Kalla á viðræður um kaup á Reiðhöllinni Jón Hákon Halldórsson skrifar 7. desember 2015 07:00 Reiðhöllin í Víðidal hefur verið nýtt til hestasýninga um árabil. Nú hefur Reykjavíkurborg auglýst hana til sölu. Fréttablaðið/stefán
Ferðaþjónustufyrirtækið Reykjavík Riding Center hefur óskað eftir viðræðum við Reykjavíkurborg um kaup á Reiðhöllinni í Víðidal. Þetta kemur fram í bréfi sem sent var borgarráði og skrifstofu eigna og atvinnuþróunar. Reykjavíkurborg auglýsti á dögunum fjölmargar fasteignir til sölu. Þar á meðal var Reiðhöllin. Reykjavík Riding Center hefur starfað í fjögur ár, býður hestaferðir fyrir ferðamenn og er með aðstöðu í gamla dýraspítalanum í Víðidal. Andrés Pétur Rúnarsson, eigandi Reykjavík Riding Center, segir að fyrirtækið gæti hugsað sér að reka svipaða starfsemi og í Fákaseli í Ölfusinu. Það yrði þá boðið upp á reglulegar reiðsýningar fyrir ferðamenn. „Það er algjör óþarfi að vera að fara yfir heiðina, sérstaklega þegar færðin er svona eins og hún hefur verið, og þetta gæti verið mjög spennandi dæmi,“ segir Andrés Pétur. Í bréfinu til Reykjavíkurborgar segir að Reykjavík Riding Center hafi verið í viðræðum við fjárfesta vegna mögulegra kaupa á Reiðhöllinni. Hann vill ekki nefna það að svo komnu máli hverjir þeir fjárfestar eru. „Við viljum sjá fyrst hvort það er alvara hjá borginni að selja Reiðhöllina eða hvort þetta er tilfærsla á fé. Ég veit ekkert hvort þeir ætla að selja þetta einhverju eignarhaldsfélagi og leigja þetta aftur, hvort þetta sé þá bara eitthvert bókhaldstrikk,“ segir Andrés Pétur. Það sé þó vissulega búið að ræða málin lauslega við fjárfesta. „Eins og þú þekkir þá er ferðaþjónustan á mikilli uppleið og tiltölulega einfalt að fá fjárfestingu í dag.“
Mest lesið Yfirgefa húsið fyrir fullt og allt á fimmtudag Innlent „Skemmtilegra ef við hefðum lent á hinu árinu“ Innlent Sakar framkvæmdastjóra Landspítala um ósannindi Innlent „Við verðum að fá fólk heim aftur“ Innlent Stórfelld líkamsárás og aðstoð mistúlkuð sem innbrot Innlent Merz segir Írani spila með Bandaríkjastjórn Erlent Inga kemur Ingó til varnar Innlent Hvenær slítur maður viðræðum og hvenær slítur maður þeim ekki? Innlent Ákærður fyrir banatilræði við Trump Erlent Fyrstu íslensku GPS-heiðlóurnar komnar heim Innlent Fleiri fréttir Hvenær slítur maður viðræðum og hvenær slítur maður þeim ekki? Stórfelld líkamsárás og aðstoð mistúlkuð sem innbrot „Skemmtilegra ef við hefðum lent á hinu árinu“ Sakar framkvæmdastjóra Landspítala um ósannindi Yfirgefa húsið fyrir fullt og allt á fimmtudag „Við verðum að fá fólk heim aftur“ „Komið þá með allt það sem gerðist síðast“ Fyrstu íslensku GPS-heiðlóurnar komnar heim Harmleikurinn á Edition og umdeild bifreiðarstöð Óvenjulegu tímabili að ljúka Jón Pétur segir enga feðraveldisrembu í „árþúsunda náttúruvali“ Heimilt að nota rafrænt eftirlit í nálgunarbannsmálum „Það þarf að taka í handbremsuna strax“ „Var þetta einhver skets?“ Inga kemur Ingó til varnar Íbúar funda aftur um stöðu Kaffistofunnar Konan ákærð fyrir manndráp á Edition Eden Mining vill ekki sjá málið fyrir dómstólum Ísland kunni að kreista veski ríkra ferðamanna Íslendingurinn var nemandi í lýðháskóla „Mér finnst þetta ákaflega dapurleg framganga“ Sjö þúsund störf gætu verið unnin af gervigreind Vill hætta veiðum en græna ljós Bjarna gildi Hitafundur í utanríkismálanefnd og ráðherra boðar breytingar á hvalveiðilögum Inga vill ekki setja „tugi milljarða í loftslagsmál“ Beitir sér ekki sérstaklega fyrir því að spurningunni verði breytt Stjórnarþingmaður segir Hafró í bullandi pólitík Handteknu hafa komið áður við sögu hjá lögreglu Bein útsending: Kristrún svarar spurningum um þjóðaratkvæðagreiðslu Tveir handteknir í tengslum við stórfellda líkamsárás Sjá meira