Laun verkafólks 30 prósent lægri en á öðrum Norðurlöndum Sunna Karen Sigurþórsdóttir skrifar 27. janúar 2015 15:37 vísir/vilhelm
Munurinn á dagvinnulaunum á Íslandi og hinum Norðurlöndunum er mun minni meðal tekjuhærri hópanna en hjá tekjulægri hópunum. Þannig eru dagvinnulaun stjórnenda á Íslandi í raun fimm prósent hærri en að meðaltali hjá öðrum Norðurlöndum. Þetta kemur fram í samantekt ASÍ. Í samantektinni segir að hluta af þessum mun megi skýra með minni tekjujöfnunaráhrifum íslenska skattkerfisins, þar sem hátekjur hér á landi eru skattlagðar mun minna en hjá öðrum Norðurlöndunum. Því verði hlutfallslega meira eftir í buddu hátekjuhópa hér á landi.Þegar litið er á dagvinnulaun sérfræðinga eru þau um þrjú til fimm prósent lægri hér á landi en í hinum löndunum. Hæst eru laun sérfræðinga í Noregi en lægst í Svíþjóð. Mestur munur á dagvinnulaunum er gagnvart verkafólki og þjónustu-, sölu- og afgreiðslufólki. Í samantektinni kemur fram að hér á landi séu dagvinnulaun verkafólks allt að þrjátíu prósent lægri en að meðaltali á hinum Norðurlöndunum. Þá er meiri munur á launum kvenna en karla í öllum starfsstéttum. ASÍ segir það benda til þess að óleiðréttur launamunur kynjanna sé meiri hér á landi en á hinum Norðurlöndunum.Lesa má samantektina alla hér.
Mest lesið Enginn ávinningur annar en einfaldlega hrært vatn Innlent „Hver sofnaði á verðinum?“ Innlent Hraun runnið að Grindavíkurvegi Innlent Siggi stormur stendur við spána Innlent Skrifaði á sig í gríð og erg og fær engar bætur eftir uppsögn Innlent Fjórir gíslar frelsaðir á Gasa Erlent Vinstri græn geti farið í sögubækurnar Innlent „Þetta er nánast allt eins og við áttum von á“ Innlent Lyfjarisinn veitir offitufræðslu: „Hvaðan á þetta að koma?“ Innlent Drápu 93 við að bjarga gíslunum fjórum Erlent Fleiri fréttir Áhlaupinu lokið en annað ekki útilokað „Verið að ráðast á lýðræðið og boðar aldrei gott“ „Hver sofnaði á verðinum?“ Vinstri græn geti farið í sögubækurnar Brennó, pönnukökubakstur og stígvélakast á landsmóti „Þetta er nánast allt eins og við áttum von á“ Grindavíkurvegur undir hraun og alvarleg árás á forsætisráðherra Skrifaði á sig í gríð og erg og fær engar bætur eftir uppsögn Hraun runnið að Grindavíkurvegi Enginn ávinningur annar en einfaldlega hrært vatn Borgarstjórinn tekinn í listflug á flugsýningu Engin orð sem lýsa deginum örlagaríka í Grindavík Siggi stormur stendur við spána Lyfjarisinn veitir offitufræðslu: „Hvaðan á þetta að koma?“ Telur kjördæmin of stór og vill jafna vægi atkvæða Þyngri dómur fyrir að nauðga barnungri mágkonu 12 þúsundasti íbúi Árborgar heiðraður Dómar vegna manndrápsins í Hafnarfirði þyngdir Krísufundur VG, ónýt stúka og tónleikar í beinni „Finnum að það er upplifun einhverra íbúa að okkur sé alveg sama“ Fluttur á sjúkrahús eftir árekstur nærri Hvalfjarðargöngum Land er hætt að síga í Svartsengi Vinstri græn flýta landsfundi Mótmælendur höfða mál á hendur ríkinu Strandveiðimenn mótmæltu við Alþingishúsið: „Þurfum að gera talsverðar breytingar á kerfinu“ Settu af stað umbótaáætlun sem skilaði ekki árangri Íbúar óánægðir með borgina sem kemur í veg fyrir Bónusverslun Koma upp viðbragðshóp vegna áhrifa kuldakastsins Dómur vegna skotárásar þyngdur verulega Vill upplýsingar um bótasvik öryrkja Sjá meira