Reykjavík greiðir 1,6 milljónir í heyrnartól Sveinn Arnarsson skrifar 30. janúar 2016 07:00 Vísir
Stjórn Reykjavíkurborgar ákvað að kaupa 51 heyrnartól fyrir starfsmenn sína að upphæð 1.642.480 krónur fyrir skömmu til að tryggja vinnufrið starfsmanna. Brugðið var á það ráð að opna vinnurými með tilheyrandi umhverfishljóðum og truflunum fyrir starfsfólk. Halldór Halldórsson, oddviti Sjálfstæðisflokksins, segir þetta dæmi um forgangsröðun meirihluta borgarinnar. „Þetta er í raun í takt við annað sem maður er að sjá varðandi rekstur borgarinnar á þessu kjörtímabili. Við höfum ítrekað bent á brotalamir í rekstrinum. Hér þarf að fara dýrustu leiðina að því markmiði að tryggja starfsmönnum ráðhússins vinnufrið,“ segir Halldór. „Við höfum sent fyrirspurn um kostnað við breytingar ráðhússins og því vonum við að þessi upphæð verði einnig talin með.“ Fram kemur í svari Reykjavíkurborgar við fyrirspurn Fréttablaðsins að þessi kaup séu til þess að tryggja viðunandi vinnuumhverfi fyrir starfsfólk ráðhússins. „Misjafnt er eftir staðsetningu vinnurýma í húsi hversu mikið ónæði er vegna umgangs og umhverfishljóða. Í mörgum tilfellum voru valin heyrnartól út frá því hversu vel þau útiloka umhverfishljóð en mikill erill er í sumum vinnurýmum í Ráðhúsinu auk þess sem stöðugt hefur verið unnið að breytingum og viðhaldi í húsinu undanfarið eitt og hálft ár með tilheyrandi umhverfishljóðum,“ segir í svari borgarinnar.Halldór HalldórssonKeypt voru átta heyrnartól fyrir atvinnumáladeild, tíu fyrir mannréttindaskrifstofu borgarinnar, þrenn fóru til borgarlögmanns, 13 til borgarritara og skrifstofu borgarstjóra, tíu fóru á upplýsinga- og vefdeild, fern til skrifstofu borgarstjórnar og loks þrenn heyrnartól til skrifstofu eigna og atvinnuþróunar. Heildarkostnaður við þetta er rúmar 1,6 milljónir króna. Ástæður skipulagsbreytinganna í ráðhúsinu er til að ná meira flæði milli starfsfólks. Nú vinni margir starfsmenn ráðhússins í opnu rými. „Starfsfólk starfar betur sem liðsheild, upplýsingaflæði á milli starfsmanna verður greiðara, starfsfólk einangrast síður og starfsandi verður oft betri, lægri þröskuldur verður á samskiptum á milli starfsmanna þegar aðstoð vantar og hópurinn nær þar af leiðandi betri árangri auk fleiri þátta,“ segir í svari Reykjavíkurborgar.
Tengdar fréttir Kalla borgarstjóra á fund fjárlaganefndar Ásmundur Einar Daðason, þingmaður Framsóknarflokksins, hefur óskað eftir því við Vigdísi Hauksdóttur, formann fjárlaganefndar, að borgarstjóri Reykjavíkur verði boðaður á fund nefndarinnar vegna fjárhagsstöðu Reykjavíkurborgar. 12. september 2015 07:00 Segja borgina fara af stað með niðurskurðarhnífinn án samráðs Þjónusta við aldraða til umræðu í borginni í gærkvöldi. Sjálfstæðismenn opnir fyrir að borgin bjóði öðrum rekstur mötuneyta. Borgarstjóri segir Eir hafa lofað þjónustu sem borgin sá öðruvísi fyrir sér. 20. janúar 2016 07:00 Þetta hækkar hjá borginni Borgarstjórn Reykjavíkurborgar samþykkti í gær gjaldskrárbreytingar fyrir næsta ár. 16. desember 2015 15:40 Mest lesið Losuðu stúlku úr „prísund“ við Háskólabíó Innlent Vill losna við lífverði Bjarna úr þinghúsinu Innlent Ísland orðið „pínkulítið lélegra og leiðinlegra“ Innlent Heimtaði að allir í bænum töluðu íslensku Innlent Tilkynntu um ekki yfirvofandi eldgos Innlent Tónlistarmaðurinn Róbert Örn er fallinn frá Innlent Eigandi Gríska hússins: „Erum við einhver mafía?“ Innlent Lést eftir að hafa fengið rafstraum í heitum potti Erlent Stefna á að lækna Parkinson með ígræðslu stofnfruma Innlent Óttast um öryggi barna á leiðinni á golfvöllinn Innlent Fleiri fréttir Kostnaður ríkissjóðs vegna Grindavíkur um áttatíu milljarðar Leyfið gefið út í trássi við öryggi sjófarenda Quang Lé laus úr gæsluvarðhaldi en í farbanni Stór skörð að fylla eftir að þúsundir drápust Ofurkarlmennska geti reynst ávísun á hómófóbíu og kvenfyrirlitningu Brenna landnámsbæ til kaldra kola í tilraunaskyni Fimm bíla árekstur á Akureyri Vill úrbætur sem fyrst á Flóttamannaleið Gríska húsinu lokað Byggðakvótakerfið úr sér gengið Kynna 150 aðgerðir í loftslagsmálum Umfangsmikil aðgerð Europol: Netþjónar á Íslandi hýstu hryðjuverkaáróður Leitt ef ríkisstjórn er ekki treystandi í kjarasamningsviðræðum Útlendingafrumvarpið hefur verið samþykkt Ekkert breyst til batnaðar í rekstri borgarinnar Vill losna við lífverði Bjarna úr þinghúsinu Átök á Alþingi og víkingar taka yfir Hafnarfjörð Heimtaði að allir í bænum töluðu íslensku Mikið svifryk í borginni og gosmóða líkleg síðar í dag Vill styðja vantrauststillögu komi hún fram Stefna á að lækna Parkinson með ígræðslu stofnfruma Ísland orðið „pínkulítið lélegra og leiðinlegra“ Tilkynntu um ekki yfirvofandi eldgos Losuðu stúlku úr „prísund“ við Háskólabíó Miðflokksmenn íhuga að leggja fram vantrauststillögu Frumvarp um bætta stöðu leigjenda strandar hjá ríkisstjórn Fleiri aðildarfélög BSRB semja við ríkið Sérsveitin kölluð til vegna byssu sem reyndist leikfang Borða með puttunum á Hellu Eigandi Gríska hússins: „Erum við einhver mafía?“ Sjá meira
Kalla borgarstjóra á fund fjárlaganefndar Ásmundur Einar Daðason, þingmaður Framsóknarflokksins, hefur óskað eftir því við Vigdísi Hauksdóttur, formann fjárlaganefndar, að borgarstjóri Reykjavíkur verði boðaður á fund nefndarinnar vegna fjárhagsstöðu Reykjavíkurborgar. 12. september 2015 07:00
Segja borgina fara af stað með niðurskurðarhnífinn án samráðs Þjónusta við aldraða til umræðu í borginni í gærkvöldi. Sjálfstæðismenn opnir fyrir að borgin bjóði öðrum rekstur mötuneyta. Borgarstjóri segir Eir hafa lofað þjónustu sem borgin sá öðruvísi fyrir sér. 20. janúar 2016 07:00
Þetta hækkar hjá borginni Borgarstjórn Reykjavíkurborgar samþykkti í gær gjaldskrárbreytingar fyrir næsta ár. 16. desember 2015 15:40