N1 harmar ummæli forstjóra Samkeppniseftirlitsins Svavar Hávarðsson skrifar 12. janúar 2016 07:00 Páll Gunnar Pálsson, forstjóri Samkeppniseftirlitsins
Eggert Þór Kristófersson, forstjóri N1, telur að Páll Gunnar Pálsson, forstjóri Samkeppniseftirlitsins, hafi, án nokkurra raka, vænt N1 um ólögmæta viðskiptahætti í forsíðufrétt Fréttablaðsins í gær. Málið varðar tvö útboð á eldsneyti til allmargra útgerðarfyrirtækja og smábátaútgerða í fyrra – en samtals voru boðin út 27.500 tonn af eldsneyti. N1 tók ekki þátt í öðru útboðinu, sem Landssamband smábátaeigenda stóð fyrir í lok árs. Um það sagði Páll Gunnar í fréttinni: „Í ljósi þeirrar niðurstöðu skýrslunnar að samkeppni sé virkust í stærri viðskiptum kemur það Samkeppniseftirlitinu verulega á óvart að aðeins eitt af stóru olíufélögunum hafi sóst eftir viðskiptum sem eru nokkuð umfangsmikil. Hafi átt sér stað einhver samskipti, milli olíufélaganna sem ekki buðu, sem með beinum eða óbeinum hætti varða umrætt útboð væri um alvarlegt mál að ræða. Samkeppniseftirlitið hefur hins vegar engar upplýsingar um að svo hafi verið,“ sagði Páll Gunnar. Í erindi sem Eggert Þór Kristófersson, forstjóri N1, sendi blaðinu í gær segir:Eggert Þór Kristófersson„Vegna ummæla forstjóra Samkeppniseftirlitsins á forsíðu Fréttablaðsins í dag [mánudag] vill N1 taka eftirfarandi fram: N1 áskilur sér rétt til að taka eigin ákvarðanir í málum sem varða viðskipti og rekstur félagsins. Félagið tók einfaldlega ákvörðun um að taka ekki þátt í umræddu útboði, og byggði þá niðurstöðu á sínum forsendum, sinni viðskiptastefnu sem félagið gerði grein fyrir skriflega til útboðsgjafa,“ segir í erindi Eggerts Þórs. Öllum sé að sjálfsögðu frjálst að hafa sína skoðun á því hvort sú ákvörðun hafi verið rétt eða ekki. „N1 harmar hins vegar að forstjóri Samkeppniseftirlitsins sjái ástæðu til að væna félagið opinberlega um ólögmæta viðskiptahætti fyrir vikið. Það er bæði órökstutt, og ósanngjarnt.“
Tengdar fréttir Samkeppniseftirlitið útilokar ekki rannsókn á olíufélögunum Kom Samkeppniseftirlitinu mjög á óvart að aðeins eitt af stóru olíufélögunum hafi tekið þátt í útboði. 11. janúar 2016 06:00 Mest lesið Langþráður draumur að verða að veruleika í Kísildal Viðskipti innlent Breytingar á vetraropnun miðstöðvarinnar í Kerlingarfjöllum kynntar Viðskipti innlent Fær 9,5 fyrir IKEA og JYSK samsetningar Atvinnulíf Þegar svona sprengja springur vill allur vinnustaðurinn „fá allt á hreint“ Atvinnulíf Enn eitt gjaldþrot Helga: Ekkert í boði í Veislunni Viðskipti innlent Klíníkin sótti 300 milljónir króna Viðskipti innlent Paramount og Warner Bros. heyra brátt sögunni til Viðskipti erlent Kaupir Malbiksstöðina á fimm milljarða Viðskipti innlent „Hlutir sem við vorum ekki sammála um“ Viðskipti innlent G7 setja hundrað milljón tunnur á markaðinn Viðskipti erlent Fleiri fréttir Langþráður draumur að verða að veruleika í Kísildal Breytingar á vetraropnun miðstöðvarinnar í Kerlingarfjöllum kynntar Klíníkin sótti 300 milljónir króna 181 starfsmanni sagt upp í sex hópuppsögnum Enn eitt gjaldþrot Helga: Ekkert í boði í Veislunni Kaupir Malbiksstöðina á fimm milljarða Tuttugu sagt upp í fiskvinnslu í Reykjanesbæ Borga hálfan milljarð í viðbót fyrir indverskt félag „Hlutir sem við vorum ekki sammála um“ Hörður hættir sem forstjóri Landsvirkjunar Bein útsending: Ársfundur Samtaka atvinnulífsins Enn lækkar Ísland í nýsköpunarvísitölunni Boðaði til starfsmannafundar og mætti í stjórnarráðið Helgi í Góu greiðir sér 130 milljónir Opna fljótlega fyrir umsóknir vegna ráðstöfunar séreignar Magnús er nýr sviðsstjóri ráðgjafarsviðs KPMG Spá óbreyttum vöxtum Minnsta hlutabréfavelta frá faraldursárinu 2020 Magnús leiðir Stofnun atvinnuveganna Samherji selur Margréti til Færeyja Afgreiðsla launakrafna Play fyrirhuguð 16 mánuðum eftir fallið Vaxtahækkunarferli lokið en langt í lækkun Ekki sjái fyrir endann á uppsögnum Þrotabú Play krefur Einar um skaðabætur Verðbólga í tveggja ára hámarki eftir að skattalækkun rann út Telja gagnaver skila litlum ávinningi í Noregi Á áttunda tug starfsmanna Netapp sagt upp Verðbólga ekki meiri í tvö ár Högnuðust um milljarð Rúmlega tuttugu sagt upp hjá ÍAV Sjá meira
Samkeppniseftirlitið útilokar ekki rannsókn á olíufélögunum Kom Samkeppniseftirlitinu mjög á óvart að aðeins eitt af stóru olíufélögunum hafi tekið þátt í útboði. 11. janúar 2016 06:00