifar 21. október 2016 15:00 Sólveig Eva og Jon Glaser á Comic Con í New York á dögunum.
Sólveig Eva Magnúsdóttir býr og starfar sem leikkona í New York. Hún segir bransann oft erfiðan en hún nýtur þess að þróa sig áfram sem leikkonu. Nýjasta verkefni hennar er hlutverk í sjónvarpsþáttunum Jon Glaser Loves Gear eftir grínistann Jon Glaser. „Ég kalla mig Eva Sólveig hérna úti því það er auðveldara fyrir New York búa að bera Evu nafnið fram,“ segir Sólveig Eva glaðlega en sjálf eru hún uppalin í Mosfellsbæ og Reykjavík. Leiklistaráhugann hefur hún haft frá blautu barnsbeini og í raun segir hún hann mjög ómeðvitaðan. „Leiklist er stöðugt í kringum okkur. Við lærum mannlega hegðun og að eiga við tilfinningar og hlutverk í samfélaginu. Það var aldrei stund sem ég ákvað „jú ég bara verð að verða leikari,“ maður bara lék sér alla ævi og datt aldrei í hug að hætta því,“ segir hún glaðlega. Hún minnist þess að hafa sett upp leikrit með höttum af ömmu og skóm af mömmu. „Svo rukkaði ég aumingja fjölskyldu mína um 50 krónur fyrir að sitja í gegnum spunasýningar,“ segir hún og hlær. Sólveig Eva reynir fyrir sér sem leikkona í New York.Mynd/David NolesGat ekki beðiðSólveig Eva fór í Borgarholtsskóla þar sem er ríkt leiklistarstarf og varð fljótlega ákveðin í að sækja um leiklistarskóla eins fljótt og auðið væri. „Þess vegna ákvað ég líka að reyna fyrir mér í London því þar gat ég farið yngri í áheyrnarprufur en hér heima,“ segir Sólveig Eva sem fór í sína fyrstu áheyrnarprufu sextán ára. „Sá sem sá um prufuna hristi hausinn. Hann var indæll og leyfði mér að sýna, en sagði mér að ég væri of ung. Ég skil betur í dag að leiklist tekur ákveðinn þroska og öll reynsla kemur sér vel.“Vill skapa eigin tækifæriSólveig Eva var einnig spennt fyrir því að geta leikið á ensku jafnt sem íslensku. Hún fór því aftur út átján ára. „Ég var búin að raða áheyrnarprufum upp fyrir ýmsa frábæra skóla, en sú fyrsta var fyrir Rose Bruford þar sem ég var spurð hvað væri mér mikilvægt og ég sagðist vilja geta skapað eigin tækifæri, eigin verk, og geta skilið ferlið í kringum leikarann til að verða sjálfstæð. Mér var bent á evrópska leikhúsfræði og eftir að hafa komist inn hætti ég við allar aðrar áheyrnarprufur. Þessi nálgun var rétt fyrir mig.“ Sólveig Eva var mjög ánægð með val sitt. „Evrópska leikhúsfræðibrautin (BA European Theatre Arts) leggur áherslu á að vinna líkamlega með efnið. Það er unnið mikið með ólíka leikhústækni og lögð áhersla á líkamlegan spuna, sjálfstæði og samstarf,“ lýsir Eva Sólveig og segir þurfa ákveðinn aga til að læra á þennan hátt. „Það besta við brautina var að ég kynntist Bergdísi Júlíu, Henriette Kristensen og Önnu Korolainen, en saman stofnuðum við leikhópinn Spindrift Theatre. Við unnum til dæmis með yfir 30 hæfileikaríkum listamönnum í Tjarnarbíói árið 2015 með sýningunni okkar Carroll: Berserkur, með styrk Evrópu unga fólksins og Reykjavíkurborgar.“Fyrirsætan Sólveig Eva.Heldur áfram að læraSólveig Eva hlaut árið 2012 John Gielgud-styrk og segir það hafa verið mikinn heiður. „Það er ofboðslega hjálplegt og hvetjandi að hljóta styrk sem kemur frá meistara eins og Gielgud, og meðmæli og trú kennaranna sem hjálpuðu í Rose Bruford. Það kveikir líka neista að hugsa um getu og leikgleði gömlu bresku leikaranna.“ Sólveig Eva útskrifaðist árið 2013 en heldur áfram að þróa sjálfa sig. „Ég fer á námskeið þegar ég hef ráð á því, enda sterkur agi í bransanum hér að halda alltaf áfram að æfa sig utan sviðsljóssins,“ segir hún og nefnir trúðanámskeið hjá LAMDA, náttúruvædda leikarann hjá Staniewski í Póllandi, físískt leikhús Meyerhold á Ítalíu, natúrisma í Eistlandi. „Hér í New York hef ég lært hjá Stellu Adler og er nú vikulega með Terry Schreiber og spunaskólanum Upright Citizen’s Brigade.“Spennandi tilvera í New YorkSólveig Eva flutti til New York með eiginmanni sínum, Gísla Karli Ingvarssyni, sem einnig er leikari. „Gísli Karl vann græna kortið og ég hafði alltaf verið mjög spennt að koma hingað. Ég fann strax að atvinnumarkaðurinn hér er mjög spenntur fyrir því að finna nýja einstaklinga og hér er ógrynni af bransafólki sem er óþreyjufullt að skapa saman. Það heillar mig upp úr skónum.“ Hún viðurkennir þó að það hafi verið dálítið sjokk að venjast bransanum í New York og að fylgjast með því hvernig hlutverk eru í boði eftir kyni, aldri og kynþætti. „Til dæmis er hlutfall tilboða og hlutverka sem krefjast nektar gífurlegt fyrir ungar konur, og oft auglýst fyrir hlægileg laun. Svo gapir maður bara yfir sumum hlutverkalýsingum og þarf að passa sig að missa ekki vonina.“Lífleg leiklistarsenaFramboðið á hlutverkum í New York er töluvert. „Hér er hægt að velja milli leikhúss, sjónvarps og kvikmynda. Það sem ég hef helst rekið mig á er að maður þarf að vera félagi í Screen Actors Guild og Equity til að geta sótt um mörg af þeim hlutverkum sem eru í boði. Biðtíminn eftir aðild er langur en núna í desember verð ég loks orðin fullgildur meðlimur í þeim báðum og það er góð tilfinning fyrir næsta ár.“ En hvernig hlutverkum sækist hún eftir? „Handritum sem fá hjartað til að slá, með talsmáta sem mér finnst trúverðugur og sem kveikir á túlkun sem mér finnst ég fær um eða er hrædd við. En aðallega samstarfsmenn með sterka sýn, leikstjóra sem vita hvað þeir vilja fá. Hlutverk ein og sér geta auðveldlega týnst án þessa.“Sólveig Eva er gift leikaranum Gísla Karli.Saman í leiklistinniÞau Gísli Karl kynntust í gegnum sameiginlegan vin sem bað þau um að gera stuttmynd þegar Sólveig Eva hafði nýlokið við fyrsta ár sitt í leiklistinni. „Gísli var búinn að vera virkur í leiklist í Versló. Við urðum strax yfir okkur skotin og bestu vinir, og það sem heillaði mig mest var að hann var alltaf til í að leika með mér. Sama hversu litlir leikirnir voru.“ Hún segir frábært að búa með manni sem veit út á hvað hennar eigið starf gengur. „Það er frábært að víkka sjóndeildarhringinn og reynslubankann með einhverjum sem er að elta sömu hlutina, og að geta treyst einhverjum að vera hreinskilinn og gagnrýninn en ekki bara elskulegur. Það er nauðsynlegt að geta fengið faglegt álit á prufum frá einhverjum sem skilur út og inn um hvað maður er að tala. Svo er ekki verra hvað hann er hæfileikaríkur og alltaf gaman að horfa á hann á sviði.“Búa í ActoriaSólveig Eva og Gísli Karl búa í því sem hún kallar „trendí“ hlutanum af Queens, í Astoria. „Það er stundum kallað Actoria því hér býr ógrynni af leikurum. Hér eru frábærar samgöngur, kaffihús, barir og veitingahús. Við fundum fína íbúð frá því fyrir stríð og sjáum glytta í háhýsi úr eldhúsglugganum. Í kjallaranum er undarlegt kjarnorkubyrgi,“ segir hún og hlær.Jon Glaser Loves GearNýjasta verkefni Sólveigar Evu er hlutverk í grínþáttunum Jon Glaser Loves Gear sem unnir voru fyrir grínsjónvarpsstöðina TruTV. „Jon Glaser er grínisti sem hefur unnið í fjölda ára sem höfundur hjá Conan O’Brien og hefur leikið í til dæmis Parks and Recreation, Inside Amy Schumer, Girls og Trainwreck. Grínþættir eftir hann, Delocated og Neon Joe, hafa sérstæðan húmor og sterkan aðdáendahóp. Hann er indælasti maður í heimi og þess vegna finnst mér sérstaklega gaman hvernig húmorinn hans kemur sjaldnast út í blíðum bröndurum heldur stinga oft og pína mann með vandræðalegri eða óviðeigandi hegðun, “ segir Sólveig Eva. Þátturinn gerir gys að fólki sem fær áráttu fyrir tækjabúnaði, golfbúnaði, veiðibúnaði, útilegubúnaði. „Brandarinn sprettur úr sannsögulegri ást Jons á slíkum búnaði,“ útskýrir hún. „Jon leikur mann í raunveruleikaþætti sem er að kynna allan mest spennandi tækjabúnað sem hann kemur höndum yfir. Eiginkona hans, sem leikin er af Miriam Tolan, þverneitar að taka þátt enda löngu komin með nóg af áráttunni og því tekur hann til þeirra ráða að ráða unga evrópska skvísu til að leika hana í staðinn.“ Og það er hlutverkið sem Sólveig Eva leikur en hún kemur fram í sjö af tíu þáttum.Margt framundanUndanfarið hefur Sólveig Eva verið að kynna þættina og fyrir stuttu tóku leikararnir þátt í Comic Con í New York. „Þættirnir verða svo sýndir í sjónvarpinu þann 26. október.“ Leikkonan vinnur nú einnig rannsóknarvinnu fyrir næstu sýningu Spindrift-hópsins. „Við erum að taka viðtöl við karlmenn með ólíkan bakgrunn og reynum að komast að karllægri lífsreynslu í samfélaginu. Viðtölin verða svo nýtt í gegnum svokallað verbatim eða „orð fyrir orð“ leikhúsform en í þessu tilviki munu konur tjá sögur þessara karlmanna, og við erum forvitnar að sjá hvað gerist við slíka meðferð,“ segir Sólveig Eva og er spennt fyrir framhaldinu, bæði í lífi og list.
Mest lesið Bubbi hrærður: Trúir því að Níu líf muni á endanum vakna að nýju Lífið Arnar Þór selur Arnarneshöllina Lífið Hvers vegna tölum við um bongóblíðu? Lífið Fréttatía vikunnar: Skúlptúrar, ráðherrarifrildi og EM Lífið Torfbærinn í Vesturbænum sem stóð fram á níunda áratuginn Lífið Fékk skyndihugmynd og er nú í blómahafi heima fyrir Lífið Líður bókstaflega óstöðvandi í góðu fitti Tíska og hönnun Heiður Ósk og Davíð eru nýtt par Lífið Mömmu þykir ekki vænna um Friðrik Dór en Jón Ragnar Lífið Tólf klukkustunda gjörningur í Hörpu í dag Lífið Fleiri fréttir Hvers vegna tölum við um bongóblíðu? Tólf klukkustunda gjörningur í Hörpu í dag Torfbærinn í Vesturbænum sem stóð fram á níunda áratuginn Bubbi hrærður: Trúir því að Níu líf muni á endanum vakna að nýju Fréttatía vikunnar: Skúlptúrar, ráðherrarifrildi og EM Arnar Þór selur Arnarneshöllina Á 90 þúsund servíettur í Hafnarfirði Heiður Ósk og Davíð eru nýtt par Fékk skyndihugmynd og er nú í blómahafi heima fyrir Einstakur Fender Telecaster í Hljóðfærahúsinu Fólk ferðist alla leið frá Ástralíu til að sækja Víkingahátíðina Tignarleg miðbæjaríbúð Helgu Ólafs til sölu Íslensk lopapeysa flutt milli heimsálfa vegna mestu eftirsjár ævinnar Breytti hænsnahúsi í verkstæði sitt Teknóhátíð á Radar alla helgina Enn neisti hjá Bad Bunny og Kendall Jenner Banjóleikari frá Nashville með Baggalúti og Sinfó Hugsar hlýtt til áranna í Los Angeles Aníta Briem og Hafþór eiga von á barni Selur húsið í Garðabæ eftir kaupin á glæsihúsi Ingu Lindar Sjö daga afmælissæla í Reykjanesbæ Þrjú hundruð börn reyna að dorga furðulegasta fiskinn Bara 33 ára og lífið á eftir að koma í ljós Daði keypti hús Jóns Jónssonar með mömmu sinni á yfirverði „Ég væri ekkert án þeirra“ Gekk í tvo tíma að flugvellinum til að komast hjá leigubílagjaldi Friðrik Ómar setur Reykhúsið aftur á sölu og lækkar verðið Linda lætur sér Lindarbraut lynda Áttaði sig á stöðunni á fundi með Höllu Ungt athafnapar keypti hönnunarhús Margrétar í Garðabæ Sjá meira