Krónan kostar hverja fjölskyldu milljón á ári Óli Kristján Ármannsson skrifar 9. desember 2015 07:00 Hver fjölskylda borgar áttatíu þúsund á mánuði vegna viðbótarkostnaðar við íslenska krónu.
Aukakostnaður þjóðarinnar af því að halda úti íslenskri krónu nemur 110 til 130 milljörðum á ári, samkvæmt samantekt í nýjasta tölublaði efnahagsritsins Vísbendingar. Ráðist er í útreikninginn í tilefni af svari fjármálaráðherra til Björgvins G. Sigurðssonar, varaþingmanns Samfylkingar, um hver væri áætlaður beinn árlegur vaxtakostnaður íslenskra heimila og fyrirtækja vegna krónunnar, samanborið við vaxtastig alþjóðlegrar myntar á borð við evru. Í skriflegu svari ráðherra í byrjun mánaðarins er áætlað að kostnaður heimilanna við krónuna sé á bilinu 0,6 til 1,5 prósent, eða 11 til 29 milljarðar á ári. Ósvarað er spurningunni um kostnað fyrirtækja því erfiðara sé að áætla hann. Vísbending vísar hins vegar líka til greinar Svönu Helenar Björnsdóttur, formanns Samtaka iðnaðarins, í Morgunblaðinu þar sem hún vitnar í Samtök atvinnulífsins um að 70 prósent heildarskulda einstaklinga og fyrirtækja hafi verið í krónum árið 2013. Miðað við þau hlutföll segir Vísbending að skuldir fyrirtækja í íslenskum krónum nemi 1.600 milljörðum króna. „Þessi tala gefur samkvæmt útreikningum fjármálaráðherra að vaxtaálag fyrirtækjanna sé nú frá 10 til 24 milljarðar króna,“ segir í Vísbendingu. Miðað við það væri heildarkostnaður heimila og fyrirtækja 21 til 53 milljarðar á ári, miklu lægri en niðurstaða Samtaka atvinnulífsins um 210 milljarða króna hærri greiðslu vaxta en annars væru af samsvarandi skuldum á evrusvæðinu. „Nálgunin er líka gerólík. Ráðherrann notar fræðilega nálgun og vitnar í kenningar hagfræðinga á meðan Samtök atvinnulífsins nota rauntölur.“ Vísbending reynir líka að slá á kostnað vegna skulda ríkis og sveitarfélaga. Varlega áætlað er talið að krónuálag ríkisins nemi 28 milljörðum króna á ári og sveitarfélaga 12 milljörðum, eða 40 milljörðum króna samtals. Niðurstaðan er að erfitt sé að slá fastri einhverri einni tölu, en ekki sé gáleysislegt að miða við þann raunvaxtamun sem verið hafi milli Íslands og nágrannalandanna undanfarin ár. „Þær tölur segja að álag heimilanna sé milli 70 og 90 milljarðar króna.“ Við bætist kostnaður við opinberar skuldir og alls sé því aukakostnaður vegna krónu á milli 110 og 130 milljarðar króna. „Það er um það bil milljón á hverja fjölskyldu landsins eða um 80 þúsund króna kostnaður á mánuði. Þetta er iðgjaldið sem landsmenn borga til þess að geta með reglubundnum hætti leiðrétt mistök í hagstjórninni.“
Mest lesið Skotvopnin reyndust leikfangabyssur Innlent Viðræður við Íran hefjist á morgun Erlent Miðaði byssu á annan mann Innlent Tveir lagðir við gangstéttina Innlent Sárt að geta ekki sagt ömmu sinni frá sakleysi sínu Innlent Játaði að hafa flutt líkið í ferðatösku Erlent Siggi stormur sár en dregur ekki í land Innlent Knapi datt af baki Innlent „Þetta voru þrjátíu til sextíu sekúndur og allt húsið var að brenna“ Innlent Meirihluti hlynntur samfélagsmiðlabanni unglinga Innlent Fleiri fréttir Skotvopnin reyndust leikfangabyssur Meirihluti hlynntur samfélagsmiðlabanni unglinga Knapi datt af baki Miðaði byssu á annan mann Tveir lagðir við gangstéttina Enn brotist inn í miðbænum „Þetta voru þrjátíu til sextíu sekúndur og allt húsið var að brenna“ Fundu byssur í bílum og handtóku fimm Greinir á við kjósendur sína Maður á sjötugsaldri kýldi konu til blóðs í miðbænum Þrír handteknir eftir átök í heimahúsi Sexan millilendir aftur í Reykjavík Siggi stormur sár en dregur ekki í land Sveitarstjóri hefur miklar áhyggjur af ástandi Vestfjarðavegar Grunaður um sölu fíkniefna á Þjóðhátíð Efnahags- og Evrópumál, hvalveiðar og laxeldi á landi á Sprengisandi Handtóku níu og nutu liðsinnis sérsveitar vegna staks eggvopns Sárt að geta ekki sagt ömmu sinni frá sakleysi sínu Myndir: Heimilisfólk komst út heilt á húfi Sumarhús við Þingvallavatn eyðilagðist í eldsvoða Tap vegna ótímabærra veðurspáa hlaupi á milljónum Lét lögreglu fá rauðtússaðan miða: „Ekki einhverjir fylliraftar innan úr miðborg Reykjavíkur“ Gekk um með barefli öskrandi og ógnaði Minkur í Vestmannaeyjum tilkynntur til Mosfellsbæjar Gagnrýna meðferð lögreglu á áhöfninni Hvorki tilkynnt um kynferðisbrot né líkamsárás fyrstu nóttina Líður eins og Gísli á Uppsölum sé kominn heim Slasaðist á fæti uppi á hálendi Veðrið „eins og eftir pöntun“ Guðmundur Felix kominn með krabbamein Sjá meira