Stóru terturnar seldust betur í ár en í fyrra Haraldur Guðmundsson skrifar 2. janúar 2015 07:00 Flugeldasala björgunarsveitanna fór vel af stað og jafnvel betur en oft áður. Vísir/Vilhelm „
Flugeldasalan gekk mjög vel og virðist við fyrstu sýn hafa verið örlítið meiri en í fyrra,“ segir Jón Ingi Sigvaldason, sölu- og markaðsstjóri Slysavarnafélagsins Landsbjargar. „Það virðist hafa verið meiri sala í stærri vörum. Það er ekki hægt að segja að það sé sprenging í þessu en stærri terturnar seldust aðeins betur en í fyrra,“ bætir Jón við. Flugeldar Slysavarnafélagsins Landsbjargar voru fáanlegir á 130 sölustöðum um allt land. Þar af voru um sextíu í höfuðborginni. „Seinustu þrjú ár hafa verið mjög svipuð í sölu og þetta ár virðist ætla að vera á pari við þau eða jafnvel aðeins meira.“ Verð á flugeldum stóð í stað milli ára eins og kom fram í Fréttablaðinu í síðustu viku. Um 502 tonn af flugeldum voru flutt inn fyrir þessi áramót en 406 tonn voru send hingað til lands fyrir áramótin 2013/2014. Jón segir endanlegar sölutölur ekki liggja fyrir fyrr en eftir þrettándann og því sé ekki hægt að segja til um hvort björgunarsveitirnar hafi selt allan sinn hluta af heildarinnflutningnum. „Kerfið okkar er byggt upp þannig að allar sveitirnar eru sjálfstæðar og því þarf að taka allar sölutölur saman eftir þrettándann. En við viljum þakka þjóðinni fyrir stuðninginn og vonum að allir hafi verið ánægðir með það sem þeir skutu upp,“ segir Jón.
Mest lesið Kaupa allt hlutafé í Nicetravel Viðskipti innlent Segðu Já í vinnunni og það strax! Atvinnulíf Hugrún nýr markaðsstjóri Defend Iceland Viðskipti innlent Hægt að ráðstafa séreign í október frá og með 1. janúar Viðskipti innlent Árni Oddur tekur við formennsku Viðskipti innlent Skera niður Xbox til þess að spreða í gervigreind Viðskipti erlent Nýir kælar og kjúklingastaður í Lindunum eftir stærstu endurbætur Krónunnar Viðskipti innlent Fjölmiðla- og auglýsingabransinn: „Jú, jú, það er alveg að koma nýtt búmm!“ Atvinnulíf PlayStation 5 slær Xbox 360 við Viðskipti erlent Síminn fær heimild til að reka áfram 2G og 3G þjónustu Viðskipti innlent Fleiri fréttir Hugrún nýr markaðsstjóri Defend Iceland Kaupa allt hlutafé í Nicetravel Fluttu eitt prósent færri farþega en í júní á síðasta ári Fá AA- í einkunn Afkoma ríkisins neikvæð um 182 milljarða Neytendastofa tæklar bílastæðamálin Kristjana nýr framkvæmdastjóri Saffran Loka Te og kaffi á Suðurlandsbraut Eitt app fyrir ferðamenn til að skemmta sér og forðast hættur Of snemmt að draga fram heykvíslar Alvarlegt að forstjóri Samkeppniseftirlitsins taki undir með ASÍ og FÍB Fríverslunarsamningur EFTA og Víetnam í höfn Hægt að ráðstafa séreign í október frá og með 1. janúar Samkeppniseftirlitið hugsi yfir verðbreytingum olíufélaganna Drangar kaupa Brauð & Co Gul viðvörun hjá öllum og fjörutíu prósent á rauðu Mango opnar í Kringlunni Landsbankinn annast skráningu Styrkáss Má gefa börnunum sínum peninga? Vinna að því að fella niður kolefnisgjöld á strandsiglingar „Lukkuhjól“ Byko talið villandi fyrir neytendur Nýr framkvæmdastjóri Kalon Áfengisgjaldið tvöfalt hærra en veiðigjaldið en varla rætt Bera sig eftir viðskiptasamböndum Bakkusar „Maður er reiður og sár“ Verðhækkanirnar vonbrigði Guðrún Gígja nýr yfirlögfræðingur hjá Fossum Þórunn og Svali til Íslandsbanka Verðbólga eykst lítillega Ingólfur kaupir Ísbúð Vesturbæjar Sjá meira