Guðrún Agnes nýr formaður úrskurðarnefndar velferðarmála Atli Ísleifsson skrifar 9. desember 2015 13:57 Guðrún Agnes Þorsteinsdóttir. Mynd/Velferðarráðuneytið
Eygló Harðardóttir félags- og húsnæðismálaráðherra hefur skipað Guðrúnu Agnesi Þorsteinsdóttur formann nýrrar úrskurðarnefndar velferðarmála til fimm ára. Nefndin tekur til starfa 1. janúar næstkomandi við sameiningu sex úrskurðar- og kærunefnda sem starfa á málefnasviði velferðarráðuneytisins. Guðrún Agnes verður jafnframt forstöðumaður úrskurðarnefndarinnar. Í tilkynningu frá velferðarráðuneytinu kemur fram að Guðrún Agnes hafi lokið lögfræðiprófi frá Háskóla Íslands árið 1991. „Hún hefur frá árinu 2008 verið framkvæmdastjóri úrskurðarnefndar almannatrygginga. Árin 2001 til 2008 starfaði hún í félagsmálaráðuneytinu þar sem hún sinnti margvíslegum lögfræðilegum verkefnum og starfaði meðal annars fyrir úrskurðarnefnd fæðingar- og foreldraorlofsmála, kærunefnd jafnréttismála og kærunefnd húsnæðismála. Áður starfaði hún um árabil hjá yfirskattanefnd en einnig hjá sýslumanninum í Reykjavík. Úrskurðar- og kærunefndir sem sameinast í nýrri úrskurðarnefnd velferðarmála við gildistöku laga um úrskurðarnefndina nr. 85/2015 1. janúar næstkomandi eru kærunefnd barnaverndarmála, kærunefnd greiðsluaðlögunarmála, úrskurðarnefnd almannatrygginga, úrskurðarnefnd atvinnuleysistrygginga og vinnumarkaðsaðgerða, úrskurðarnefnd félagsþjónustu og húsnæðismála og úrskurðarnefnd fæðingar- og foreldraorlofsmála. Ákvörðun um sameiningu nefnda byggist á því að skapa eina öfluga starfseiningu með föstu starfsfólki sem sinnir þessum verkefnum í fullu starfi. Markmiðið er að auka hagkvæmni og bæta vinnubrögð. Kærum hefur fjölgað mikið á liðnum árum og þær nefndir þar sem málafjöldi er mestur hafa átt í erfiðleikum með að úrskurða innan lögbundinna fresta. Þar sem úrskurði varða oft mjög mikilsverða hagsmuni kærenda er því brýnt að bæta úr þessu. Gert er ráð fyrir að starfsmenn kærunefndar velferðarmála verði 12-14,“ segir í tilkynningunni.
Mest lesið Inga kemur Ingó til varnar Innlent Íslendingurinn var nemandi í lýðháskóla Innlent Maðurinn fannst látinn í gilinu Innlent Furðar sig á þögn yfir „einu helsta áhyggjuefni Íslands“ Innlent Óvenjulegu tímabili að ljúka Innlent Ísland kunni að kreista veski ríkra ferðamanna Innlent Yfirgefa húsið fyrir fullt og allt á fimmtudag Innlent Inga vill ekki setja „tugi milljarða í loftslagsmál“ Innlent Konan ákærð fyrir manndráp á Edition Innlent „Var þetta einhver skets?“ Innlent Fleiri fréttir „Skemmtilegra ef við hefðum lent á hinu árinu“ Sakar framkvæmdastjóra Landspítala um ósannindi Yfirgefa húsið fyrir fullt og allt á fimmtudag „Við verðum að fá fólk heim aftur“ „Komið þá með allt það sem gerðist síðast“ Fyrstu íslensku GPS-heiðlóurnar komnar heim Harmleikurinn á Edition og umdeild bifreiðarstöð Óvenjulegu tímabili að ljúka Jón Pétur segir enga feðraveldisrembu í „árþúsunda náttúruvali“ Heimilt að nota rafrænt eftirlit í nálgunarbannsmálum „Það þarf að taka í handbremsuna strax“ „Var þetta einhver skets?“ Inga kemur Ingó til varnar Íbúar funda aftur um stöðu Kaffistofunnar Konan ákærð fyrir manndráp á Edition Eden Mining vill ekki sjá málið fyrir dómstólum Ísland kunni að kreista veski ríkra ferðamanna Íslendingurinn var nemandi í lýðháskóla „Mér finnst þetta ákaflega dapurleg framganga“ Sjö þúsund störf gætu verið unnin af gervigreind Vill hætta veiðum en græna ljós Bjarna gildi Hitafundur í utanríkismálanefnd og ráðherra boðar breytingar á hvalveiðilögum Inga vill ekki setja „tugi milljarða í loftslagsmál“ Beitir sér ekki sérstaklega fyrir því að spurningunni verði breytt Stjórnarþingmaður segir Hafró í bullandi pólitík Handteknu hafa komið áður við sögu hjá lögreglu Bein útsending: Kristrún svarar spurningum um þjóðaratkvæðagreiðslu Tveir handteknir í tengslum við stórfellda líkamsárás Furðar sig á þögn yfir „einu helsta áhyggjuefni Íslands“ Krónu kastað fyrir aurinn í fjármögnun skóla Sjá meira