Deilan um Salek gæti endað fyrir héraðsdómi Óli Kristján Ármannsson skrifar 2. febrúar 2016 07:00 Loftmynd af Akranesi. vísir/GVA
Verkalýðsfélag Akraness (VLFA) skrifar ekki undir kjarasamning við sveitarfélögin þar sem svonefnt SALEK-samkomulag er með sem fylgiskjal, segir Vilhjálmur Birgisson, formaður VLFA. Félagsdómur vísaði fyrir helgi frá máli verkalýðsfélagsins á hendur Sambandi íslenskra sveitarfélaga þar sem þess var krafist að SALEK-samkomulagið yrði ekki hluti af kjarasamningi félaganna. Boðað hefur verið til samningafundar í kjaradeilu VLFA og sveitarfélaga hjá ríkissáttasemjara eftir hádegi í dag, en þar segir Vilhjálmur koma í ljós hvort sveitarfélögin standi enn við þá kröfu sína að nýjum kjarasamningi fylgi viðauki um SALEK-samkomulagið. Fari svo sé einboðið að vísa deilunni til almennra dómstóla.Vilhjálmur Birgisson formaður VLFA„Grundvallaratriðið er að ef við myndum samþykkja þetta rammasamkomulag með kjarasamningnum hjá okkur, þá er það orðið ígildi kjarasamnings,“ segir hann. SALEK-samkomulagið geri svo ráð fyrir að launabreytingar í öðrum kjarasamningum, sem félagið eigi eftir að gera, verði með þeim hætti sem kveðið er á um í samkomulaginu. „Og við getum ekkert fallist á það að við ákveðum í þessum samningi hvernig við göngum frá öðrum kjarasamningum sem við eigum eftir að gera. Það bara stenst enga skoðun.“ Vilhjálmur segir að fyrir Félagsdómi hafi Samband íslenskra sveitarfélaga breytt „algjörlega um kúrs “og sagt SALEK ekki vera skuldbindandi, þótt félagið hafi lagt fyrir dóminn gögn um annað. Hvort sú stefnubreyting standi komi í ljós á fundinum í dag. Sé svo standi ekkert í vegi fyrir undirritun samninga. „Nei nei, þetta er orðið þýðingarlaust plagg af þeirra hálfu, bara einhver markmið og annað slíkt. Þessi stefnubreyting þeirra gerir að verkum að það var gengið að okkar kröfum.“
Mest lesið Fjölmiðla- og auglýsingabransinn: „Jú, jú, það er alveg að koma nýtt búmm!“ Atvinnulíf Sky ætlar að festa kaup á ITV Viðskipti erlent Fluttu eitt prósent færri farþega en í júní á síðasta ári Viðskipti innlent Afkoma ríkisins neikvæð um 182 milljarða Viðskipti innlent Ódýrast að tjalda á Vesturlandi Neytendur Neytendastofa tæklar bílastæðamálin Viðskipti innlent Kreditkortavandi hjá Landsbankanum leystur Neytendur Kristjana nýr framkvæmdastjóri Saffran Viðskipti innlent Fá AA- í einkunn Viðskipti innlent Spá þriggja prósenta verðbólgu á næsta ári Viðskipti innlent Fleiri fréttir Fluttu eitt prósent færri farþega en í júní á síðasta ári Fá AA- í einkunn Afkoma ríkisins neikvæð um 182 milljarða Neytendastofa tæklar bílastæðamálin Kristjana nýr framkvæmdastjóri Saffran Loka Te og kaffi á Suðurlandsbraut Eitt app fyrir ferðamenn til að skemmta sér og forðast hættur Of snemmt að draga fram heykvíslar Alvarlegt að forstjóri Samkeppniseftirlitsins taki undir með ASÍ og FÍB Fríverslunarsamningur EFTA og Víetnam í höfn Hægt að ráðstafa séreign í október frá og með 1. janúar Samkeppniseftirlitið hugsi yfir verðbreytingum olíufélaganna Drangar kaupa Brauð & Co Gul viðvörun hjá öllum og fjörutíu prósent á rauðu Mango opnar í Kringlunni Landsbankinn annast skráningu Styrkáss Má gefa börnunum sínum peninga? Vinna að því að fella niður kolefnisgjöld á strandsiglingar „Lukkuhjól“ Byko talið villandi fyrir neytendur Nýr framkvæmdastjóri Kalon Áfengisgjaldið tvöfalt hærra en veiðigjaldið en varla rætt Bera sig eftir viðskiptasamböndum Bakkusar „Maður er reiður og sár“ Verðhækkanirnar vonbrigði Guðrún Gígja nýr yfirlögfræðingur hjá Fossum Þórunn og Svali til Íslandsbanka Verðbólga eykst lítillega Ingólfur kaupir Ísbúð Vesturbæjar Vara við aðskotaefni í tei Bryndís frá Danmörku til Ölgerðarinnar Sjá meira