Skuldir heimilanna lækka Jón Hákon skrifar 23. apríl 2015 13:00 Már Guðmundsson og Sigríður Benediktsdóttir kynntu skýrsluna. Seðlabankastjóri segir að staða stóru viðskiptabankanna sé sterk. Þegar dýpra er kafað sé myndin hins vegar ekki eins björt og virðist við fyrstu sýn.fréttablaðið/GVA
Skuldir heimila námu rúmlega 90,5 prósentum af landsframleiðslu í árslok 2014. Að raunvirði lækkuðu skuldir heimila um 1,5 prósent á liðnu ári. Í hlutfalli af landsframleiðslu lækkuðu þær um tæplega 10 prósent á árinu. Til samanburðar lækkuðu skuldir heimila um 5 prósent árið 2013 og 3,5 prósent árið 2012. Þetta kemur fram í ritinu Fjármálastöðugleiki sem Seðlabankinn gaf út í gær. Már Guðmundsson seðlabankastjóri og Sigríður Benediktsdóttir, forstöðumaður fjármálastöðugleika Seðlabankans, kynntu ritið í gær. „Það er mesta lækkun á skuldum heimila sem hlutfall af vergri landsframleiðslu frá því að fjármalaáfallið hófst,“ sagði Sigríður Benediktsdóttir á fundinum. Sigríður benti á að í alþjóðlegum samanburði hefðu skuldir heimila hækkað upp úr öllu valdi en væru teknar að lækka aftur mjög hratt. „Einu þjóðirnar þar sem heimili hafa verið að minnka skuldsetningu sína eru í raun Írland og Ísland. Önnur heimili hafa í raun verið að auka skuldsetningu,“ sagði Sigríður. Í skýrslunni er bent á að skuldir hafi ekki verið lægri síðan 2004 sé tekið mið af landsframleiðslu. Lækkun á hlutfallinu megi bæði rekja til lækkunar á nafnvirði skulda og aukinnar landsframleiðslu. Lækkun á nafnvirði skulda megi síðan bæði rekja til lítillar verðbólgu á síðasta ári og aðgerða stjórnvalda um niðurfærslu verðtryggðra lána. Sigríður sagði að langtímaáhrif skuldaniðurfærslu ríkisstjórnarinnar á verðtryggðum lánum væru óljós. „Þau eru öll háð því í hvaða mæli heimilin munu taka ný lán gegn því aukna svigrúmi sem þarna myndast. Við þurfum að bíða aðeins lengur áður en stóri dómur fellur varðandi það hver skuldsetning heimila verður í framtíðinni,“ sagði hún. Sigríður benti einnig á að hrein eign heimila, sem hlutfall af ráðstöfunartekjum, hefði aldrei verið meiri en í lok síðasta árs. Hrein eign heimila var þá 505 prósent af ráðstöfunartekjum en þetta hlutfall var 380 prósent í lok árs 2008. jonhakon@frettabladid.is
Mest lesið Sprotafyrirtæki í alvarlegri stöðu Viðskipti innlent Væri þjóðargersemi sem frægur poppari eða leikari Atvinnulíf Boða lækkanir í Bónus og Hagkaupum með nýju samstarfi Neytendur Stefna Rannís vegna neitunar um endurgreiðslu Viðskipti innlent Þrír bætast í eigendahópinn hjá LEX Viðskipti innlent Gjaldskylda sett á við Egilshöll Neytendur Ársfundur Orkuveitunnar í beinni á Vísi Viðskipti innlent Spá aukinni verðbólgu í apríl Viðskipti innlent Eftirlitið útiloki samruna Kviku og stærri banka Viðskipti innlent Innkalla Smash Style hamborgara vegna salmonellu Viðskipti innlent Fleiri fréttir Sprotafyrirtæki í alvarlegri stöðu Samkeppniseftirlitið ógildir samruna Ferro zinks og Metals Eldsneytisbirgðastaða Icelandair góð en fylgst er með stöðunni Fyrsta skemmtiferðaskipið mætt Tekur við sem forstjóri S4S Stýrivextir verði 8,25 prósent fyrir árslok Stefna Rannís vegna neitunar um endurgreiðslu Ársfundur Orkuveitunnar í beinni á Vísi Simmi Vill festir kaup á Mosfellingi Innkalla Smash Style hamborgara vegna salmonellu Eftirlitið útiloki samruna Kviku og stærri banka Bein útsending: Staða orkumála vegna stríðsátaka í Mið-Austurlöndum Þrír bætast í eigendahópinn hjá LEX Spá aukinni verðbólgu í apríl Kvika lækkar hressilega í fyrstu viðskiptum Arion banki og Kvika blása af samrunann Bein útsending: Ísland 2036: Fjártæknieyjan og framtíðin Markaðsstjóri Domino's á Íslandi hættur Jóhann Ingi til Securitas Umsóknum synjað og kurr í greininni Gagnastuldur af Booking sé fullkomið hráefni í markviss netsvik Heimilar ráðherra að ákvarða hámarksverð eldsneytis Vilja að skattahvatar fyrir tækni- og hugverkaiðnað verði festir í sessi Ríflega 7.500 sóttu um 200 sumarstörf Ráðinn framkvæmdastjóri Betri samgangna Eimskip ákært vegna sölu tveggja skipa Yngri en 30 ára neikvæðust í garð annarra samgöngumáta en einkabíls Máttu fella úr gildi skráningu Stripadvisor Spá enn vaxtahækkun í maí Valdís tekur við sem formaður KÍÓ Sjá meira