Framlög til þjónustu við fatlað fólk aukast um 1,5 milljarð Birgir Olgeirsson skrifar 11. desember 2015 16:00 Eygló Harðardóttir og Ólöf Nordal við undirritun samkomulagsins. Vísir/Velferðarráðuneytið.
Tekist hefur samkomulag milli ríkis og sveitarfélaga sem felur í sér endanlega niðurstöðu um fjármögnun þjónustu sveitarfélaga við fatlað fólk samkvæmt lögum um málaflokkinn. Samkomulagið var undirritað í dag. Samhliða var kynnt skýrsla verkefnisstjórnar um faglegt og fjárhagslegt mat á yfirfærslu málaflokksins til sveitarfélaganna. Þetta kemur fram í frétt inni á vef velferðarráðuneytisins. Þar er sagt frá skipun Eyglóar Harðardóttur, félags- og húsnæðismálaráðherra, á verkefnisstjórn í maí 2014 til að meta hvernig yfirfærsla málefna fatlaðs fólks frá ríki til sveitarfélaga hefði til tekist, jafnt faglega og fjárhagslega, líkt og ákveðið var við yfirfærsluna að skyldi gert og áskilið í lögum. Verkefnisstjórnin lauk störfum nýlega með ýtarlegri skýrslu um faglegt og fjárhagslegt mat á yfirfærslunni. Aftur á móti var ákveðið var að vísa umfjöllun um fjármögnun málaflokksins til framtíðar í farveg beinna viðræðna milli ríkis og sveitarfélaga. Samkomulagið sem undirritað var í dag er niðurstaða þeirra viðræðna. Að því standa félags- og húsnæðismálaráðherra, innanríkisráðherra, fjármála- og efnahagsráðherra og Samband íslenskra sveitarfélaga fyrir hönd sveitarfélaganna. Samkomulag ríkis og sveitarfélaga um fjármögnun þjónustu sveitarfélaganna við fatlað fólk er tvíþætt. Annars vegar verður tímabundin 0,04% hækkun útsvarshlutfalls sveitarfélaga sem ákveðin var árið 2014 lögfest sem hluti af hámarksútsvari sveitarfélaga sem nemur þar með 1,24% til málaflokksins. Hins vegar er kveðið á um hækkun framlaga í Jöfnunarsjóð sveitarfélaga sem hlutfall af skatttekjum ríkissjóðs. Áætlað er að þessar breytingar leiði til þess að framlög til þjónustu við fatlað fólk á hendi sveitarfélaganna aukist um allt að 1,5 milljarða króna á ári. Í niðurstöðu verkefnisstjórnar um mat á yfirfærslunni segir að kannanir hafi leitt í ljós að markmið yfirfærslunnar um bætta og einstaklingsmiðaðri þjónustu við fatlað fólk hafi náðst og að þjónusta hafi verið samþætt við aðra nærþjónustu líkt og að var stefnt. Sveitarstjórnarstigið hafi styrkst við yfirfærsluna, fjármagn nýtist betur, dregið hafi úr skörun milli stjórnsýslustiga og einfaldari verkaskipting ríkis og sveitarfélaga hafi í meginatriðum gengið eftir. Það er mat verkefnisstjórnarinnar að sveitarfélögin hafi lagt sig fram um að sinna þjónustu við fatlað fólk af ábyrgð og fagmennsku og að samskipti við notendur og hagsmunasamtök þeirra hafi almennt verið með ágætum. Aftur á móti er bent á að þróun í þjónustu og breytingar á fyrirkomulagi hennar hafi ekki náð að fylgja væntingum á nokkrum þyngstu þjónustusvæðunum. Ástæður þess séu umtalsverð fjölgun þjónustuþega, aukin þjónustuþörf og takmarkað fjármagn.
Mest lesið Grunur um fjárkúgun í manndrápsmáli Innlent Níu manns um borð þegar flugvél hrapaði á umferðargötu Erlent Mega ekki teygja starfsemi tjaldsvæðisins yfir götuna Innlent Þekkt fyrirtæki nýtt í skipulagðri glæpastarfsemi Innlent Skikkaður í varðhald í tengslum við manndráp í Breiðholti Innlent Leiddur fyrir dómara vegna mannsláts Innlent Nálar í hrekkjavökunammi reyndust vera hrekkur Innlent Maður látinn eftir líkamsárás í Breiðholti Innlent Starfsmenn Disney World handteknir í stóru barnaníðsmáli Erlent Feðgar verið handteknir í tengslum við rannsókn á manndrápi Innlent Fleiri fréttir Grunur um fjárkúgun í manndrápsmáli Skikkaður í varðhald í tengslum við manndráp í Breiðholti Mega ekki teygja starfsemi tjaldsvæðisins yfir götuna Leiddur fyrir dómara vegna mannsláts Göngustígar greiða leið um falda perlu við Stykkishólm Hafna nær öllum sem vilja troða upp á Airwaves Þekkt fyrirtæki nýtt í skipulagðri glæpastarfsemi Kryddsíldin fagnar fjörutíu ára afmæli Skoða tengsl milli gerenda og fórnarlambsins í Breiðholti Feðgar verið handteknir í tengslum við rannsókn á manndrápi Nálar í hrekkjavökunammi reyndust vera hrekkur „Það var engu bætt inn í samninginn sem sneri að tölulegum þáttum“ Tveir handteknir með vopn í unglingapartíi Andlát í Breiðholti til rannsóknar Maður látinn eftir líkamsárás í Breiðholti Einar og Sanna mæta á Sprengisand og ræða uppsagnir Spörkuðu, hræktu og létu öllum illum látum Reykur barst um sameign og vatn lak niður í næstu íbúðir Koma langt að til að sjá hvar Agnes var hálshöggvin Hundi bjargað af svölum og einn fluttur á slysadeild Eldur í fjölbýli í Norðlingaholti Nota allar leiðir til þess að smygla fíkniefnum Samþykkja tillögu Ástráðs Ráðherrar einnig látið sig vanta í atkvæðagreiðslur Kvikumagnið undir Svartsengi orðið mun meira en áður Frestur til miðnættis að taka afstöðu til tillögu ríkissáttasemjara Umferðarslys í Bolungarvík Kennarar boðaðir á fund hjá sáttasemjara „Miður að við séum komin á þennan stað“ „Það er bara mjög sorglegt“ Sjá meira