Hjúkrunarfræðingar segja fréttaflutning af launum sínum villandi Bjarki Ármannsson skrifar 12. desember 2015 15:26 "Það er verið að bera saman heildarlaun hjúkrunarfræðinga og lækna á Íslandi við dagvinnulaun annars staðar,“ segir Ólafur. Vísir
Formaður Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga (FÍH) segir það ósanngjarnt að bera saman heildarlaun íslenskra hjúkrunarfræðinga við dagvinnulaun á hinum Norðurlöndunum. Mikil óánægja ríki innan félagsins vegna fréttar Morgunblaðsins í dag sem fjallaði um launahækkanir lækna og hjúkrunarfræðinga hér á landi miðað við í Danmörku, Svíþjóð og Noregi. Samkvæmt tölum í fréttinni sem birtist í dag eru föst mánaðarlaun lækna og hjúkrunarfræðinga á Íslandi hærri en í Svíþjóð en lægri en í Danmörku og Noregi. Heildarlaun á Íslandi, með vaktaálagi og yfirvinnugreiðslum, eru þó einnig birt við hlið dagvinnulauna á súluritum og segir Ólafur G. Skúlason, formaður FÍH, þá framsetningu villandi. „Það er verið að bera saman heildarlaun hjúkrunarfræðinga og lækna á Íslandi við dagvinnulaun annars staðar,“ segir Ólafur. „Það er ekki réttur samanburður. Ef það á að bera saman laun vaktavinnumanna, þá á að bera dagvinnulaun saman við dagvinnulaun og heildarlaun saman við heildarlaun. Hér er verið að bera saman epli og appelsínur.“Lægra vaktaálag ytra en hærri laun Í Morgunblaðinu er haft eftir Hannesi G. Sigurðarsyni, aðstoðarframkvæmdastjóra Samtaka atvinnulífsins, að greidd mánaðarlaun þessarra stétta geti verið hærri á Íslandi en á hinum Norðurlöndunum þó grunnlaun séu lægri vegna þess að vaktaálag sé mun hærra á Íslandi en þekkist annars staðar. „Vaktaálagið er lægra á Norðurlöndunum, prósentulega séð,“ segir Ólafur. „En þar eru hærri laun. Það skiptir ekki máli þótt álagið sé eitthvað lægra í prósentum séð, það er heildartalan sem skiptir máli.“ FÍH hefur sent frá sér tilkynningu þar sem framsetning þessara upplýsinga er gagnrýnd og samkvæmt Ólafi eru hjúkrunarfræðingar almennt mjög ósáttir við fréttina. Ekki sé þó búið að ræða neinar frekari aðgerðir en bara að vekja athygli á óánægjunni með samanburðinn.
Mest lesið Maður látinn eftir líkamsárás í Breiðholti Innlent Þekkt fyrirtæki nýtt í skipulagðri glæpastarfsemi Innlent Feðgar verið handteknir í tengslum við rannsókn á manndrápi Innlent Nálar í hrekkjavökunammi reyndust vera hrekkur Innlent Skoða tengsl milli gerenda og fórnarlambsins í Breiðholti Innlent Leiddur fyrir dómara vegna mannsláts Innlent Reykur barst um sameign og vatn lak niður í næstu íbúðir Innlent „Rannsóknarnefndir verða stofnaðar“ Erlent Spörkuðu, hræktu og létu öllum illum látum Innlent Grunaðir um að skipuleggja óeirðir á Tenerife Erlent Fleiri fréttir Mega ekki teygja starfsemi tjaldsvæðisins yfir götuna Leiddur fyrir dómara vegna mannsláts Göngustígar greiða leið um falda perlu við Stykkishólm Hafna nær öllum sem vilja troða upp á Airwaves Þekkt fyrirtæki nýtt í skipulagðri glæpastarfsemi Kryddsíldin fagnar fjörutíu ára afmæli Skoða tengsl milli gerenda og fórnarlambsins í Breiðholti Feðgar verið handteknir í tengslum við rannsókn á manndrápi Nálar í hrekkjavökunammi reyndust vera hrekkur „Það var engu bætt inn í samninginn sem sneri að tölulegum þáttum“ Tveir handteknir með vopn í unglingapartíi Andlát í Breiðholti til rannsóknar Maður látinn eftir líkamsárás í Breiðholti Einar og Sanna mæta á Sprengisand og ræða uppsagnir Spörkuðu, hræktu og létu öllum illum látum Reykur barst um sameign og vatn lak niður í næstu íbúðir Koma langt að til að sjá hvar Agnes var hálshöggvin Hundi bjargað af svölum og einn fluttur á slysadeild Eldur í fjölbýli í Norðlingaholti Nota allar leiðir til þess að smygla fíkniefnum Samþykkja tillögu Ástráðs Ráðherrar einnig látið sig vanta í atkvæðagreiðslur Kvikumagnið undir Svartsengi orðið mun meira en áður Frestur til miðnættis að taka afstöðu til tillögu ríkissáttasemjara Umferðarslys í Bolungarvík Kennarar boðaðir á fund hjá sáttasemjara „Miður að við séum komin á þennan stað“ „Það er bara mjög sorglegt“ Skringileg túlkun á regnbogafánanum og aukið eftirlit í Grindavík Hafi loks slíðrað sverðin Sjá meira