Þakklát fyrir líðandi stund Gunnþóra Gunnarsdóttir skrifar 6. febrúar 2016 14:00 „Við erum 30 manns af tæplega 15 þjóðernum að útskrifast úr PLD-náminu,“ segir Hrafnhildur. Mynd/Úr einkasafni „
Þetta er frábær helgi. Að útskrifast með PLD-gráðu í stjórnun frá einum besta viðskiptaháskóla í heimi á síðasta degi sem ég er 39 ára, fljúga heim og fagna fertugsafmæli með fjölskyldunni og mínum nánustu er besta afmælisgjöfin,“ segir Hrafnhildur Hafsteinsdóttir verkefnastjóri glaðlega. Skólinn sem hún talar um er IESE Business School. Hún hefur verið í fjarnámi í honum undanfarið ár með vinnu við verkefnastjórnun MBA-námsins í Háskólanum í Reykjavík, þar sem hún hefur starfað í átta ár. Hún hefur líka unnið mikið sem markþjálfi eftir útskrift úr þeim fræðum árið 2014. „Það sem mér finnst svo heillandi við markþjálfun er að vinna með fólki og sjá markmið og drauma rætast,“ lýsir hún. Hrafnhildur býr við Meðalfellsvatn í Kjós með manni sínum Bubba Morthens og dætrunum þremur, Ísabellu tíu ára, Dögun sex ára og Aþenu þriggja ára. Nú stendur hún á tímamótum og lítur um öxl. „Ef það er eitthvað sem lífið hefur kennt mér þá er það að allt er breytingum háð. Það eru hamingjustundir og gleði en líka stundum erfiðir tímar. Það sem ég hef reynt að tileinka mér í lífinu er að vera til í núinu, þakklát fyrir líðandi stund og alla þá hversdagslegu litlu hluti sem maður tekur stundum sem sjálfsagðan hlut,“ segir hún. Stærsta og besta gjöfin sem Hrafnhildur kveðst hafa fengið er að fá að vera mamma sólargeislanna í lífi sínu, Ísabellu, Dögunar og Aþenu. „Það er ekkert sem gleður mig meira en að fá að fylgjast með dætrunum vaxa og dafna og sjá kraftaverkin gerast í lífi þeirra.“
Mest lesið Hryllingur og hiti á klúbbnum Lífið „Götustelpan“ glöð Lífið „Af hverju eru allir að gefa ránfuglinum að borða?“ Lífið „Ég fæddist nefnilega á endalausu breytingarskeiði“ Lífið samstarf Hættur með fimmtíu árum yngri kærustunni Lífið Ekki gálgadans heldur hæ dúddelí dæ Gagnrýni Stjörnurnar fögnuðu flúruðum Maroni Tónlist Fær nafn átta árum eftir opinberun Leikjavísir Stefna á gullið með tíu tonn í farteskinu Matur Hinsegin ást í loftinu Lífið Fleiri fréttir „Af hverju eru allir að gefa ránfuglinum að borða?“ „Götustelpan“ glöð Hryllingur og hiti á klúbbnum Hvernig fílarðu böndin á Airwaves? Fundu ástina á Domino's Klöppuðu fyrir ofan höfuð á Frikka Dór Ellý er röddin sem þúsundir manna heyra á hverjum degi Hinsegin ást í loftinu Hættur með fimmtíu árum yngri kærustunni Tæplega þriggja áratuga löng gönguferð á enda Hvað veistu um… eyjar við Ísland? Íslensk listakona sló í gegn í Miami Safna í minningu Johns Snorra fyrir munaðarlaus börn Ólafía Þórunn orðin þriggja barna móðir „Erum bara vinir“ Áhrifavaldur lést í mótorhjólaslysi Útúrkókaður lögreglumaður stökk á mann sem var að slá garðinn um nótt Arnór Sig kominn á fast Stjörnulífið: Fáklædd og frjáls Mistök að hafa klætt sig upp sem heimilislausa Robert Irwin nýtti fríið og ferðaðist um Ísland Vonlaust að gagnrýna vini sína Luku þrjátíu ára hjónabandi með skilnaðarferð Krakkatía vikunnar: Hrekkjavaka, þjóðtrú og goðafræði Hnýta í Trump í nýrri herferð: „Velkomin til skítalands“ Níutíu og einn meistari útskrifaðist Andri Snær keppir við Elizabeth Holmes Barn kom í heiminn á Vesturlandsvegi: „Þá er hún bara komin á fjóra fætur í Nissan Leaf-inum okkar“ Hrekkjavökukort sem sé drifið áfram af samfélaginu Nýjar upplýsingar um morðið á Hrafnhildi Lilju átján árum síðar Sjá meira
Barn kom í heiminn á Vesturlandsvegi: „Þá er hún bara komin á fjóra fætur í Nissan Leaf-inum okkar“