Fá spil önnur en fjárlögin á hendi ríkisstjórnar Heimir Már Pétursson skrifar 11. desember 2015 19:00
Ríkisstjórnin hefur úr litlu að spila fyrir utan liði í fjárlagafrumvarpi sínu í togstreitu sinni við stjórnarandstöðuna um lok þingfunda fyrir jól. Forseti Alþingis hefur ákveðið að fundað verði þriðja kvöldið í röð um fjárlagafrumvarpið en engar líkur eru á að umræðunni ljúki í kvöld. Yfirleitt hefur ríkisstjórn hverju sinni nokkurn fjölda mála til afgreiðslu fyrir jólaleyfi sem hún getur hliðrað til með í samningum sínum við stjórnarandstöðuna. Nú er staðan hins vegar þannig að ríkisstjórnin hefur nánast engin önnur mál að semja um en fjárlagafrumvarpið og þar er stjórnarandstaðan með kröfur. Efst á lista stjórnarandstöðunnar er að auka framlög til Landspítalans, samræma greiðslur lífeyris viðþróun launa á vinnumarkaði og að samþykkt verði lög sem ógilda lækkun útvarpsgjaldsins á næsta ári. En frumvarp menntamálaráðherra um þetta var ekki afgreitt út úr ríkisstjórn á fundi hennar í morgun þar sem það hefur setið fast í þrjár vikur. En Einari K. Guðfinssyni, forseta þingsins, er mál að annarri umræðu fjárlaga, sem staðið hefur fram á nótt undanfarna tvo daga, ljúki á þriðja kvöld- eða næturfundinum í dag. Steingrímur J. Sigfússon sem lengst hefur setið á þingi núverandi þingmanna sagði ríkisstjórnina mega þakka fyrir ítarlega umræðu um fjárlögin „Enda var hún greinilega engan veginn tilbúin með afgreiðslu þessara mála. Það var ekki nóg að meirihluti fjárlaganefndar tíu, ellefu daga framúr eigin starfsáætlun. Heldur dugði það ekki einu sinni til því það dúkka upp milljarðarnir hér og milljarðarnir þar sem gleymdist að taka inn í fjárlögin,“ sagði Steingrímur. Þá hafi ekki verið hefð fyrir því að funda á Alþingi tvær nætur í röð. „Það væri þá þannig að það væri ekki nema önnur hver nótt. Nú hefur hæstvirtur forseti brotið í blað og er að bilja um heimild til að halda þriðja næturfundinn í röð og það á föstudagskvöldi,“ sagði Steingrímur. Einar forseti minnti á aðra hefð í þingstörfum. „Það er rétt að rifja það þá upp að sú hefð var líka til staðar varðandi aðra umræðu fjárlaga að henni lauk nánast alltaf á sama sólarhringnum og hún hófst,“ sagði Einar. En eftir athugasemdir utan úr sal bætti hann við: „Nánast alltaf, það er rétt, nánast alltaf.“ Undantekningar væru þar ekki til fyrirmyndar. En Helgi Hjörvar þingflokksformaður Samfylkingarinnar minnti einmitt á slíka undantekningu frá tíð fyrri ríkisstjórnar. „Hér á Alþingi byggjum við á þeim hefðum sem forseti Alþingis markar. Líka þeim sem hann sem þingmaður markaði hér haustið 2012 með 51 klukkustundar umræðu um fjárlagafrumvarpið þá,“ sagði Helgi.
Mest lesið Inga kemur Ingó til varnar Innlent Íslendingurinn var nemandi í lýðháskóla Innlent Maðurinn fannst látinn í gilinu Innlent Furðar sig á þögn yfir „einu helsta áhyggjuefni Íslands“ Innlent Ísland kunni að kreista veski ríkra ferðamanna Innlent Óvenjulegu tímabili að ljúka Innlent Inga vill ekki setja „tugi milljarða í loftslagsmál“ Innlent Konan ákærð fyrir manndráp á Edition Innlent Barist gegn lúsmýinu: „Einhvers staðar eru þær að fjölga sér“ Innlent „Var þetta einhver skets?“ Innlent Fleiri fréttir Yfirgefa húsið fyrir fullt og allt á fimmtudag „Við verðum að fá fólk heim aftur“ „Komið þá með allt það sem gerðist síðast“ Fyrstu íslensku GPS-heiðlóurnar komnar heim Harmleikurinn á Edition og umdeild bifreiðarstöð Óvenjulegu tímabili að ljúka Jón Pétur segir enga feðraveldisrembu í „árþúsunda náttúruvali“ Heimilt að nota rafrænt eftirlit í nálgunarbannsmálum „Það þarf að taka í handbremsuna strax“ „Var þetta einhver skets?“ Inga kemur Ingó til varnar Íbúar funda aftur um stöðu Kaffistofunnar Konan ákærð fyrir manndráp á Edition Eden Mining vill ekki sjá málið fyrir dómstólum Ísland kunni að kreista veski ríkra ferðamanna Íslendingurinn var nemandi í lýðháskóla „Mér finnst þetta ákaflega dapurleg framganga“ Sjö þúsund störf gætu verið unnin af gervigreind Vill hætta veiðum en græna ljós Bjarna gildi Hitafundur í utanríkismálanefnd og ráðherra boðar breytingar á hvalveiðilögum Inga vill ekki setja „tugi milljarða í loftslagsmál“ Beitir sér ekki sérstaklega fyrir því að spurningunni verði breytt Stjórnarþingmaður segir Hafró í bullandi pólitík Handteknu hafa komið áður við sögu hjá lögreglu Bein útsending: Kristrún svarar spurningum um þjóðaratkvæðagreiðslu Tveir handteknir í tengslum við stórfellda líkamsárás Furðar sig á þögn yfir „einu helsta áhyggjuefni Íslands“ Krónu kastað fyrir aurinn í fjármögnun skóla Maðurinn fannst látinn í gilinu Sást til einstaklings ofan í gili við Háafoss Sjá meira