Það var ekki mikið um manninn þegar undirritaður mætti við vatnið og kom sér fyrir á góðum stað í Þjóðgarðinum til að láta reyna á góðar fréttir sem hafa verið að berast úr vatninu í þessari viku. Það tók ekki nema 10 mínútur að ná fyrstu bleikjunni sem var væn sílableikja. Hún kom upp nokkrum sinnum á sama blettinum innarlega í einni víkinni og tók um leið og lítill Pheasant Tail datt í vatnið rétt hjá síðustu uppítökunni. Stuttu seinna var annari vænni kuðungableikju landað en sú tók mobuto kuðung á tungsten kúluhaus. Að lokum rétt áður en vatnið var hvatt bættist minni kuðungableikja við.
Þegar leið á kvöldið var greinilega hugur í mönnum því rétt eftir klukkan níu hafði fjölgað svakalega við vatnið og á vinsælustu stöðunum var erfitt eða vonlaust að fá bílastæði. Kvöldveiðin í vatninu getur verið mjög drjúg á þessum árstíma og oftar en ekki er besti tíminn um og eftir miðnætti en það er að sama skapi ágætt að koma tímanlega til að fá stæði.