Bókin talar beint inn í okkar tíma Kjartan Atli Kjartansson skrifar 9. desember 2015 08:00 Þjóðleikhúsið ætlar að setja Gott fólk í sýningu á næsta leikári.
Þjóðleikhúsið hefur tryggt sér réttinn á bókinni Gott fólk eftir Val Grettisson. Bókin kom út í sumar og hefur fengið lof gagnrýnenda og jafnt sem lesenda. Hún fjallar í stuttu máli um menningarblaðamanninn Sölva sem fær bréf í ábyrgðapósti, í votta viðurvist. Bréfið er frá fyrrum kærustu hans og í því spyr hún hann hvort hann gangist við því að hafa beitt hana ofbeldi í sambandi þeirra. Hann getur einungis svarað „já“ eða „nei“. Sölvi viðurkennir að hann hafi verið ruddalegur við fyrrum kærustu sína og merkið því við „já“. Sú ákvörðun hrindir af stað atburðarás sem hvorugt þeirra sá fyrir, líf þeirra gjörbreytist. Þegar upp er staðið veit hann sjálfur ekki hvað er satt og hvað er logið í því sem sagt er um samband þeirra, hver beitti hvern ofbeldi og missir í raun sjónar á skilgreiningu hugtaksins. Ari Matthíasson þjóðleikhússtjóri segir söguna tala beint inn í þá umræðu sem nú sé í gangi í þjóðfélaginu. Hann segir það vera eindreginn ásetning hans fólks að verkið fari í sýningu á næsta leikári.Í skýjunum Sjálfur segist höfundur bókarinnar, Valur Grettisson, vera í skýjunum. „Ég er bara virkilega ánægður. Bókin er einhvernveginn orðin sjálfstætt fyrirbæri og farin að eignast sitt eigið líf. Mér finnst þetta auðvitað heiður; að einhver trúi á söguna og að hægt sé að gera góða leikgerð úr henni. Að mínu mati er Þjóleikhúsið líka toppurinn í leikhúsi á Ísland og mér finnst það djörf pæling að setja verkið upp þar.“ Valur mun sjálfur taka þátt í ferlinu, hann mun skrifa leikgerðina ásamt Símoni Birgissyni dramatúrg. „Mér þykir vænt um að fá að fylgja þessu eftir og vera með í þessu ferli. Ég held að þetta verðu ögrandi, hættulegt og skemmtilegt verkefni,“ bætir hann við.Ari Matthíasson þjóðleikhússtjóri.Vísir/ErnirFólk hækkar róminn Ari Matthíasson er ákaflega hrifinn af bókinni og finnt hún eiga vel við umræðuna sem er í gangi í þjóðfélaginu um þessar mundir. „Hún tekur á kynbundnu ofbeldi og mismunandi skilgreiningu á því, hvað fer á milli tveggja einstaklinga. Hún getur fjallað um leyfi okkur til að endurskilgreina atburði fortíðarinnar sem gefa þeim nýtt vægi og nýja stöðu. Sagan hreyfir við lesandanum, því hún sýnir hversu erfið þessi mál geta verið, hvernig þau geta neytt fólk til að taka afstöðu í máli sem það hefur takmarkaðar upplýsingar um.“ Ari segir að þegar bókin hafi verið rædd á fundum hafi hann fundið hvernig allir hækkuðu róminn aðeins. „Þetta er eldfimt efni, þessi saga. Og maður fann hvernig fundirnir fóru stundum út í hamagang því þetta skiptir fólk miklu máli. Það er áhugavert að skoða þessi mál og velta, til dæmis fyrir sér hver hlutur fjölmiðla og samfélagsmiðla sé.“ Ari bætir því að honum þyki mikilvægt að kona leikstýri sýningunni. „Fyrsta sem ég hugsaði þegar las bókina var að kona þyrfti að setja þetta upp. Það er karl sem skrifar og hún er sögð frá sjónarhorni karls. Ég hef mikinn áhuga á þessari sögu og varð strax viss um að þetta gæti orðið að góðu leikverki.“Gott fólk eftir Val Grettisson.Gott fólk fékk fjórar stjórnur frá gagnrýnanda Fréttablaðsins. Um hana segir meðal annars:Spurningarnar sem Valur veltir upp í þessari fyrstu skáldsögu sinni eru knýjandi og undarlegt hve lítið hefur farið fyrir þessari bók í umræðunni. Vísunin í þekkt mál af sama toga sem komst í hámæli fyrir nokkrum árum veldur kannski því að fólk veigrar sér við að ræða þetta, en þótt líkindin séu augljós er hér vissulega um skáldsögu að ræða.Góða skáldsögu meira að segja; vel skrifaða með skýrri persónusköpun, þaulhugsaðri atburðarás og sterkum spurningum um það hver staðan sé á samskiptum kynjanna í samtímanum. Frasinn um að skila skömminni þangað sem hún á heima er undirliggjandi í málflutningi konunnar en um leið horfir hún og stuðningsmenn hennar framhjá þeirri staðreynd að á meðan á ástarsambandinu stóð bar hún aldrei fram ásakanir um ofbeldi og tók þátt í leiknum. Ber hún þá enga ábyrgð á samskiptamunstrinu? Er það á ábyrgð karlmannsins að passa að ekki sé gengið yfir ákveðin mörk í ástarsambandi? Hvert er í raun ábyrgðarferlið?
Menning Mest lesið „Ekkert okkar grunaði að hann myndi fara þessa leið“ Lífið Jóhanna Guðrún og Ólafur giftu sig Lífið „Greyið, hann þarf að horfa á mig deyja“ Lífið Destiny's Child með óvænta endurkomu Lífið Myndaveisla: Landinn skemmti sér konunglega í Vaglaskógi Lífið Bandaríkjaforseti birtir bull í bunkum Lífið Íslendingar geta verið sóðar Lífið samstarf Jóhanna Guðrún gæsuð Lífið Gervigreindarfyrirsæta í Vogue vekur ugg Tíska og hönnun Dóttir Jóhönnu Guðrúnar hlaut nafnið Jóhanna Guðrún Lífið Fleiri fréttir Gordon Ramsay gerir upp Íslandsævintýri „Ekkert okkar grunaði að hann myndi fara þessa leið“ Destiny's Child með óvænta endurkomu Jóhanna Guðrún og Ólafur giftu sig Myndaveisla: Landinn skemmti sér konunglega í Vaglaskógi Bandaríkjaforseti birtir bull í bunkum Óvæntur Johnny Depp heiðraði Ozzy með Alice Cooper „Greyið, hann þarf að horfa á mig deyja“ Krakkatían: Dvergarnir sjö, klukkuturn og plánetur Ragga Holm og Elma giftu sig „Seldist upp í rúturnar nánast jafn snarlega og á tónleikana“ Unaðsvörur Harry Styles valda titringi Líf og fjör í Reykholti í Borgarfirði um helgina á Reykholtshátíð „Það er í raun kraftaverk að hún sé á lífi í dag“ Fréttatía vikunnar: Stórtónleikar, NBA-stjarna á klakanum og heimsfræg lesbía Fólk farið að flykkjast í Vaglaskóg Ása Ninna kveður Bylgjuna Will Smith við Davíð Goða: „Haltu áfram að skapa“ Fögnuðu 181 milljarðs samningi með því að sýna Trump á typpinu Love Island-stjörnur komnar í hóp Íslandsvina „Við viljum alls ekki fá of marga“ Mannauðsstjórinn segir einnig upp Þungaður LeBron leggst þungt á LeBron „Hefði ekki getað óskað mér fallegri dags“ Litríkur karakter sem var engum líkur Hulk Hogan er látinn Fyrsta stiklan úr miðaldaþáttum Balta Rene Kirby er látinn Pamela smellti kossi á Neeson Beittu listamönnum sem leynivopni í kalda stríðinu Sjá meira