Opna bjórskóla og brugghús úti á Granda ingvar haraldsson skrifar 3. júní 2015 07:00 Bjórinn á nýjum veitingastað úti á Granda verður bruggaður á staðnum. nordicphotos/getty
Opna á veitingastað við Grandagarð 8 síðar í sumar þar sem bæði verður bruggaður bjór á staðnum og haldin bjórnámskeið í bjórskóla staðarins. „Þetta er eitthvað sem er alveg nýtt,“ segir Fjóla Guðrún Friðriksdóttir, ein aðstandenda staðarins, en hún segist ekki vita til þess að áður hafi verið boðið upp á bjór á íslenskum veitingastað sem bruggaður sé á staðnum. Sérstakur bruggmeistari verður við störf á veitingastaðnum en á næstu dögum verður átta bruggkútum komið fyrir á þar. Undirbúningur fyrir opnun er í fullum gangi. Iðnaðarmenn hafa nýlokið störfum og nú tekur við parketlagning og uppsetning á eldhúsi. Vonast er til að opna staðinn fyrir verslunarmannahelgi en endanlegt nafn er ekki komið á staðinn.Sprenging í bjóráhuga landsmannaStefán Pálsson, sagnfræðingur og einn aðstandenda bjórskóla Ölgerðarinnar, segir að sprenging hafi orðið í áhuga á öllu tengdu bjór að undanförnu. Í vetur hafi Skúli Craft Bar verið opnaður við Aðalstræti svo og Mikkeller & Friends við Hverfisgötu. Báðir barirnir gefi sig út fyrir að bjóða upp á mikið bjórúrval. Þá eigi einnig að opna bjórgarð við nýtt Fosshótel við Höfðatorg. „Þess utan er það eiginlega alveg búið sem var að á matseðlinum á betri veitingastöðum væru tvær til þrjár tegundir af keimlíkum lagerbjór,“ segir Stefán. Sagnfræðingurinn óttast ekki aukna samkeppni við bjórskóla Ölgerðarinnar sem stofnaður var fyrir fimm árum. „Forsendur þess að til þess að hægt sé að standa undir öllum þessum „gourmet“-börum þá verður náttúrulega að vera stór hópur sem er tilbúinn að borga aðeins meira fyrir betri bjór þannig að það styður bara hvort annað,“ segir Stefán.
Mest lesið Hafna ásökunum um hönnunarstuld Viðskipti innlent Birgitta Líf ráðin framkvæmdastjóri Viðskipti innlent Fyrrverandi forstjóri óttast að félagið verði keypt og lagt niður Viðskipti innlent Eldrauð Kauphöll Viðskipti innlent Iðnaðurinn forherðist í andstöðu gegn ESB Viðskipti innlent Opna Lindex þar sem Útilíf var Viðskipti innlent Verða af hundruðum þúsunda á ári þegar akstursdagbókin gleymist Samstarf Taka skemmtiferðaskip í Vör Viðskipti innlent Netflix kaupir gervigreindarfyrirtæki Affleck Viðskipti erlent Hagnaður tveimur milljörðum meiri en árið áður Viðskipti innlent Fleiri fréttir Fyrrverandi forstjóri óttast að félagið verði keypt og lagt niður Iðnaðurinn forherðist í andstöðu gegn ESB Opna Lindex þar sem Útilíf var Hafna ásökunum um hönnunarstuld Losun Landsvirkjunar jókst vegna virkjanaframkvæmda Birgitta Líf ráðin framkvæmdastjóri Eldrauð Kauphöll Taka skemmtiferðaskip í Vör Hagnaður tveimur milljörðum meiri en árið áður Pipar/TBWA með flesta Lúðra Skipti ekki máli hvaðan olían er Pálmi til liðs við Sagafilm Máttu ráðast í húsleit hjá Skel og Lyfjum og heilsu Þorsteinn nýr formaður stjórnar Samtaka iðnaðarins Bein útsending: Iðnþing 2026 Birgitta Líf gefur ekkert upp um næstu skref Hildur fer frá Hörpu til KPMG Ríkarður ráðinn aðstoðarforstjóri Hrafn frá Össuri til Gosfélagsins Útflutningstekjur tækni- og hugverkaiðnaðar hærri en í sjávarútvegi í fyrsta sinn Stríðið geti ýtt undir stöðuna í hagkerfinu Bein útsending: Orkueyjan og alþjóðleg samkeppni Hagkerfið allt í hættu 69 sagt upp í tveimur hópuppsögnum Átökin geri baráttuna við verðbólguna enn erfiðari Mun leiða Fab Lab Reykjavík Jón Örn genginn í eigendahópinn Óvíst að fullyrðing um kjaragliðnun standist skoðun Halla ráðin markaðsstjóri BM Vallár Andri Þór hættir sem forstjóri Ölgerðarinnar Sjá meira