Fyrsti staðurinn tekur 50 manns í sæti 4. ágúst 2015 18:23
Fyrsti Dunkin´ Donuts staðurinn á Íslandi verður opnaður á Laugavegi 3 klukkan níu í fyrramálið. Líkt og greint hefur verið frá verða fleiri staðir opnaðir siðar eða sextán á næstu fimm árum. Dunkin keðjan hefur verið í örum vexti undanfarin ár en rúmlega 11.300 staðir eru starfræktir í 36 löndum víða um heim og sækja meira en 5 milljónir viðskiptavina staðina á hverjum einasta degi. Árni Pétur Jónsson, forstjóri Dunkin´ Donuts á Íslandi, er spenntur fyrir opnuninni. „Það er ekki hlaupið að því að opna stað sem tilheyrir svona stóru og sterku vörumerki. Fylgja þarf ákveðnum stöðlum og þó svo að maður hafi frjálsar hendur í einhverjum tilvikum er þetta að mörgu leyti ansi klippt og skorið og verður líklega að vera það þar sem að nýr eða endurbættur Dunkin´ Donuts staður er opnaður einhvers staðar í heiminum á 12 klukkustunda fresti. Þau hjá Dunkin ættu því að vera með það á hreinu hvernig er best að standa að þessu,“ segir hann. Staðurinn á Laugavegi tekur 50 manns í sæti. „Við bjóðum upp á kleinuhringi og bakkelsi, eins og gefur að skilja, en verðum einnig með hollari veitingar fyrir þá viðskiptavini okkar sem slíkt kjósa,“ segir Árni. Komið hefur fram að fyrstu 50 sem mæta í röðina fá klippikort og geta með því innleyst kassa með 6 kleinuhringjum einu sinni í viku í eitt ár.
Mest lesið Fjölmiðla- og auglýsingabransinn: „Jú, jú, það er alveg að koma nýtt búmm!“ Atvinnulíf Sky ætlar að festa kaup á ITV Viðskipti erlent Fluttu eitt prósent færri farþega en í júní á síðasta ári Viðskipti innlent Skera niður Xbox til þess að spreða í gervigreind Viðskipti erlent Afkoma ríkisins neikvæð um 182 milljarða Viðskipti innlent Neytendastofa tæklar bílastæðamálin Viðskipti innlent Kristjana nýr framkvæmdastjóri Saffran Viðskipti innlent Kreditkortavandi hjá Landsbankanum leystur Neytendur Ódýrast að tjalda á Vesturlandi Neytendur Fá AA- í einkunn Viðskipti innlent Fleiri fréttir Fluttu eitt prósent færri farþega en í júní á síðasta ári Fá AA- í einkunn Afkoma ríkisins neikvæð um 182 milljarða Neytendastofa tæklar bílastæðamálin Kristjana nýr framkvæmdastjóri Saffran Loka Te og kaffi á Suðurlandsbraut Eitt app fyrir ferðamenn til að skemmta sér og forðast hættur Of snemmt að draga fram heykvíslar Alvarlegt að forstjóri Samkeppniseftirlitsins taki undir með ASÍ og FÍB Fríverslunarsamningur EFTA og Víetnam í höfn Hægt að ráðstafa séreign í október frá og með 1. janúar Samkeppniseftirlitið hugsi yfir verðbreytingum olíufélaganna Drangar kaupa Brauð & Co Gul viðvörun hjá öllum og fjörutíu prósent á rauðu Mango opnar í Kringlunni Landsbankinn annast skráningu Styrkáss Má gefa börnunum sínum peninga? Vinna að því að fella niður kolefnisgjöld á strandsiglingar „Lukkuhjól“ Byko talið villandi fyrir neytendur Nýr framkvæmdastjóri Kalon Áfengisgjaldið tvöfalt hærra en veiðigjaldið en varla rætt Bera sig eftir viðskiptasamböndum Bakkusar „Maður er reiður og sár“ Verðhækkanirnar vonbrigði Guðrún Gígja nýr yfirlögfræðingur hjá Fossum Þórunn og Svali til Íslandsbanka Verðbólga eykst lítillega Ingólfur kaupir Ísbúð Vesturbæjar Vara við aðskotaefni í tei Bryndís frá Danmörku til Ölgerðarinnar Sjá meira