Ungt fólk fái skattlaust ár Jón Hákon Halldórsson skrifar 16. nóvember 2015 07:00 Formaður Stúdentaráðs HÍ segir helming námsmanna búa í foreldrahúsum eða á Stúdentagörðum. Stór hluti sér ekki fram á að geta keypt fasteign. Vísir/Vilhelm „
Við höfum áhyggjur af því að fólk festist í viðjum leigumarkaðar og það nái aldrei að verða til eignarmyndun,“ segir Aron Ólafsson, formaður Stúdentaráðs HÍ. Hann heldur erindi á ráðstefnu Reykjavíkurborgar um íbúðamarkaðinn um helgina. Aron bendir á að helmingur námsmanna búi í foreldrahúsum eða á stúdentagörðum. Samkvæmt könnun Stúdentaráðs sjái 74 prósent nemenda fram á að kaupa íbúð, en af þeim sjái 31 prósent ekki fram á að kaupa íbúð fyrr en að fimm ár eða meira eru liðin frá lokum náms. Einhverjir þeirra geri sér jafnvel ekki í hugarlund hvenær þeir nái að safna fyrir útborgun í íbúð. Aron nefnir nokkrar lausnir, sem hið opinbera gæti gripið til, í því skyni að hjálpa ungu fólki að eignast íbúð. Í fyrsta lagi að fella niður stimpilgjöld af fyrstu íbúðunum. „Það er strax eitthvað,“ segir Aron. Einnig þurfi að endurskoða byggingarregluverkið þannig að hægt sé að smíða íbúðir sem eru fyrir þennan markhóp. „Í dag er skortur á búsetuúrræði fyrir ungt fólk. Þannig að um leið og hægt er að byggja minni íbúðir og hagkvæmari íbúðir er búið að opna á ódýrara byggingarform sem getur þjónustað yngra fólk,“ segir hann. Aron nefnir líka þá hugmynd að bjóða upp á skattlaust ár fyrir ungt fólk. Hann telur að það gæti haft tvenns konar áhrif. Annars vegar myndi ungt fólk ná að byggja upp eigið fé. Viðskiptabankar gætu stigið inn og boðið upp á bundna reikninga sem tekjuskatturinn yrði greiddur inn á í stað þess að hann færi til ríkisins. „Einnig gæti það leitt til þess að ungt fólk breyti um sýn á það hvernig skattar virka.“
Mest lesið Einhuga um að lengja gildistíma ökuskírteina Innlent Baldur til Eyja Innlent Seltjarnarnes heldur áfram að tapa Innlent Endurráða alla 300 starfsmennina og setja þrjá milljarða í endurbætur Viðskipti innlent Stefni í sömu átt og Svíþjóð Innlent Gripu til sinna ráða og settu Starlink í skólarútuna Innlent „Hún er skrifuð af mér“ Innlent „Þetta er gríðarlegt högg fyrir þessi minni bæjarfélög“ Innlent „Það er mikið verið að suða“ Innlent Viðreisn upp fyrir Sjálfstæðisflokk og Framsókn bætir við sig Innlent Fleiri fréttir Einhuga um að lengja gildistíma ökuskírteina Baldur til Eyja „Þetta er gríðarlegt högg fyrir þessi minni bæjarfélög“ „Það er mikið verið að suða“ Stefni í sömu átt og Svíþjóð Gripu til sinna ráða og settu Starlink í skólarútuna „Hún er skrifuð af mér“ Ísland stefni í sömu átt og Svíþjóð Fjórir í varðhaldi vegna Dettifossmálsins Rafgeymar gátu ekki fætt dælur þegar Ormurinn langi sökk Mega hjóla gegn einstefnu Greiða hundruð þúsunda fyrir heimsókn Tinna til Íslands Bein útsending: Oddvitar í Reykjavík á kosningafundi Viðskiptaráðs Viðreisn upp fyrir Sjálfstæðisflokk og Framsókn bætir við sig Leiðir áfram unga miðflokksmenn Batahorfur betri eftir umferðarslys við Skógarveg „Það var reynt að fá þá fyrr að verkinu“ Algengt að krafa sé gerð í sambandi um að deila stöðugt staðsetningu Verðbólgan hjaðnar og vandræði í Landeyjahöfn Halda til Svíþjóðar í afmælisveislu Atli og Sunna nýir fréttastjórar og Árni varafréttastjóri Kosningapallborð fréttastofu: Glæný skoðanakönnun kynnt fyrir Hafnarfjörð Sænska lögreglan reynir að uppræta „glæpamenn til leigu“ Systkinaforgangur og heimgreiðslur á lista margra framboða í Reykjavík „Mögulegt heimilisofbeldi“ reyndist tölvuleikur Kölluð út á efsta forgangi vegna báts í vanda á Kópaskeri Að óbreyttu muni umferðin halda áfram að þyngjast Hitaveitur gætu orðið veruleiki á Grænlandi „Ég veit ekkert hvenær þeir komast aftur heim“ Bó kvaddur í hinsta sinn Sjá meira