Jól

Fjórar ljúffengar uppskriftir að meðlæti

Matreiðslunemarnir Guðbjörg Líf Óskarsdóttir og Thelma Lind Halldórsdóttir.
Matreiðslunemarnir Guðbjörg Líf Óskarsdóttir og Thelma Lind Halldórsdóttir. MYNDIR/ANTON
Jólabörnin og matreiðslunemarnir Thelma Lind Halldórsdóttir frá Vestmannaeyjum og Guðbjörg Líf Óskarsdóttir frá Selfossi starfa báðar á Fiskmarkaðinum í Reykjavík.

Hér gefa þær fjórar einfaldar uppskriftir að ljúffengu meðlæti með jólasteikinni sem flestir ættu að ráða við.

Rósakál með karmeluðum rauðlauk

700 g rósakál

2 rauðlaukar

40 g smjör

80 g púðursykur

2 msk. eplaedik

Rósakálið sett út í sjóðandi vatn og látið sjóða í 2 mínútur. Snöggkælt í ísköldu vatni. Á meðan er púðursykurinn settur á pönnu og látinn bráðna. Ediki er bætt út í og endað á því að setja kalt smjörið út í.

Rauðlaukurinn er skorinn í bita og látinn út á pönnuna með karamellunni.

Laukurinn látinn malla í 5-10 mín. Rósakálið skorið í helminga og léttsteikt á pönnu. Í lokin er lauknum bætt út á rósakálið.

Appelsínu balsamik sveppir

5 portobellosveppir

40 ml balsamedik

70 ml teriyaki

1 tsk. chilikraftur

2 appelsínur

Safi úr appelsínu er kreistur og sigtaður. Öllu blandað í skál.

Sveppirnir eru látnir liggja í vökvanum í 15 mínútur. Þá eru þeir léttsteiktir á pönnu og settir í ofn á 160°C í 15 mínútur.

Sveppirnir eru skornir í nokkra bita og appelsínubörkur rifinn yfir þá.

Rjómalöguð villisveppasósa

½ krukka þurrkaðir villisveppir

1 l vatn

50 g smjör

2 skarlottlaukar

1 rautt chili

4 sveppir

6 greinar timjan

300 ml rauðvín

150 g rjómaostur

300 ml rjómi

80 g smjörbolla (hveiti+smjör)



Lítra af sjóðandi vatni er hellt yfir þurrkuðu sveppina og þeir látnir liggja í 10 mínútur. Sveppir sigtaðir með kaffipoka og vökvinn geymdur.

Laukarnir og chili saxað niður og steikt á pönnu með smjöri ásamt timjan. Sveppirnir og þurrkuðu sveppirnir eru skornir í bita og steiktir með lauknum. Vatninu af sveppunum er þá bætt út í ásamt rauðvíninu og látið sjóða vel niður. Rjómanum og rjómaostinum er bætt út í og látið malla í smástund. Endað á því að setja smjörbolluna út í og láta sósuna þykkna. Smakkað til með salti og pipar.

Ilmandi rauðkál

1 rauðkálshaus, (u.þ.b. 1 kg)

1 epli

200 ml berjasaft

3 msk. eplaedik

3-4 negulnaglar

1 tsk. kanill

1 stk. anísstjarna

100 g púðursykur salt

Kálið skorið í þunnar ræmur, eplið afhýtt og kjarnhreinsað og skorið í mjóa bita. Kálið og epli sett í pott ásamt öllu hinu hráefninu.

Soðið undir loki við vægan hita í um klukkustund. Lokið er tekið af síðustu mínúturnar til að vökvinn gufi upp og smakkað til með sykri og salti.






×