Eignir lífeyrissjóðanna ríflega tvöfaldast Jón Hákon skrifar 23. apríl 2015 00:01 Sterk staða Regína Bjarnadóttir er forstöðumaður Greiningar. Greining segir stöðu lífeyrissjóðanna vera sterka. fréttablaðið/arnþór
Eignir lífeyrissjóðanna hafa ríflega tvöfaldast frá aldamótum og námu um 3.000 milljörðum króna síðastliðin áramót. Það er ríflega ein og hálf landsframleiðsla. Þetta kom fram í Markaðspunktum Arion banka sem komu út í gær. Greining Arion banka telur að staða íslenskra lífeyrissjóða sé á heildina litið nokkuð sterk. Hrein raunávöxtun þeirra hafi farið batnandi síðustu ár eftir að hafa verið innan við 1% á árunum 2007 og 2009 og neikvæð um 22% árið 2008. Á árunum 2010-2011 var ávöxtunin komin yfir 2% og upp í 7,3% árið 2012. Á árinu 2014 er áætlað að raunávöxtunin hafi verið 7,2%. Slík ávöxtun myndi tvöfalda eignirnar á tíu árum. Engu að síður eru lífeyrissjóðir skyldaðir til að miða við 3,5% ávöxtunarkröfu við núvirðingu á framtíðarskuldbindingum. Greining segir meðalraunávöxtun síðastliðinna 13 ára vera lítillega undir því, eða 3,2%. Greining segir mikilvægt að hafa í huga að markmið lífeyrissjóða sé ekki að stækka eignasafnið, ávöxtunin sé mun mikilvægari. „Þó er mikilvægt að lífeyrissjóðirnir auki við eignir um þessar mundir því aldurssamsetning þjóðarinnar mun breytast á næstu áratugum þar sem þjóðin er að eldast. Þá mun hlutfallið milli eftirlaunaþega og launþega hækka sem þýðir að meira fer út úr lífeyrissjóðum heldur en inn í þá, miðað við stöðuna í dag,“ segir Greining.
Mest lesið Fjölmiðla- og auglýsingabransinn: „Jú, jú, það er alveg að koma nýtt búmm!“ Atvinnulíf Sky ætlar að festa kaup á ITV Viðskipti erlent Fluttu eitt prósent færri farþega en í júní á síðasta ári Viðskipti innlent Afkoma ríkisins neikvæð um 182 milljarða Viðskipti innlent Neytendastofa tæklar bílastæðamálin Viðskipti innlent Ódýrast að tjalda á Vesturlandi Neytendur Kreditkortavandi hjá Landsbankanum leystur Neytendur Kristjana nýr framkvæmdastjóri Saffran Viðskipti innlent Fá AA- í einkunn Viðskipti innlent Spá þriggja prósenta verðbólgu á næsta ári Viðskipti innlent Fleiri fréttir Fluttu eitt prósent færri farþega en í júní á síðasta ári Fá AA- í einkunn Afkoma ríkisins neikvæð um 182 milljarða Neytendastofa tæklar bílastæðamálin Kristjana nýr framkvæmdastjóri Saffran Loka Te og kaffi á Suðurlandsbraut Eitt app fyrir ferðamenn til að skemmta sér og forðast hættur Of snemmt að draga fram heykvíslar Alvarlegt að forstjóri Samkeppniseftirlitsins taki undir með ASÍ og FÍB Fríverslunarsamningur EFTA og Víetnam í höfn Hægt að ráðstafa séreign í október frá og með 1. janúar Samkeppniseftirlitið hugsi yfir verðbreytingum olíufélaganna Drangar kaupa Brauð & Co Gul viðvörun hjá öllum og fjörutíu prósent á rauðu Mango opnar í Kringlunni Landsbankinn annast skráningu Styrkáss Má gefa börnunum sínum peninga? Vinna að því að fella niður kolefnisgjöld á strandsiglingar „Lukkuhjól“ Byko talið villandi fyrir neytendur Nýr framkvæmdastjóri Kalon Áfengisgjaldið tvöfalt hærra en veiðigjaldið en varla rætt Bera sig eftir viðskiptasamböndum Bakkusar „Maður er reiður og sár“ Verðhækkanirnar vonbrigði Guðrún Gígja nýr yfirlögfræðingur hjá Fossum Þórunn og Svali til Íslandsbanka Verðbólga eykst lítillega Ingólfur kaupir Ísbúð Vesturbæjar Vara við aðskotaefni í tei Bryndís frá Danmörku til Ölgerðarinnar Sjá meira