Forsætisráðherra ekki viðstaddur Sveinn Arnarsson skrifar 12. janúar 2015 07:00 Forsætisráðherra komst ekki til Frakklands en hitti franska sendiherrann og færði honum samúðarkveðjur.
Hvorki forsætisráðherra né utanríkisráðherra voru viðstaddir friðargönguna í París í gær, vegna þeirra voðaverka sem dunið hafa yfir Parísarbúa síðustu sólarhringa. Urður Gunnarsdóttir, upplýsingafulltrúi utanríkisráðuneytisins, sagði í samtali við Fréttablaðið að staðgengill sendiherra Íslands í Frakklandi hafi verið viðstaddur friðargönguna sem fulltrúi íslenskra stjórnvalda. Hún sagði sendiherrann ekki hafa verið í Frakklandi í gær. Af þeim sökum hafi hann því ekki getað verið viðstaddur. Jóhannes Þór Skúlason, aðstoðarmaður forsætisráðherra, segir forsætisráðherra ekki hafa getað þekkst boð franskra stjórnvalda. „Íslenskum stjórnvöldum barst boð frá frönsku ríkisstjórninni um að vera viðstödd friðargönguna síðdegis á föstudegi. Á þeim tímapunkti átti forsætisráðherra ekki þess kost að þekkjast boð að þessu sinni. Hins vegar hafði hann stuttu áður hitt franska sendiherrann á Íslandi og fært honum samúðarkveðjur til frönsku þjóðarinnar, en gat því miður ekki mætt í gær til Parísar,“ segir Jóhannes. Samkvæmt heimildum Fréttablaðsins barst sams konar boð til forsetaembættisins og utanríkisráðuneytisins frá frönskum stjórnvöldum.
Mest lesið Myndir: Allt á floti í Kringlunni Innlent Isavia stefnir að því að hefja gjaldtöku í vikunni Innlent Flúðu vettvang eftir harðan árekstur Innlent Umfangsmikið mengunarslys vegna rútuslyssins Innlent Búðareigendur aðstoðuðu slökkviliðsmenn Innlent Náði ekki að loka búðinni áður en henni var sagt að koma sér út Innlent „Þetta er stórtjón fyrir okkur“ Innlent „Sumar búðir hafa sloppið vel, aðrar ekki“ Innlent Laxateljari greinir eldislaxa frá villtum löxum Innlent Konungsskip Dana í Reykjavík Innlent Fleiri fréttir Neita að borga tjón eftir að hafa mokað snjó yfir bíl Stútfull hátíðardagskrá um allt land á 17. júní „Þetta er stórtjón fyrir okkur“ Parísarhjól sprettur upp við höfnina Stefna á að opna Kringluna á þriðjudag Fá ekki fjármagn til að laga Flóttamannaleiðina fyrr en 2028 Isavia stefnir að því að hefja gjaldtöku í vikunni Það verði „drulluerfitt“ að rífa VG úr lægðinni Jarðaberjarækt í grænum iðngarði í Helguvík Búðareigendur aðstoðuðu slökkviliðsmenn Flúðu vettvang eftir harðan árekstur Slökkvistarf í Kringlunni og staða Vinstri grænna Laxateljari greinir eldislaxa frá villtum löxum Ferðaþjónustan, þingmálin og Running Tide í Sprengisandi Björgunarsveitir sinntu reiðslysi og gönguslysi í gær Myndir: Allt á floti í Kringlunni Umfangsmikið mengunarslys vegna rútuslyssins Konungsskip Dana í Reykjavík „Sumar búðir hafa sloppið vel, aðrar ekki“ Safnað fyrir gróðurskála á Kirkjubæjarklaustri „Við munum ekkert hreyfa okkur í sumar“ Flókið verkefni og mikið tjón í Kringlunni Leiðinlegt fyrir útskriftarnema sem er hent út áður en þeir taka sopa Eldur í Kringlunni og Kristján Loftsson um hvalveiðileyfið Náði ekki að loka búðinni áður en henni var sagt að koma sér út Héldu fyrst að þetta væri brunaæfing Sigurður Ingi ekki búinn að undirrita Isavia-samning Eldur logar í þaki Kringlunnar Björgunarsveit kölluð út í Þórsmörk Áhyggjur af vanda drengja í menntakerfinu óþarfar Sjá meira