Gjaldþrotum fækkar og nýskráningum fjölgar Sæunn Gísladóttir skrifar 22. desember 2015 10:39 Hlutfallsleg fjölgun nýskráninga er mest í fasteignaviðskiptum, 52 prósent á síðustu 12 mánuðum. Vísir/Vilhelm
Nýskráningum einkahlutafélaga síðustu 12 mánuði, frá desember 2014 til nóvember 2015, hefur fjölgað um 11 prósent í samanburði við 12 mánuði þar á undan. Alls voru 2.272 ný félög skráð á tímabilinu. Þetta kemur fram á vef Hagstofunnar. Hlutfallsleg fjölgun nýskráninga er mest í fasteignaviðskiptum, 52 prósent á síðustu 12 mánuðum, en meðal annarra greina þar sem nýskráningum hefur fjölgað má nefna rekstur gististaða og veitingarekstur (29 prósent) og framleiðslu (25 prósent). Mest hlutfallsleg fækkun nýskráninga síðustu 12 mánuði var í flutningum og geymslu, eða um 12 prósent borið saman við næstu 12 mánuði þar áður. Gjaldþrot einkahlutafélaga síðustu 12 mánuði, frá desember 2014 til nóvember 2015, hafa dregist saman um 24 prósent í samanburði við 12 mánuði þar á undan. Alls voru 611 fyrirtæki tekin til gjaldþrotaskipta á tímabilinu. Hlutfallslega hefur gjaldþrotum í fjármála- og vátryggingastarfsemi fækkað mest, eða um 40 prósent á síðustu 12 mánuðum, auk þess sem gjaldþrotum í bæði flutningum og geymslu og sérfræðilegri, vísindalegri og tæknilegri starfsemi hefur fækkað um 35 prósent frá fyrri 12 mánuðum. Fasteignaviðskipti voru eini atvinnugreinabálkurinn þar sem gjaldþrotum fjölgaði á tímabilinu, um 8 prósent borið saman við 12 mánuði þar á undan.
Mest lesið Þú þarft ekki að vera bílasérfræðingur til að versla í Bílanaust Samstarf Segir styttast í niðurstöður samráðs vegna kjarasamninga Viðskipti innlent Elín Hirst stofnar fyrirtæki Viðskipti innlent Íslandsbanki hækkar vexti Viðskipti innlent „Hafa pakkað niður sleggjunni og eru tilbúnir að senda hana til Brussel“ Viðskipti innlent Hafnar því að hafa snuprað tækni- og hugverkaiðnaðinn Viðskipti innlent Hefur daglegt flug milli Keflavíkur og Fíladelfíu næsta sumar Viðskipti innlent Verðbólga eykst: Forsendur kjarasamninga brostnar Viðskipti innlent Gluggi er ekki bara gluggi Samstarf Tekjur Nvidia tvöfölduðust milli ára Viðskipti erlent Fleiri fréttir Segir styttast í niðurstöður samráðs vegna kjarasamninga Elín Hirst stofnar fyrirtæki Hefur daglegt flug milli Keflavíkur og Fíladelfíu næsta sumar Hafnar því að hafa snuprað tækni- og hugverkaiðnaðinn „Hafa pakkað niður sleggjunni og eru tilbúnir að senda hana til Brussel“ Gagnrýna Viðskiptaráð fyrir að sleppa fjórðu útflutningsstoðinni Verðbólga eykst: Forsendur kjarasamninga brostnar Brynjar Már fer yfir til Corus frá Isavia Auknar tekjur og minni kostnaður Guðmundur Fertram verður sérlegur erindreki Atvinnuleysi jókst í júlí Hreiðar vill hægja á og selja Stracta-hótel Nýr og umdeildur Gotti tekinn úr loftinu Eggert skipaður forstjóri Hafrannsóknastofnunar Hótelin fá ný nöfn Hættir sem forstjóri Elkem og hefur störf hjá Travel Connect Af hverju eru allir að eyða svona miklu? Alvotech tekur stökk eftir greiningu Bank of America Högnuðust um hálfan annan milljarð Elkem segir tollfrelsi geta skilað 350 milljónum á ári Sýn+ verður líka línuleg sjónvarpsstöð Hætta við kaup á vef- og útvarpsmiðlum Sýnar Reglugerðir ESB hafi „sérstaklega slæm áhrif á Ísland“ Fasteignaverð rokið upp eftir inngöngu í ESB Landsbankinn hækkar líka vexti Jón Þór fer til Samherja Þorgeir Pálsson nýr mannauðsstjóri Háskólans á Bifröst „Eftir að koma í ljós“ hvort íslenskar áhafnir manni leiguflug Icelandair Sektaður um 65 milljónir fyrir miðlun innherjaupplýsinga Síminn orðinn Ásar hf Sjá meira