Laun á almennum markaði verða leiðrétt Heimir Már Pétursson skrifar 30. október 2015 12:20 Formaður SGS segir augljóst miðað við ákvæði um rauð strik í kjarasamningum og SALEK samkomulagið að laun á almennum markaði verði leiðrétt. vísir/auðunn
Formaður Starfsgreinasambandsins segir augljóst að leiðrétta verði laun allra stéttarfélaga innan sambandsins upp úr áramótunum. Hann reikni með að það geti gerst án átaka en að öðrum kosti séu uppsagnarákvæði í kjarasamningunum. Í kjarasamningum á almennum vinnumarkaði eins og VR og stéttarfélaga innan Starfsgreinasambandsins eru rauð strik varðandi launahækkanir annarra eftir að þeir kjarasamningar voru gerðir, sem og um þróun kaupmáttar. Endurskoða á kjarasamningana fyrir 28. febrúar í þessu tilliti. Í vikunni var síðan gengið frá svo kölluðu SALEK samkomulagi milli aðila vinnumarkaðrins, stjórnvalda og sveitarfélaganna sem setur ramma utan um launaþróunina fram til ársins 2019 og er þar miðað við ríflega 30 prósenta launahækkun á tímabilinu. Björn Snæbjörnsson formaður Starfsgreinasambandsins segir augljóst að launafólk muni fá viðbótar launahækkanir upp úr áramótunum miðað við þessar forsendur. „Það þarf að gera það og það er verkefni sem við munum fara í. Við þurfum að ganga frá því fyrir 1. febrúar að ná samkomulagi við Samtök atvinnulífsins um þessa leiðréttingu,“ segir Björn Laun almenns launafólks muni því væntanlega hækka um nokkur prósent. En Björn segir að innan Alþýðusambandsins eigi menn eftir að fara yfir málið og finna út hvað leiðréttingin þurfi að vera mikil áður en viðræður um hækkun launa í kjarasamningunum verði rædd við Samtök atvinnulífsins.Og heldur þú að það muni gerast átakalaust? „Það er náttúrlega búið að ná þarna ákveðinni niðurstöðu. Það þýðir að það sem vantar upp á verður að leiðrétta. Þannig að ég hef trú á að það geti gengið eðlilega fyrir sig,“ segir Björn. Annars væri SALEK samkomulagið til lítils? „Ef ekki næst samkomulag þá er uppsagnarheimild fyrir hendi. Þannig að þá fellur þetta bara ef ekki er hægt að ná samkomulagi,“ segir Björn Snæbjörnsson.
Mest lesið Draumur Demókrata að rætast Erlent Dragi uppsagnirnar til baka Innlent Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Erlent Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Erlent Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Innlent Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli Innlent Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Innlent Bein útsending: Tölur berast frá kjörstöðum vestanhafs Erlent Nemandi nýtti sér öryggisbrest og reyndi að breyta einkunum annarra Innlent Reynslumikill flugmaður við stjórnina Erlent Fleiri fréttir Miðflokkurinn bætir við sig fylgi Skoða fæðingarorlofsmálin Dragi uppsagnirnar til baka Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Þrír handteknir fyrir rán Telur uppsagnir geta leitt til kostnaðar seinna meir Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Nemandi nýtti sér öryggisbrest og reyndi að breyta einkunum annarra Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli „Rangfærslur og jafnvel hreinar lygar“ Lögregla telur sig komna með „þokkalega skýra mynd“ Barði barn en málið fyrndist Bárust skrýtin skilaboð þegar sambandinu lauk „Fræða en ekki hræða“ „Það er öllum ljóst að hann hefur frekar verið þeirra megin“ Fullyrða að Daði Már hafi logið að þinginu „Hvernig getur svona klikkuð manneskja ekki ákveðið að gera neitt meira?“ Kosningar í Bandaríkjunum og utanríkisráðherra ræðir Rússa Skipaður formaður 6. áfanga rammaáætlunar Reikna með þrettán milljarða afgangi á næsta ári Fluttur með björgunarskipi þegar þyrlan gat ekki lent vegna þoku Kynntu fjárhagsáætlun borgarinnar Kolbeinsey lifir enn þrátt fyrir spádóma um annað Játaði að hafa makað saur á hurðarhúna Kynntu verkefnið Verum viðbúin „Ekki bíða eftir fyrsta snjónum“ Rússar hnýta í Þorgerði Katrínu vegna ummæla um skrif Heimis Más Fjögurra bíla árekstur við N1 í Ártúnsbrekku „Ég neita að leyfa fæðingarorlofssjóði að stjórna mínu lífi“ Líkamsárás í miðbænum Sjá meira