Viðskipti innlent

Kalda loftið veitir forskot

jón hákon halldórsson skrifar
Gestur G. Gestsson, forstjóri Advania.
Gestur G. Gestsson, forstjóri Advania.
Hvorki græn orka né lágt verð á rafmagni veitir Íslandi samkeppnisforskot á önnur ríki við uppbyggingu gagnavera hér á landi.

Hins vegar veitir kalda loftið hér á Íslandi mikið forskot. Í slíku loftslagi þarf ekki að fjárfesta í sérstökum búnaði til að kæla gagnaverin. Þetta kom fram í máli Gests S. Gestssonar, forstjóra Advania, á Kauphallardögum Arion banka á dögunum.

„Það sem hefur reynst okkar samkeppnisforskot er það að við getum kælt með utanaðkomandi kælingu nánast 365 daga. Tölvubúnaður hefur verið að umbreytast þannig að nú má hiti vera orðinn 28-29 gráður inni í gagnaverinu. Það þýðir að utanhússhitinn má vera 24-25 gráður. Hitametið í Reykjavík er 24,7 gráður,“ sagði Gestur.

Gestur benti á að síðustu hundrað árin hafi hitinn í Reykjavík aldrei farið yfir 25 gráður. Ef hitinn færi upp í 28 gráður þá yrði einfaldlega slökkt á gagnaverunum.

Gestur sagði að það væri reynsla Advania að fjárfestar væru ekki reiðubúnir til að greiða fyrir græna orku.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×