Horfinn í 17 daga Kristjana Björg Guðbrandsdóttir skrifar 31. október 2015 07:00 Hörður Björnsson hefur verið týndur í 17 daga, leit að honum hefur engan árangur borið. Björgunarsveitir leita ekki lengur að honum en lögregla er í viðbragðsstöðu. „
Við erum ekki hættir, við leitum enn eftir sterkum vísbendingum, segir Ágúst Svansson, aðalvarðstjóri hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu. Ágúst hefur nú yfirumsjón með leitinni að Herði sem hefur enn engan árangur borið. „Það hafa engar haldgóðar vísbendingar borist,“ segir hann, en Harðar hefur verið leitað síðan 14. október. Ágúst segir vísbendingar hafa borist um ferðir hans en þær hafi leitt til manna líkum honum í útliti. Björgunarsveitir Slysavarnafélagsins Landsbjargar hafa aðstoðað lögreglu við leitina. Um tvö hundruð manns hafa komið að leitinni og lögregla biðlaði til almennings í síðustu viku að aðstoða þá við leitina með því að leita í görðum sínum og nærumhverfi, en einnig öðrum svæðum sem fólki finnst koma til greina að Hörður gæti leynst. Hans hefur því verið leitað ítarlega. Nú hafa björgunarsveitarmenn dregið sig í hlé þar til haldbetri vísbendingar berast. Ágúst segir það vitanlega erfitt aðstandendum. „Við bregðumst strax við ef sterk vísbending berst, það er búið að leita rosalega vel og margir tekið þátt í leitinni. Hún hefur einfaldlega ekki borið árangur. Þetta er auðvitað erfitt aðstandendum að það sé ekki lengur víðtæk leit en við gerum allt sem við getum.“ Hann biðlar áfram til almennings að hafa augun hjá sér. Hörður er 188 cm á hæð, grannur, ljóshærður með rautt skegg. Síðast sást til hans á Laugarásvegi í Reykjavík um kl. 04.00. Hörður er ekki talinn hættulegur.
Mest lesið Slævandi lyf og lágt sætisbak dráttarvélar orsakir banaslyss Innlent Stafræn skírteini hætta í símaveskjum Innlent Íbúar leiti réttar síns vegna flautsins: „Þetta er lýðheilsuógn“ Innlent Fær bætur 45 árum eftir föðurmissinn: „Varð eiginlega tíu ára aftur“ Innlent Kýldi konu eftir kynmök: „Hvað, getur þú ekki meira?“ Innlent Dæmdur í 21 árs fangelsi fyrir að nauðga tugum skjólstæðinga Erlent Fyrirsjáanlegar deilur: Valdamesti maður heims og sá ríkasti hnakkrífast Erlent Ásthildur Lóa skammar þingheim Innlent Löng bílaröð meðan hæðarslá er lagfærð Innlent Reyna að stilla til friðar með símtali Erlent Fleiri fréttir Kýldi konu eftir kynmök: „Hvað, getur þú ekki meira?“ Missti nánast sjónina þegar sláttuorf skaut steini í annað augað Mál áfengisverslananna komin til ákærusviðs, aftur Frumvarp um farþegalista samþykkt Kolbrún segir gesti nefndarinnar handbendi minnihlutans Löng bílaröð meðan hæðarslá er lagfærð Öllum sagt upp: „Ekkert verið að hugsa um félagsmiðstöðvastarf“ Launahækkunin mun fara í gegn en kerfið endurskoðað í haust Búa sig undir margmenni á Hengil Ultra Ásthildur Lóa skammar þingheim Íbúar leiti réttar síns vegna flautsins: „Þetta er lýðheilsuógn“ Slævandi lyf og lágt sætisbak dráttarvélar orsakir banaslyss Launahækkanir ráðamanna og rifrildi Trumps og Musks í hádegisfréttum Aflýsa óvissustigi vegna norðanáhlaupsins Tveggja ára fangelsi fyrir ofbeldi gegn tveimur konum og karli Aflamark þorsks lækkað og reiknað með að stofninn minnki áfram Fær bætur 45 árum eftir föðurmissinn: „Varð eiginlega tíu ára aftur“ Neitaði að blása í áfengismæli Stafræn skírteini hætta í símaveskjum Mörgu ábótavant við byggingu Brákarborgar Framtíð kirkjunnar enn óráðin Strandveiðisjómenn vilji aftur fá kvóta sem þeir hafi selt frá sér Nýtt slagorð Ísland Duty Free: „Ég er á leiðinni“ Börn verði að fá þau skilaboð að ofbeldi gegn þeim sé aldrei réttlætanlegt Gestum ráðið frá að heimsækja Dettifoss vegna stórrar skriðu Inga Sæland segist vera allt of löt að hreyfa sig Fá Barnaverndarmál leiða til ákæru og Herkastalinn í nýjar hendur Ísland, þvert á flokka boðar til annarra mótmæla Parísarhjólið rís á ný Lögregla fann bakpoka fullan af skilríkjum Sjá meira