Ferðast um heiminn með golfkylfur í för Jón Hákon Halldórsson skrifar 8. apríl 2015 07:00 Guðný Helga lærði í Danmörku og segist tala dönsku ágætlega. fréttablaðið/valli „
Ég er ótrúlega spennt að takast á við þetta,“ segir Guðný Helga Herbertsdóttir, sem hefur verið ráðin deildarstjóri samskiptadeildar Landspítalans. Hún mun hefja störf um miðjan maí. Guðný Helga er upplýsingafulltrúi Íslandsbanka en þar áður var hún fréttamaður á Stöð 2. „Þetta er þjóðarsjúkrahúsið okkar og skiptir okkur því öll máli,“ segir Guðný Helga þegar hún er spurð að því hvort hún hafi mikinn áhuga á heilbrigðismálum. „Maður hefur auðvitað fylgst vel með því sem er að gerast þar. Ég sá það þó betur í þessu umsóknarferli hvað það eru ótrúlega flottir hlutir unnir þarna,“ segir Guðný Helga. Hún bendir á að Landspítalinn gegni að auki mikilvægu hlutverki sem mennta- og vísindastofnun og þar sé gerður mikill fjöldi rannsókna sem eru birtar í erlendum vísindaritum en Íslendingar heyri ekki mikið um. „Það er einn þáttur sem ég vil breyta,“ segir hún. Guðný Helga útskrifaðist úr Verzlunarskóla Íslands árið 1998 og hóf svo nám í viðskiptafræði við Háskóla Íslands. Þaðan lá leið hennar til Árósa í Danmörku og hún tók meistarapróf þar við Viðskiptaháskólann í Árósum. Guðný Helga hefur tvisvar búið í Danmörku og samtals í um það bil þrjú og hálft ár. Hún segist vel geta gert sig skiljanlega á dönsku. „Ég myndi kannski ekki fara að skrifa bók á dönsku en ég get alveg átt samskipti auðveldlega á dönsku,“ segir hún. Guðný Helga og Pétur Rúnar Pétursson, sambýlismaður hennar, reka stórt heimili. Þau eiga saman dótturina Emmu Katrínu sem er eins og hálfs árs. Guðný Helga segir að litla stelpan sé í miklu uppáhaldi hjá allri fjölskyldunni og að bræður hennar stjani við hana. Guðný Helga á líka soninn Ása Goða, sem er að verða þrettán ára, og stjúpsynina Jón Alex Pétursson, sem er að verða sextán ára, og Óskar Pétursson, sem er að verða sjö ára. Fjölskyldan fer saman á skíði í frítíma sínum. „Svo spila ég golf á sumrin. Mér finnst það alveg ótrúlega skemmtilegt þótt ég sé mjög léleg í því og lítið um náttúrulega hæfileika á þessu sviði. Þetta er líka svo góð samvera með fjölskyldunni minni. Við spilum mikið með foreldrum mínum og ég hef verið í golfhópi með frænkum mínum,“ segir hún. Guðnýju Helgu finnst líka gaman að elda mat og halda matarboð. „Við gerum svolítið af því,“ segir ún og segist jafnframt reyna að prófa sífellt nýjar uppskriftir. Guðný Helga og Pétur Rúnar reyna líka að nota hvert tækifæri til að ferðast og þá eru golfkylfurnar oft með í för.
Mest lesið Sannfærð um að hún var Skoti í fyrra lífi Atvinnulíf Lagning gjaldþrota Viðskipti innlent Spennandi tími til að opna nýjan fjölmiðill Viðskipti innlent Lífsverk og Almenni lífeyrissjóðurinn í eina sæng Viðskipti innlent Fyrrverandi bankastjóri nýr forstjóri Thor landeldis Viðskipti innlent Opnar stað í anda Kaffi Vest í Fossvoginum Viðskipti innlent Trump setur tolla á lyf, vörubíla og húsgögn Viðskipti erlent Uppsagnir hjá Fjársýslunni Viðskipti innlent Fyrsta íslenska grænkera ostagerðin í hættu Viðskipti innlent Ekki of seint að breyta starfsframa eða vinnu eftir fimmtugt Atvinnulíf Fleiri fréttir Spennandi tími til að opna nýjan fjölmiðill Lífsverk og Almenni lífeyrissjóðurinn í eina sæng Lagning gjaldþrota Fyrrverandi bankastjóri nýr forstjóri Thor landeldis Edda María leiðir stafræna markaðsþjónustu Vettvangs Uppsagnir hjá Fjársýslunni Guðný ráðin fræðslustjóri og Kristófer Orri í gjaldeyrismiðlun Kostaði tvo milljarða að selja Íslandsbanka Verðbólgan 4,1% og fer upp á milli mánaða Bein útsending: Framsýn forysta Opnar stað í anda Kaffi Vest í Fossvoginum Neyslan mikil og sjá ekki að stýrivextir fari hratt lækkandi Sexfölduðu veltuna á einu ári Gjaldeyrisforðinn nálægt billjón króna Rúna nýr innkaupastjóri Banana Úr geimskipaútgerð til Faxaflóahafna Bein útsending: Kynna yfirlýsingu fjármálastöðugleikanefndar Selur Alvogen í Bandaríkjunum með samruna sem skapar risa á lyfjamarkaði Óvissa á alþjóðavettvangi undirstrikar mikilvægi ríflegs gjaldeyrisforða SVEIT muni afhenda öll gögn og ekki greiða dagsektir SVEIT sleppi ekki við milljónasektir Bætist í eigendahóp Strategíu Guðrún til Landsbankans Hvernig fæ ég unglingana mína til að fara betur með peninga? „Það er betlmenning og allir eiga að fá allt frítt“ Vélfag stefnir ríkinu Meirihluti í SA andvígur ESB aðild Ráðinn nýr tækni- og þjónustustjóri Advania á Akureyri Syndis kaupir sænskt fyrirtæki Tveir nýir stjórnendur hjá Símanum Sjá meira