Sæþór Ásgeirsson, Þór Bachmann, Ágúst Guðbjörnsson og Gunnar Eiríksson standa að baki fyrirtækinu Icewind sem hannar og hyggst framleiða vindtúrbínur. Hið svokalla stormskýli sem verkefnið snýst um á að setja upp við Hörpu.
Stormskýlið er nútímalegt strætóskýli þar sem tvær vindtúrbínur á þaki þess sjá skýlinu fyrir rafmagni, lýsingu, þráðlausu neti og aðstöðu til að hlaða síma og spjaldtölvur eða öllu sem hinn nútíma Íslendingur þarf á að halda.
Kynningarmyndband vegna verkefnisins má sjá að neðan.
Strákarnir í Icewind taka þátt í sjónvarpsþættinum Toppstöðin sem sýndur er á RÚV þar sem frumkvöðlum og hugmyndum þeirra er fylgt eftir. Eitt af verkefnunum í þeim þætti var að sækja fjármagn í gegnum fjármögnunarvefinn Karolina Fund.
Markmiðið hjá Icewind var að safna 15.000 evrum, 2,1 milljón króna, á 22 dögum sem er nokkuð bratt enda áætlar Karolina Fund að slík söfnun taki 30-40 daga. Óvæntur bakhjarl kom þó við sögu og fjármagnaði verki að fullu í síðustu viku, tveim vikum áður en söfnunni átti að ljúka.
„Við vorum frekar stressaðir yfir því að þetta myndi ekki nást hjá okkur á svona stuttum tíma,“ segir Sæþór Ásgeirsson forstjóri Icewind í samtali við Vísi.
„Við söfnuðum 5.000 evrum á fyrstu fimm dögunum svo kom inn stór styrktaraðili sem sá sér leik á borði í því að fá þarna auglýsingu á besta stað í bænum,“ en líkt og áður sagði á að setja upp skýlið í miðbæ Reykjavíkur, fyrir framan Hörpuna.

Þróa vindtúrbínur til að hita upp sumarbústaði
Sæþór og félagar eru stórhuga og er þetta litla stormskýli aðeins lítil hugmynd ætluð til þess að vekja athygli á fyrirtækinu og vindtúrbínum sem fyrirtækið snýst í raun og veru um. Icewind er með stærri túrbínur í huga ætlaðar sumarbústaðareigendum.
„Þessar túrbínur sem eiga að fara á strætóskýlið eru í rauninni bara smækkuð útgáfa af túrbínunum okkar sem við ætlum að vera með fyrir sumarbústaði,“ útskýrir Sæþór. Hugmyndin er sú að vindtúrbínan framleiði raforku sem sé færð inn á rafgeyma. Þaðan taki varmadæla við og umbreyti raforkunni í varmaorku sem nota megi til þess að hita upp sumarbústaði.
„Vindmyllan ein og sér væri ekki nóg til að hita upp heilan sumarbústað. Hún þyrfti að vera næstum því þrisvar sinnum stærri til þess að framleiða svo mikla orku. Það vill líklega enginn setja upp 10 metra hátt ferlíki við sumarbústaðinn sinn. Við leysum þetta vandamál því með því að setja saman lítil og einföld kerfi þannig að sem minnst beri á þessu.“
Ætla sér að losa fjarskiptamöstur við óumhverfisvæna orkugjafa
Þeir félagar ætla þó ekki að staldra við í íslenskum sumarhúsabyggðum, í raun sjá þeir fyrir sér að aðalmarkaður fyrirtækisins verði erlendis og þar stefna þeir helst á framleiðslu raforku fyrir fjarskiptamöstur.

Það sem er þó næst á dagskrá er stormskýlið umtalaða. Strákarnir fá fjármögnunina afgreidda frá Karolina Fund um áramótin. Þá tekur við samsetning og uppsetning en áætlað er að stormskýlið verði vígt þann 1. febrúar næstkomandi. Sæþór útilokar ekki að fleiri slík muni rísa víðsvegar um borgina gangi verkefnið vel.
„Við gerum þetta í samstarfi við AFA JCDecaux og Reykjavíkurborg. Ef þetta gengur vel er aldrei að vita nema þetta verði aukabúnaður eða jafnvel staðalbúnaður á strætóskýlum Reykjavíkur.“
Kynna má sér verkefnið og söfnunina á vefsíðu Karolina Fund.