Landsmenn hlýðnir í ofsanum Sveinn Arnarson skrifar 9. desember 2015 06:00 Björgunarsveitir á landinu öllu sinntu hátt í fjögur hundruð útköllum í gær vegna veðurofsans. Hæst fór vindurinn í 72,6 metra á sekúndu á Hallormsstaðahálsi um ellefu leytið í fyrrakvöld sem samsvarar 260km hraða á klukkustund. Visir/Vilhelm
Veðurofsinn sem gekk yfir og landið í fyrradag og síðustu nótt olli nokkru tjóni vítt og breitt um landið. Rafmagnslaust varð á stórum svæðum þar sem flutningskerfið réði ekki við veðurofsann. Skaftafellssýslur í suðaustri duttu út um tíma, en einnig var rafmagnslaust á öllu Austurlandi, Norðurlandi og Vestfjörðum. Mikið var að gera hjá starfsmönnum Landsnets við að reyna að halda raforkukerfinu gangandi. Nokkra daga mun nú taka fyrir starfsmenn Landsnets og RARIK að koma flutningskerfi raforku í samt lag. Umtalsvert tjón varð á flutningskerfinu í óveðrinu og línur féllu niður á fimm stöðum á landinu. „Landsnet vonast til að viðgerð ljúki á næstu tveimur sólarhringnum á byggðalínuhringnum sem laskaðist í óveðrinu. Ljóst er að viðgerð á línum á Vestfjörðum mun taka lengri tíma. Þegar verst lét var straumleysi mjög víðtækt rekstur flutningskerfisins tvísýnn og er það enn. Tjón Landsnets er talsvert og talið að það verði líklega yfir 100 milljónir króna,“ segir í tilkynningu Landsnets. Óveðrið skall fyrst á Suðurlandið um miðjan dag í gær með aftakaveðri í Vestmannaeyjum. Síðan færðist óveðrið hægt og rólega yfir landið og um miðja nótt var orðið mjög hvasst á Vestfjörðum og í Skagafirði, þar sem vindur náði um 40 metrum á sekúndu þegar mest lét.Björgunarsveitirnar sinntu um 400 útköllum um allt land í gær. Fyrirhyggja landsmanna gerði gæfumuninn að mati björgunarsveitarmanna.Björgunarsveitir á landinu öllu sinntu hátt í fjögur hundruð útköllum í gær vegna veðurofsans. Hæst fór vindurinn í 72,6 metra á sekúndu á Hallormsstaðahálsi um ellefu leytið í fyrrakvöld sem samsvarar 260km hraða á klukkustund. Yrðu menn vart til frásagnar stæðu þeir úti í slíkum vindi. Vegagerðin ákvað í samráði við lögreglu og björgunarsveitir að morgni mánudagsins að loka mörgum vegarköflum til að fyrirbyggja óhöpp. Fréttablaðið hefur náð tali af mörgum formönnum aðgerðastjórna Landsbjargar. Eru þeir á einu máli um að þetta fyrirkomulag hafi heppnast og minnkað álag á björgunarsveitirnar. Með því móti hafi verið hægt að takast á við öll þau útköll sem bárust og að hætta á manntjóni hafi verið lítil sem engin. Einnig eru aðgerðastjórarnir sem Fréttablaðið ræddi við á einu máli um að landsmenn hafi farið eftir fyrirmælum Almannavarna og að það hafi verið lykillinn að því að lágmarka tjón af völdum veðurofsans. Jón Hermannsson, svæðisstjóri Rangárvalla- & Vestur Skaftafellssýslu, segir veðrið geta valdið stórhættu fyrir ferðamenn. „Það sem skiptir líka máli er að allir lögðust á eitt við að koma skilaboðum áleiðs. Erlendir ferðamenn á svæðinu vissu allflestir um hvað var í vændum. Við þurftum ekki að bjarga þeim eftir að rúður höfðu brotnað í bílum þeirra eins og við höfum oft þurft að gera. Þetta fyrirkomulag var til fyrirmyndar,“ segir Jón.
Mest lesið Freyr látinn fara frá Eflingu Innlent Ákærðir fyrir að frelsissvipta mann og nauðga með röri Innlent María Sigurðardóttir er látin Innlent Fulltrúi Íslands yfirgaf ekki salinn með hinum Innlent Segir Ingu hafa vitnað í trúnaðarsamtal Innlent Meira um krabbamein hjá yngra fólki sem eigi að borða rautt kjöt mest einu sinni í viku Innlent Segir Ingu hafa eytt sér á Facebook Innlent Sárnar að vera bendlaður við líkamsárás Innlent Holmes flutt á áfangaheimili Erlent Veita ekki viðtöl eftir ríkisstjórnarfund Innlent Fleiri fréttir Hafa skotið um hundrað bjargdúfur í Vestmannaeyjum Ákærður fyrir gróf brot á barnungri stjúpsystur sinni Sjaldgæfur gestur í Eyjum Bað um álit lögreglu á gæðum fíkniefna Skriða þveraði veginn í Árneshrepp Breiðholtsbraut lokuð allan morgundaginn Allt umfram 2,8 milljarða dregið frá Segir Ingu hafa eytt sér á Facebook Húsbíll fauk út af Hver ákvað að Guðmundur Ingi ætti að hætta? Gæsluvarðhald framlengt yfir þremur Ákærðir fyrir að frelsissvipta mann og nauðga með röri Fundu umfangsmikla kannabisrækt í Bolungarvík „Nauðsynlegt er að kjarasamningar haldi“ Sárnar að vera bendlaður við líkamsárás Freyr látinn fara frá Eflingu Segir Ingu hafa vitnað í trúnaðarsamtal Stefna á að taka inn skjólstæðinga í næstu viku Segir Ingu hafa brotið trúnað í ræðustól Alþingis Bein útsending: Sjálfsvíg á Íslandi – staðan, forvarnir og leiðin fram á við „Við erum ekki að byrja á núlli“ Fimm ára dómur Norberts staðfestur Veita ekki viðtöl eftir ríkisstjórnarfund Jöfnuður næst ekki í um öðrum hverjum kosningum Kjarni málsins sé að Inga hafi ekki sagt alveg rétt frá Endurskoða samning SÁÁ María Sigurðardóttir er látin Handtekinn fyrir líkamsárás, rán, íkveikju og þjófnað Fulltrúi Íslands yfirgaf ekki salinn með hinum Meira um krabbamein hjá yngra fólki sem eigi að borða rautt kjöt mest einu sinni í viku Sjá meira