Störf Samgöngustofu flytja út á landsbyggð Sveinn Arnarsson skrifar 2. nóvember 2015 07:00 Sjö stöðugildi við umferðareftirlit mun flytjast til lögregluembætta úti á landi. Umferðareftirlitið felst meðal annars í eftirliti með stærð og þyngd ökutækja, frágangi farms og aksturs- og hvíldartímareglum. Talið er að efitrlitið verði skilvirkara með því að flytja það til lögreglu. vísir/kristinn
Flytja á sjö stöðugildi Samgöngustofu við umferðareftirlit til lögregluembætta úti á landi. Þrjú fara á Norðurland eystra, tvö á Vesturland og tvö á Suðurland. Norðvesturnefnd forsætisráðherra lagði til að störfin yrðu flutt á það svæði en fær engin stöðugildi til sín. Norðvesturnefndin svokallaða, sem sett var á laggirnar af forsætisráðherra, lagði meðal annars til að fjögur stöðugildi við umferðareftirlit Samgöngustofu yrðu flutt til lögreglunnar á Norðurlandi vestra sem lið í að efla atvinnu og styrkja stoðir byggðar í landshlutanum. Þessar tillögur voru sendar forsætisráðuneyti í nóvember í fyrra og hafa verið í ár í vinnslu í ráðuneytunum. Það kemur því á óvart að þessar tillögur fái náð ráðuneytisins en störfin flutt í önnur umdæmi. Nefndin var sett á laggirnar af forsætisráðherra til þess að bæta atvinnuástand á Norðurlandi vestra. Fjöldi tillagna barst forsætisráðuneytinu fyrir ári en engin þeirra hefur enn hlotið hljómgrunn í forsætisráðuneytinu eða öðrum ráðuneytum ríkisstjórnarinnar.Stefán Vagn Stefánsson, formaður bæjarráðs SkagafjarðarStefán Vagn Stefánsson, formaður bæjarráðs Skagafjarðar og formaður Norðvesturnefndar forsætisráðherra, telur skrítið að þessar tillögur hafi ekki náð fram að ganga. „Hins vegar fagna ég því að það er verið að færa störf frá höfuðborginni til landsbyggðarinnar. Þetta sýnir okkur svart á hvítu að það er hægt að flytja störf út á land. Úrtölumenn þessarar skýrslu sögðu ekki mögulegt að framkvæma þessar tillögur en annað hefur komið á daginn,“ segir Stefán Vagn. Í svari ráðuneytis við fyrirspurn Fréttablaðsins kemur fram að markmiðið sé að gera eftirlitið skilvirkara og tengja það lögregluembættum sem fara einnig með önnur umferðarlagabrot. „Þannig verður samtímis hægt að kanna til dæmis ökuréttindi ökumanns, ástand ökumanns með tilliti til ölvunar og vímuefnaneyslu, eftirlit með hraða og svo framvegis. Af því mun leiða betri nýting fjármuna. Öllum umferðareftirlitsmönnum Samgöngustofu var boðið að flytjast til lögreglu en þrír starfsmenn af sjö þáðu ekki flutninginn. Embættin þrjú munu því ráða hvert um sig einn lögreglumann í stað þeirra sem ekki þáðu flutning í starfi.“
Mest lesið Draumur Demókrata að rætast Erlent Dragi uppsagnirnar til baka Innlent Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Erlent Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Erlent Bein útsending: Tölur berast frá kjörstöðum vestanhafs Erlent Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli Innlent Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Innlent Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Innlent Nemandi nýtti sér öryggisbrest og reyndi að breyta einkunum annarra Innlent Reynslumikill flugmaður við stjórnina Erlent Fleiri fréttir Miðflokkurinn bætir við sig fylgi Skoða fæðingarorlofsmálin Dragi uppsagnirnar til baka Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Þrír handteknir fyrir rán Telur uppsagnir geta leitt til kostnaðar seinna meir Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Nemandi nýtti sér öryggisbrest og reyndi að breyta einkunum annarra Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli „Rangfærslur og jafnvel hreinar lygar“ Lögregla telur sig komna með „þokkalega skýra mynd“ Barði barn en málið fyrndist Bárust skrýtin skilaboð þegar sambandinu lauk „Fræða en ekki hræða“ „Það er öllum ljóst að hann hefur frekar verið þeirra megin“ Fullyrða að Daði Már hafi logið að þinginu „Hvernig getur svona klikkuð manneskja ekki ákveðið að gera neitt meira?“ Kosningar í Bandaríkjunum og utanríkisráðherra ræðir Rússa Skipaður formaður 6. áfanga rammaáætlunar Reikna með þrettán milljarða afgangi á næsta ári Fluttur með björgunarskipi þegar þyrlan gat ekki lent vegna þoku Kynntu fjárhagsáætlun borgarinnar Kolbeinsey lifir enn þrátt fyrir spádóma um annað Játaði að hafa makað saur á hurðarhúna Kynntu verkefnið Verum viðbúin „Ekki bíða eftir fyrsta snjónum“ Rússar hnýta í Þorgerði Katrínu vegna ummæla um skrif Heimis Más Fjögurra bíla árekstur við N1 í Ártúnsbrekku „Ég neita að leyfa fæðingarorlofssjóði að stjórna mínu lífi“ Líkamsárás í miðbænum Sjá meira