Ásókn í verðtryggt vegna kjaradeilna ingvar haraldsson skrifar 15. apríl 2015 08:00 Meiri sókn í verðtryggð skuldabréf gæti valdið því að vextir verðtryggðra lána lækki. fréttablaðið/stefán
Verðbréfa- og lífeyrissjóðir sækja nú í auknum mæli í verðtryggð skuldabréf á kostnað óverðtryggðra vegna stöðunnar sem uppi er á vinnumarkaði. Þetta segir Hrafn Steinarsson, sérfræðingur hjá Greiningardeild Arion banka. Hrafn segir fjárfesta hafa væntingar um að verðbólga aukist frekar á næstunni enda hafi fulltrúar launþega farið fram á tuga prósenta launahækkanir í kjölfar kjarasamninga sem kennarar og læknar hafa þegar gert. „Það hefur verið breitt bil milli samningsaðila og nú þegar harkan eykst þá eykst bölsýni markaðsaðila,“ segir hann. Framboðið á verðtryggðum skuldabréfum er hins vegar lítið og allt útlit fyrir að umframeftirspurn verði eftir verðtryggðum skuldabréfum á árinu að sögn Hrafns.Hrafn SteinarssonÞetta hefur valdið því að ávöxtunarkrafa á verðtryggð skuldabréf hefur lækkað verulega. „Frá áramótum hefur verðbólguálagið rokið upp vegna kjarasamninga,“ segir Hrafn. Fimm ára verðbólguálag, sem segir til um væntingar fjárfesta um meðaltalsverðbólgu næstu fimm árin, hefur frá áramótum hækkað úr 2,5 prósentum í 4,2 prósent. Fjárfestar búast því við að verðbólga verði yfir verðbólgumarkmiði Seðlabanka Íslands sem kveður á um að verðbólga skuli vera milli eins og fjögurra prósenta. Hrafn telur að til lengri tíma gæti meiri ásókn í verðtryggð skuldabréf umfram óverðtryggð valdið því að vextir á verðtryggðum lánum lækki en vextir á óverðtryggðum lánum hækki. Það gæti þó breyst ef launahækkanir í kjarasamningum verða óverulegar og verðbólga haldist áfram lág. „En eins og staðan er núna eru engar vísbendingar um að það muni gerast,“ segir Hrafn.
Mest lesið Fjölmiðla- og auglýsingabransinn: „Jú, jú, það er alveg að koma nýtt búmm!“ Atvinnulíf Sky ætlar að festa kaup á ITV Viðskipti erlent Fluttu eitt prósent færri farþega en í júní á síðasta ári Viðskipti innlent Skera niður Xbox til þess að spreða í gervigreind Viðskipti erlent Afkoma ríkisins neikvæð um 182 milljarða Viðskipti innlent Neytendastofa tæklar bílastæðamálin Viðskipti innlent Ódýrast að tjalda á Vesturlandi Neytendur Kristjana nýr framkvæmdastjóri Saffran Viðskipti innlent Kreditkortavandi hjá Landsbankanum leystur Neytendur Fá AA- í einkunn Viðskipti innlent Fleiri fréttir Fluttu eitt prósent færri farþega en í júní á síðasta ári Fá AA- í einkunn Afkoma ríkisins neikvæð um 182 milljarða Neytendastofa tæklar bílastæðamálin Kristjana nýr framkvæmdastjóri Saffran Loka Te og kaffi á Suðurlandsbraut Eitt app fyrir ferðamenn til að skemmta sér og forðast hættur Of snemmt að draga fram heykvíslar Alvarlegt að forstjóri Samkeppniseftirlitsins taki undir með ASÍ og FÍB Fríverslunarsamningur EFTA og Víetnam í höfn Hægt að ráðstafa séreign í október frá og með 1. janúar Samkeppniseftirlitið hugsi yfir verðbreytingum olíufélaganna Drangar kaupa Brauð & Co Gul viðvörun hjá öllum og fjörutíu prósent á rauðu Mango opnar í Kringlunni Landsbankinn annast skráningu Styrkáss Má gefa börnunum sínum peninga? Vinna að því að fella niður kolefnisgjöld á strandsiglingar „Lukkuhjól“ Byko talið villandi fyrir neytendur Nýr framkvæmdastjóri Kalon Áfengisgjaldið tvöfalt hærra en veiðigjaldið en varla rætt Bera sig eftir viðskiptasamböndum Bakkusar „Maður er reiður og sár“ Verðhækkanirnar vonbrigði Guðrún Gígja nýr yfirlögfræðingur hjá Fossum Þórunn og Svali til Íslandsbanka Verðbólga eykst lítillega Ingólfur kaupir Ísbúð Vesturbæjar Vara við aðskotaefni í tei Bryndís frá Danmörku til Ölgerðarinnar Sjá meira