Þrívíddarprentaður Audi Finnur Thorlacius skrifar 10. nóvember 2015 10:02 Auto Union Typ C grand prix í hlutföllunum 1:2. mashable.com
Uppáhaldsleikfang Audi um þessar mundir er ekki þessi smækkaða útfærsla Auto Union Typ C grand prix bíll frá 1936, heldur þrívíddarprentarinn sem skóp hann. Bíllinn er í hlutföllunum 1:2, en hann er ekki úr plasti eins og flestir þrívíddarprentarar prenta úr, heldur úr stáli. Þessi prentari er fær um að prenta bæði úr stáli og áli og er stálið og álið úr fínmuldum salla þar sem hvert korn er helmingi minna en breidd mannshárs. Ástæðan fyrir því að gamli Auto Union sportbíllinn er ekki í fullri stærð er sú að prentarinn ræður ekki við svo stóran hlut í einni prentun. Nákvæmni prentarans er ótrúleg og styrkur þeirra hluta sem hann prentar er meiri heldur en ef bíllinn hefði verið smíðaður á hefðbundinn hátt. Audi sér framtíð í því að prentarar eins og þessi geti framleitt í miklu magni flókna smíðishluti á styttri tíma en með öðrum þekktum aðferðum. Auto Union er eitt þeirra fjögurra bílamerkja sem Audi varð til úr við sameiningu þeirra allra.
Mest lesið Afsalar sér verðlaunum fyrir Sykurbað Innlent Ráðherrabrölt Flokks fólksins kostað 18 milljónir Innlent Hafi þegið pening fyrir að giftast kærustu Quang Le Innlent Þingheimur hló að þýðingu Daða Más Innlent Gríðarstór vatnselgur undir Breiðholtsbrú Innlent Mannréttindadómstóllinn vísar máli Nöru frá Innlent Vilja 25 billjónir: „Það þarf peninga til að drepa vonda kalla“ Erlent Hart sótt að fjármálaráðherra Innlent Uppgjör í undirheimunum undir Höfðatorgi Innlent Dælan anni ekki vatnsmagni Innlent