„Eina sem hann hugsar er bara að forða sér“ Aðalsteinn Kjartansson skrifar 3. mars 2015 10:19
Rakel Gústafsdóttir, móðir drengs sem ekið var á í Hlíðunum, segir son sinn enn vera að ná sér líkamlega og andlega eftir slysið. „Hann er frekar aumur. Það er í lagi með hann en hann er tognaður á ökkla, mjöðmin marin og getur illa setið,“ sagði hún í viðtali í Bítinu á Bylgjunni í morgun. Ökumaður bílsins ók af vettvangi og skildi son hennar eftir liggjandi á götunni, á horni Stigahlíðar og Bogahlíðar. „Hann fór ekki í skólann í gær og ekki í dag. Ég veit ekki hvort að ökklinn verði í lagi, þetta er á sin. Hann er óbrotinn og höfuðið slapp, hann náði að verja það. Sem betur fer er í lagi með hann,“ sagði hún. Sjá einnig: Ökumaður stakk af eftir að hafa ekið á son Rakelar Fjölskyldan veit lítið um ökumanninn en engin vitni voru að atvikinu. „Nei ekki svo við vitum. Þetta var klukkan níu á sunnudagskvöldi og dimmt og eina sem hann sá var að bíllinn var vínrauður. Hann gat ekki greint neitt númer eða neitt. Eina sem hann hugsar er að forða sér, stendur upp og þá sér hann bara bílinn bakka í burtu og snúa við.“ Drengurinn var að fara yfir götuna þar sem ekki er gangbraut en Rakel segir sonur sinn hafi haldið að bíllin væri að hægja á sér til að hleypa honum yfir götuna. „Honum sýnist hann hægja á sér og telur að hann sé bara að stoppa,“ segir hún. „Svo bara fær hann höggið á sig.“ Rakel segir að ökumaðurinn hljóti að hafa tekið eftir því að aka á drenginn. „Að sjálfsögðu, annars hefði hann ekki bakkað í burtu.“ Sjálf segist hún vera í áfalli yfir því að ökumaðurinn hafi ekið burt af vettvangi. „Það var sjokkið sem ég áttaði mig á seinna meir með kvöldinu,“ segir hún. Fyrst segist hún hafa hugað að syni sínum, kallað til lögreglu og gefið skýrslu. „Svo fór ég að finna fyrir því hvað ég var sár, segir hún. „Reið og sár yfir því að hann hafi ekki stoppað og gefið barninu gaum, athugað hvort ekki var í lagi og hvað þá að styðja við hann heim. Hann ar haltur labbandi heim 200-300 metra. Þetta er ekki langt en samt; og í þessu sjokki,“ segir Rakel og segir son sinn hafa verið í áfalli eftir slysið. „Hann heldur þegar hann er þarna liggjandi í götunni að bíllinn sé að fara að keyra yfir sig.“ Rakel segir að sonur sinn hafi fyrst verið skelkaður og hissa en eftir að hafa rætt þetta við hann hafi hann áttað sig á hvað hefði gerst. „Þetta brýst út í ýmsu hjá þeim og þau geta ekki alltaf áttað sig á því hvað er en honum leið ekki vel. Svo ætlaði hann að reyna að fara í skólann í morgun en treysti sér ekki,“ segir hún. „Hann er sjálfur góður, ég hef séð hann gera góðverk bara svona upp úr þurru, veita fólki viðlit sem þarf á því að halda, og ég held að hann sjálfur skilji ekki hvernig manneskja geti bara keyrt í burtu frá svona,“ segir móðirin.
Mest lesið Myndir: Allt á floti í Kringlunni Innlent Umfangsmikið mengunarslys vegna rútuslyssins Innlent „Sumar búðir hafa sloppið vel, aðrar ekki“ Innlent Náði ekki að loka búðinni áður en henni var sagt að koma sér út Innlent Leiðinlegt fyrir útskriftarnema sem er hent út áður en þeir taka sopa Innlent „Við munum ekkert hreyfa okkur í sumar“ Innlent Konungsskip Dana í Reykjavík Innlent Sigurður Ingi ekki búinn að undirrita Isavia-samning Innlent Harma banaslysið og hafa uppfært verkferla Innlent Eldur logar í þaki Kringlunnar Innlent Fleiri fréttir Myndir: Allt á floti í Kringlunni Umfangsmikið mengunarslys vegna rútuslyssins Konungsskip Dana í Reykjavík „Sumar búðir hafa sloppið vel, aðrar ekki“ Safnað fyrir gróðurskála á Kirkjubæjarklaustri „Við munum ekkert hreyfa okkur í sumar“ Flókið verkefni og mikið tjón í Kringlunni Leiðinlegt fyrir útskriftarnema sem er hent út áður en þeir taka sopa Eldur í Kringlunni og Kristján Loftsson um hvalveiðileyfið Náði ekki að loka búðinni áður en henni var sagt að koma sér út Héldu fyrst að þetta væri brunaæfing Sigurður Ingi ekki búinn að undirrita Isavia-samning Eldur logar í þaki Kringlunnar Björgunarsveit kölluð út í Þórsmörk Áhyggjur af vanda drengja í menntakerfinu óþarfar Þyrlan kölluð út vegna reiðslyss Kjósendur Jóns Gnarr líklegastir til að vera ósáttir með Höllu Vilja banna hvalveiðar með lögum Áttatíu prósent af plasti í fjörum landsins kemur frá útlöndum Efast um að ráðherrar nái fram markmiði sínu Tveimur haldið sofandi vegna slyssins Rútuslys í Öxnadal og meintar rangfærslur ráðherra Guðni snýr aftur í sagnfræðina Leita að nýju húsnæði fyrir kaffistofu Samhjálpar Öxnadalsheiði opin á ný Harma banaslysið og hafa uppfært verkferla Bein útsending: Brautskráningar Háskóla Íslands Svandís og Sigurður Ingi sögð bakka upp bílastæðagjöldin Of snemmt að kenna bikblæðingum um Átök á lokametrunum: Saka ríkisstjórn um að „slátra“ samgönguáætlun Sjá meira