Hagnaður Haga 2,8 milljarðar króna Samúel Karl Ólason skrifar 8. janúar 2015 18:09 Handbært fé félagsins var 3.101 milljónir, eigið fé 13.774 milljónir og eiginfjárhlutfall var 50,1 prósent. Vísir/Valli
Hagar hf. högnuðust um 2.848 milljónir króna á tímabilinu 1. mars til 30. nóvember í fyrra. Það samsvarar fimm prósentum af veltu félagsins. Handbært fé félagsins var 3.101 milljónir, eigið fé 13.774 milljónir og eiginfjárhlutfall var 50,1 prósent. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Högum, en árshlutareikningur félagsins var samþykktur af stjórn og forstjóra í dag. Verslanir og vöruhús Haga eru Bónus, Hagkaup, Aðföng, Bananar, Ferskar kjötvörur, Hýsing, Útilíf, Zara, Debenhams, Topshop, Evans, Dorothy Perkins, Karen Millen og Warehouse. Söluaukning félagsins var 1,7 prósent og var vörusalan 56.763 milljónir króna á tímabilinu. Afkoma fyrir fjármagnsliði, afskriftir og skatta nam 4.186 milljónum króna, samanborið við 4.236 milljónir króna árið áður. EBITDA lækkar um 1,2 prósent milli ára og var EBITDA framlegð 7,4 prósent en 7,6 prósent árið áður. Í tilkynningunni segir að reksturinn sé í takti við áætlun félagsins, en að hægt hafi á söluvexti og skýrist það aðallega af lágri verðbólgu. „Gengi krónunnar gagnvart helstu viðskiptamyntum félagsins hefur styrkst á milli ára og hefur sú styrking að fullu skilað sér í verðlagi til viðskiptavina, eins og sjá má í álagningu félagsins. Nokkur óvissa er um verðlagsþróun næstu mánuði og misseri meðal annars vegna óvissu um niðurstöðu kjarasamninga og gengisþróun.“
Mest lesið Fjölmiðla- og auglýsingabransinn: „Jú, jú, það er alveg að koma nýtt búmm!“ Atvinnulíf Sky ætlar að festa kaup á ITV Viðskipti erlent Fluttu eitt prósent færri farþega en í júní á síðasta ári Viðskipti innlent Skera niður Xbox til þess að spreða í gervigreind Viðskipti erlent Afkoma ríkisins neikvæð um 182 milljarða Viðskipti innlent Neytendastofa tæklar bílastæðamálin Viðskipti innlent Ódýrast að tjalda á Vesturlandi Neytendur Fá AA- í einkunn Viðskipti innlent Kristjana nýr framkvæmdastjóri Saffran Viðskipti innlent Kreditkortavandi hjá Landsbankanum leystur Neytendur Fleiri fréttir Fluttu eitt prósent færri farþega en í júní á síðasta ári Fá AA- í einkunn Afkoma ríkisins neikvæð um 182 milljarða Neytendastofa tæklar bílastæðamálin Kristjana nýr framkvæmdastjóri Saffran Loka Te og kaffi á Suðurlandsbraut Eitt app fyrir ferðamenn til að skemmta sér og forðast hættur Of snemmt að draga fram heykvíslar Alvarlegt að forstjóri Samkeppniseftirlitsins taki undir með ASÍ og FÍB Fríverslunarsamningur EFTA og Víetnam í höfn Hægt að ráðstafa séreign í október frá og með 1. janúar Samkeppniseftirlitið hugsi yfir verðbreytingum olíufélaganna Drangar kaupa Brauð & Co Gul viðvörun hjá öllum og fjörutíu prósent á rauðu Mango opnar í Kringlunni Landsbankinn annast skráningu Styrkáss Má gefa börnunum sínum peninga? Vinna að því að fella niður kolefnisgjöld á strandsiglingar „Lukkuhjól“ Byko talið villandi fyrir neytendur Nýr framkvæmdastjóri Kalon Áfengisgjaldið tvöfalt hærra en veiðigjaldið en varla rætt Bera sig eftir viðskiptasamböndum Bakkusar „Maður er reiður og sár“ Verðhækkanirnar vonbrigði Guðrún Gígja nýr yfirlögfræðingur hjá Fossum Þórunn og Svali til Íslandsbanka Verðbólga eykst lítillega Ingólfur kaupir Ísbúð Vesturbæjar Vara við aðskotaefni í tei Bryndís frá Danmörku til Ölgerðarinnar Sjá meira