Innlent

Nýjasti íslenski milljónamæringurinn beið í viku

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Potturinn var fimmfaldur.
Potturinn var fimmfaldur. Vísir/Vilhelm
Tæplega fimmtugur karlmaður varð rúmlega 45 milljónum króna ríkari eftir að hann fékk fyrsta vinning í Lottóinu fyrir rúmri viku. Potturinn var fimmfaldur og var miðinn keyptur í Olís við Sæbraut í Reykjavík.

Í tilkynningu frá Íslenskri getspá segir að maðurinn hafi vegna lasleika ekki komist til að fá miðann sinn staðfestan fyrr en rúmri viku eftir úrdráttinn. Hann hafi verið í vægu sjokki og varla farinn að trúa því sem gerst hefði.

„En alsæll var hann og væntanlega verður brosað út að eyrum við jólagjafainnkaupin á þessu heimili,“ segir í tilkynningunni.

 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×